Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 28

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 28
28 29 - Kirkjuþing 2014 hvetur til að ekki verið hnikað frá því að lögbundin félagsgjöld kirkjunnar, sóknargjöldin, skili sér til kirkjunnar að fullu. -Kirkjuþing 2014 fagnar skipan viðræðunefndar kirkjunnar við ríkisvaldið um kirkjujarðasamkomulagið og væntir þess að staðið verði við núgildandi samning. Kirkjuráð hefur tekið mið af ályktunum kirkjuþings við störf sín. 2. mál. Ályktun við skýrslu um fjármál þjóðkirkjunnar Kirkjuþing 2014 afgreiðir ársreikninga þjóðkirkjunnar fyrir árið 2013 um einstaka sjóði, stofnanir og viðfangsefni þjóðkirkjunnar athugasemdalaust. Farið hefur verið yfir fyrirliggjandi endurskoðunarskýrslu til kirkjuþings frá Ríkisendurskoðun. Kirkjuþing staðfestir að reikningshald kirkjulegra embætta, stofnana og sjóða fyrir árið 2013 hafi hlotið fullnægjandi endurskoðun. Undanfarin sex ár hefur þjóðkirkjan og söfnuðir hennar tekið á sig tekjuskerðingu sem í heild nemur um 6,5 milljörðum króna. Annars vegar er þar um að ræða lögbundin sóknargjöld, félagsgjöld, sem ríkið innheimtir og hins vegar samningsbundnar greiðslur vegna kirkjueigna sem ríkinu voru afhentar með sérstöku samkomulagi frá 1997. Kirkjujarðasamkomulagið fjallar um afhendingu kirkjujarða til ríkisins á móti skuldbindingu um að greiða laun presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar. Þjóðkirkjan hefur ekki vikist undan ábyrgð og fallist á skerðingu á kirkjujarðasamkomulaginu undanfarin ár. Uppsöfnuð skerðing frá árinu 2010 vegna kirkjujarðasamkomulagsins er um 2,1 milljarður króna. Kirkjuþing væntir þess að fyrirhugaðar viðræður ríkis og kirkju um endurskoðun 3. greinar kirkjujarðasamkomulagsins leiði til þess að staðið verði við samninginn. Sóknargjöldin eru lögbundin félagsgjöld sem ganga til reksturs safnaða þjóðkirkjunnar, annarra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga um land allt. Óumdeilt er að sóknargjöld hafa verið skert mun meira en framlög til stofnana innan ríkis ráðuneytisins. Frá fjárlögum ársins 2008- 2014 hafa sóknargjöld lækkað sem nemur um 25% umfram framlög til stofnana innan ríkis- ráðuneytisins, samanber skýrslu nefndar innanríkisráðherra til að meta áhrif nið ur skurðar fjárveitinga á starfsemi þjóðkirkjunnar frá apríl 2012 og skýrslu starfshóps um fjárhagsleg málefni þjóðkirkjunnar og safnaða hennar frá maí 2014. Enn meira vantar upp á að sóknargjöldin séu í samræmi við lög um sóknargjöld o.fl. nr. 91/1987. Uppsöfnuð skerðing til þjóðkirkjusafnaða vegna sóknargjaldanna á árunum 2008-2014 er um 4,4 milljarðar króna. Kirkjuþing 2014 treystir því að stjórnvöld standi við fyrirheit sem gefin hafa verið um leiðréttingu sóknargjalda, þannig að gengið verði frá samningi ríkis og kirkju um gjöldin á næstu mánuðum. Ennfremur treystir kirkjuþing því, að fyrirhugaðar viðræður ríkis og kirkju um endurskoðun 3. greinar kirkjujarðasamkomulagsins leiði til þess að staðið verði að fullu við það. 4. mál. Þingsályktun um frumvarp til þjóðkirkjulaga. Kirkjuþing 2014 samþykkir að löggjafarnefnd vinni málið áfram og safni saman þeim ábendingum og tillögum sem fram hafa komið. Löggjafarnefnd leggur til við kirkjuþing 2014 að óskað verði eftir því við kirkjuráð að kalla eftir umsögnum héraðsfunda og héraðs nefnda. Löggjafarnefnd mun leggja fram tillögu um frekari meðferð málsins á kirkju þingi 2015.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.