Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Page 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Page 22
Frá vinstri: Björney Björnsdóttir, Jensína Hutton og Pálína Sigmundsdóttir. í Danmörku og útskrifaðist með þeim. Hún var gift en þurfti engu að síður að flytja á heimavistina. „Við gerðum ýmis prakkarastrik á vistinni og eftir á var þetta ómetanlegur tími. Skólasystur mínar eru nú farnar að týna töiunni og margar orðnar heilsulausar." Jafnast á við að fá sæti á frumsýningu Pálína útskrifaðist 1953, vann í tæpt ár á Kleppsspítalanum en giftist svo eiginmanni sínum, Sigmundi Ragnari Helgasyni skrifstofumanni. Næstu árin var hún heimavinnandi, eignaðist tvær dætur 1955 og 1956. I þá daga var ekki algengt að konur ynnu úti en hún segist hafa beðið óþreyjufuil eftir að byrja aftur að vinna og komst í afleysingastörf á Heilsuverndarstöðinni 1961-1962. „Eg byrjaði fljótlega í ungbarnaeftirliti og eftir að hafa unnið þar í 6-7 ár sótti ég um skólavist í Arósum í Danmörku. Þangað höfðu nokkrar konur farið á undan mér, svo sem þær Ingibjörg R. Magnúsdóttir og Sigurlín Gunnarsdóttir sem sóttu nám í stjórnun. Þær hjúkrunarkonur, sem sóttu um starf í heilsugæslunni, áttu að hafa próf í heilsugæsluhjúkrun og flestar fóru til náms til Norðurlandanna. „Heilsugæsluhjúkrun var þá mest kennd á Norðurlöndunum. Við tókum okkur því öll upp fjölskyldan, með stelpurnar tvær og ársgamlan son og maðurinn minn fékk ágæta vinnu. Við bjuggum í litlum bæ rétt utan við Árósa, þetta var mikið ævintýri og mér fannst það jafnast á við að fá sæti á frumsýningu. Ég kunni svo vel að meta allt og var með dýrmæta reynslu úr starfi við heilsugæsluna. Þetta var líka erfitt, það var verið að breyta náminu, ég hélt ég væri góð í dönskunni en hún var erfiðari en ég hélt. Danir voru framarlega í kennsluaðferðum, námið byggðist á sjálfstæðum vinnubrögðum, fyrirlestrum og umræðum og við þurftum að lesa hinar og þessar heimildir á ensku sem einnig reyndist mér erfitt.“ Hún bætir við að eftir á hafi henni fundist það hálfgert kraftaverk að hún komst í gegnum þetta. Dönsku skólasysturnar, sem voru með eldra próf eða frá því fyrir '65, fóru fyrst á þriggja mánaða upprifjunarnámskeið áður en námið hófst. „María Pétursdóttir sendi fyrir mig undanþágubeiðni til að ég þyrfti ekki að taka það svo ég var bara með mitt gamla hjúkrunarpróf og því illa sett. Ég tók því upp á því að lesa nýjustu nemabækurnar á dönsku nótt sem dag, maðurinn minn hafði verið í læknisfræði í nokkur ár og hjálpaði mér talsvert. Þær gerðu grín að mér dönsku skólasysturnar og sögðu eitt sinn er ég var farin að tala dönsku: „Pálína er bara farin að tala dönsku! Hun bander hele tiden.“ Það var þegar ég sagði sko en það er blótsyrði á dönsku. Ég róaðist þó nokkuð þegar málið var komið og lengra leið á námið og ég sá líka að námið reyndist dönsku skólasystrum mínum erfitt. En eins og sagt hefur verið þá kennir neyðin naktri konu að spinna. Manni er gefið ýmislegt sem maður heldur að maður hafi ekki. Ég sagði við sjálfa mig: „Þú getur kannski ekki allt en þú getur eitthvað.“ Það er einhver sjálfsbjargarviðleitni í manni og tilhneiging til að lifa af.“ Og svo fór að Pálína lauk náminu með viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Sigmurdur, Ingibjörg, Helga, Helgi og Pálína. Myndin ertekin um 1970. - Var hún ekkert á þessum tíma að velta því fyrir sér um að vera áfram í Danmörku? „Nei, ég fann að ég er svo mikill Islendingur í mér að ég gat ekki 20 Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.