Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 27
27
og Trausti Fannar Valsson dósent við lagadeild Háskóla Íslands Ágreiningur þessi hefur
haft truflandi áhrif á starfsemi kirkjuráðs.
Kirkjuráðsfundir
Kirkjuráð heldur fund að jafnaði einu sinni í mánuði á Biskupsstofu og á þessu starfsári
(kirkjuþingsárinu) hefur ráðið haldið 14 fundi. Auk kirkjuráðsmanna og framkvæmdastjóra
hafa setið að jafnaði fundi ráðsins biskupsritari sem ritar fundargerðir. Forseti kirkjuþings
situr fundi kirkjuráðs þegar málefni kirkjuþings eru til umfjöllunar og vígslubiskupar
þegar málefni biskupsstólanna eru rædd.
Starfsfólk kirkjuráðs
Kirkjuráð réði til starfa þann 1. apríl 2015 framkvæmdastjóra kirkjuráðs, Ellisif Tinnu Víðis-
dóttur, lögfræðing, en Ragnhildur Benediktsdóttir, fv. skrifstofustjóri Biskups stofu, sinnti
starfi fram kvæmda stjóra ráðsins til þess tíma. Guðrún Finnbjarnardóttir, fulltrúi starfar
með fram kvæmda stjóra að undirbúningi kirkju ráðs funda og öðrum verkefnum ráðsins.
Guðmundur Þór Guðmundsson, lögfræðingur, fráfarandi framkvæmdastjóri
kirkjuráðs tók þann 1. janúar 2015 við starfi sem sviðsstjóri fasteignasviðs til bráðabirgða.
Frá 1. júní 2015 er hann sviðsstjóri lögfræðisviðs Biskupsstofu, en framkvæmdastjóri
kirkjuráðs tók frá sama tíma einnig við starfi sviðsstjóra fasteignasviðs. Á fasteignasviði
starfar einnig Arnór Skúlason, arkitekt, verkefnastjóri viðhaldsmála. Á sviði upplýsinga-
tæknimála starfar Örvar Kárason, verkefnisstjóri. Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármálastjóri
Biskupsstofu, sagði starfi sínu lausu frá og með 1. apríl 2015. Á fjármálasviði starfa Hildur
Gunnarsdóttir, aðalféhirðir, Magnhildur Sigurbjörnsdóttir, verkefnastjóri á sviði fjármála
sókna, Ólína Hulda Guðmundsdóttir, bókari og Vigdís Helga Eyjólfsdóttir, bókari og Ólöf
Kristjánsdóttir, sem aðalbókari, en hún sagði starfi sínu lausu frá og með 1. september sl.
Verkefni kirkjuráðs á starfsárinu
Reglulegt kirkjuþing, 51. kirkjuþing 2014, var haldið í Grensásskirkju 10. – 15. nóvember
2014 og í Neskirkju 17. janúar 2015. Á þinginu voru lögð fram 32 mál, kirkjuráð flutti 11
mál, biskup Íslands fjögur, biskupafundur eitt, forsætisnefnd eitt og innanríkisráðherra
einnig eitt mál. Þingmannamál voru 14, þar af eitt flutt af fulltrúa kirkjuþings unga
fólksins. Alls voru 31 mál afgreidd á þinginu. Gerðir kirkjuþings eru gefnar út og þeim
dreift til þingfulltrúa, presta, formanna sóknarnefnda o. fl. Þar eru birtar breytingar á
starfsreglum, nýjar starfsreglur, ályktanir og samþykktir kirkjuþings. Kirkjuráð hefur
unnið að framkvæmd og kynningu þeirra mála sem kirkjuþing fól ráðinu að sinna.
Jafnframt hafa samþykktar starfsreglur verið birtar í Stjórnartíðindum.
Skal nú gerð grein fyrir framkvæmd samþykkta kirkjuþings.
1. mál. Ályktanir við skýrslu kirkjuráðs
- Kirkjuþing 2014 hvetur til áframhaldandi samtals við Ríkisútvarpið um framtíð morgun-
og kvöldbæna á dagskrá þess.
- Kirkjuþing 2014 leggur áherslu á að félagsmannatal þjóðkirkjunnar verði þróað áfram.