Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Page 52

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Page 52
saman í sinfóníuhljómsveit með góðum stjórnanda verður útkoman frábærlega góð. Fólkið, sem ég vinn fyrir, er orðið gamalt, hefur 80 til 100 ár að baki og er dásamlegt fólk og ég lít á heildræna meðferð þess sem eins konar sinfóníu. Allir aðilarnir eru til staðar innan heilbrigðiskerfisins og við þurfum ekki að borga þeim neitt hærri laun þótt ákveðin samhæfing eigi sér stað. Eg held að þetta sé gerlegt. Chris: Jón, er það rétt skilið að þú teljir þetta framkvæmanlegt vegna þess að þú ert hljómsveitarstjórinn? Jón: Já, stundum er ég hljómsveitarstjórinn. Á Islandi hafa staðið þylckir veggir á milli sérfræðigreina og það leiðir til einhliða nálgunar þar sem hver um sig veit hvaða hlutverki hann eða hún gegnir og allir vita hvað þeir eða þær mega ekki eða geta ekki gert. Að því sögðu held ég að stjórnandinn megi vera Islendingur eða Austurríkismaður, læknir eða guðfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun eða bara hvað sem er. Ef hann er góður stjórnandi hljómar sinfónían vel. Chris: Þakka þér fyrir. Erna, hvað myndir þú segja um svörin við þessum tveim spurningum sem þegar hafa komið fram? Erna: Ég hef unnið að líknandi meðferð árum saman, lengur en ég kæri mig um að muna, en ég hef lengi haft fræðilega þekkingu á heildrænni meðferð. Við sem vinnum við líknandi meðferð búum við þann raunveruleika að vita hvað heildræn meðferð er fræðilega séð. Við þekkjum mikilvægi hennar og erum meðvituð um að við ættum að veita hana af þeim ástæðum sem þegar hafa verið nefndar. Ég held þó að ekki hafi verið fjallað nógu ýtarlega um þannig meðferð eins og Elaukur nefndi. Mér finnst að við búum við þá úlfakreppu að vita hvaða þekkingu við ættum að beita og að vilja beita henni en að henni sé engu að síður ekki beitt. Þetta segi ég á grundvelli þeirra hugmynda sem ég tileinkaði mér á meðan ég vann að doktorsverkefni mfnu og það sem er að gerast minnir mig á annað. Lítum á dæmi. Ég bið dóttur mína um að taka til í herberginu sínu og svo kemur hún til mín og segist vera búin að því. Ég verð bæði glöð og hissa en hálftíma síðar fer ég inn til hennar og sé að hún hefur bara tekið smávegis til. Einhver heimspekingurinn orðaði það þannig: „Ef þú vilt forðast eitthvað skaltu líta svo á að það sé afgreitt. “ Ég óttast að við séum að taka þessa afstöðu til heildrænnar meðferðar vegna þess að þetta er flókið mál. Það er hægara sagt en gert að veita heildræna meðferð og það er afar erfitt verkefni að reyna að samræma annars vegar tækninálgunina og hins vegar þá mannlegu. Margar rannsóknir staðfesta að fólk gerir oft allt annað en það sem það segist gera og ég held að vandamálið, sem við okkur blasir, sé það að núverandi kerfi og breytingarnar, sem við viljum koma á, passa ekki saman. Um þetta er ég að hugsa þessa stundina. Chris: Þakkaþérfyrir. Desmonderfélagsfræðingur og hlustar á samræður fólks f hjúkrunarstéttum. Hvernig myndir þú fjalla um þetta frá félagslegum sjónarhóli? Desmond: Tvennt skiptir einkum máli þegar svara á fyrri spurningunni, hvers vegna heildræn meðferð sé mikilvæg, hvers vegna hún hafi orðið það og hvaða breytingar hún hefur í för með sér. Annars vegar ber að nefna innri ástæður, það er innviði heilbrigðiskerfisins, og hins vegar ytri ástæður. Innri ástæðurnar sýnast mér vera sú breyting sem orðið hefur á sjúkdómamyndinni í vestrænum samfélögum. Þar er um tvennt að ræða. Annað er að langvinnir sjúkdómar koma oft og tíðum fyrr fram nú en áður. Þetta leiðir til þess að fólk þarf að takast lengur á við sjúkdóma en áður, fólk fær sjúkdóma sem það á eftir að ganga með alla ævi, sjúkdómurinn greinist fyrr en áður og fólk lifir Iengur en áður með sjúkdóm sinn. Sem dæmi má nefna alvarlega offitu hjá ungu fólki. Mynd þessa sjúkdóms er að breytast í samfélaginu, nú er litið svo á að fólk með þennan sjúkdóm búi við vanda sem það verður að lifa með og lifa sem bestu lífi með. Að mínu mati sýnist mér þetta nýja viðhorf gera þær kröfur til fólks með þennan sjúkdóm að það taki sjálft þátt í að endurskoða hugmyndir sínar um það hvernig það tengist heilbrigðiskerfinu. Fólk verður að hætta að vera sjúklingar, það þarf að verða fulltrúar vegna þess að það þarf að taka virkan þátt í að lifa lífinu með sjúkdómnum. Ytri ástæðurnareru svo hinarfélagslegu breytingar. I Bretlandi hefur til dæmis orðið sú mikla breyting að efnahagskerfi, sem tók 200 ár að móta, hefur hrunið á 30 árum. Trúarbragðakerfi, sem tók fjórar til fimm aldir að móta, hefur nær horfið á 30 árum. Hér eru nokkrar staðreyndir þessu til stuðnings. Fjöldi safnaðarbarna í skosku kirkjunni náði hámarki ekki alls fyrir löngu eða árið 1959 og aldrei hafa unnið jafnmargir starfsmenn að iðnframleiðslu í Bretlandi og árið 1969. Aðeins 30 ár eru liðin síðan fjöldi starfsmanna við iðnframleiðslu náði hámarki sínu en nú er varla nokkur iðnframleiðsla í Bretlandi. Við búum því við þær einstöku aðstæður að gríðarlegar félagslegar, menningarlegar og efnahagslegar breytingar hafa orðið hver á fætur annarri. Bækur eru skrifaðar sérstaklega um þær og líka sérstakir kaflar um þessar breytingar hverja fyrir sig en 50 Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.