Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Blaðsíða 28
28 29
- Kirkjuþing 2014 hvetur til að ekki verið hnikað frá því að lögbundin félagsgjöld
kirkjunnar, sóknargjöldin, skili sér til kirkjunnar að fullu.
-Kirkjuþing 2014 fagnar skipan viðræðunefndar kirkjunnar við ríkisvaldið um
kirkjujarðasamkomulagið og væntir þess að staðið verði við núgildandi samning.
Kirkjuráð hefur tekið mið af ályktunum kirkjuþings við störf sín.
2. mál. Ályktun við skýrslu um fjármál þjóðkirkjunnar
Kirkjuþing 2014 afgreiðir ársreikninga þjóðkirkjunnar fyrir árið 2013 um einstaka
sjóði, stofnanir og viðfangsefni þjóðkirkjunnar athugasemdalaust. Farið hefur verið yfir
fyrirliggjandi endurskoðunarskýrslu til kirkjuþings frá Ríkisendurskoðun. Kirkjuþing
staðfestir að reikningshald kirkjulegra embætta, stofnana og sjóða fyrir árið 2013 hafi
hlotið fullnægjandi endurskoðun.
Undanfarin sex ár hefur þjóðkirkjan og söfnuðir hennar tekið á sig tekjuskerðingu
sem í heild nemur um 6,5 milljörðum króna. Annars vegar er þar um að ræða lögbundin
sóknargjöld, félagsgjöld, sem ríkið innheimtir og hins vegar samningsbundnar greiðslur
vegna kirkjueigna sem ríkinu voru afhentar með sérstöku samkomulagi frá 1997.
Kirkjujarðasamkomulagið fjallar um afhendingu kirkjujarða til ríkisins á móti
skuldbindingu um að greiða laun presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar. Þjóðkirkjan hefur
ekki vikist undan ábyrgð og fallist á skerðingu á kirkjujarðasamkomulaginu undanfarin ár.
Uppsöfnuð skerðing frá árinu 2010 vegna kirkjujarðasamkomulagsins er um 2,1 milljarður
króna. Kirkjuþing væntir þess að fyrirhugaðar viðræður ríkis og kirkju um endurskoðun
3. greinar kirkjujarðasamkomulagsins leiði til þess að staðið verði við samninginn.
Sóknargjöldin eru lögbundin félagsgjöld sem ganga til reksturs safnaða þjóðkirkjunnar,
annarra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga um land allt. Óumdeilt er að sóknargjöld hafa verið
skert mun meira en framlög til stofnana innan ríkis ráðuneytisins. Frá fjárlögum ársins 2008-
2014 hafa sóknargjöld lækkað sem nemur um 25% umfram framlög til stofnana innan ríkis-
ráðuneytisins, samanber skýrslu nefndar innanríkisráðherra til að meta áhrif nið ur skurðar
fjárveitinga á starfsemi þjóðkirkjunnar frá apríl 2012 og skýrslu starfshóps um fjárhagsleg
málefni þjóðkirkjunnar og safnaða hennar frá maí 2014. Enn meira vantar upp á að
sóknargjöldin séu í samræmi við lög um sóknargjöld o.fl. nr. 91/1987. Uppsöfnuð skerðing til
þjóðkirkjusafnaða vegna sóknargjaldanna á árunum 2008-2014 er um 4,4 milljarðar króna.
Kirkjuþing 2014 treystir því að stjórnvöld standi við fyrirheit sem gefin hafa verið um
leiðréttingu sóknargjalda, þannig að gengið verði frá samningi ríkis og kirkju um gjöldin
á næstu mánuðum. Ennfremur treystir kirkjuþing því, að fyrirhugaðar viðræður ríkis og
kirkju um endurskoðun 3. greinar kirkjujarðasamkomulagsins leiði til þess að staðið verði
að fullu við það.
4. mál. Þingsályktun um frumvarp til þjóðkirkjulaga.
Kirkjuþing 2014 samþykkir að löggjafarnefnd vinni málið áfram og safni saman þeim
ábendingum og tillögum sem fram hafa komið. Löggjafarnefnd leggur til við kirkjuþing 2014
að óskað verði eftir því við kirkjuráð að kalla eftir umsögnum héraðsfunda og héraðs nefnda.
Löggjafarnefnd mun leggja fram tillögu um frekari meðferð málsins á kirkju þingi 2015.