Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 32

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 32
32 33 kirkjuráði sem dagsett var þann 20. apríl sl. varðandi sóknargjaldamálið. Þar óskaði kirkjuráð eftir því að samningur um greiðslur á þeirri umframskerðingu á sóknargjöldum sem orðið hefur komi til framkvæmda fyrir kirkjuþing 2015. Enn hefur skriflegt svar ekki borist en á fundum biskups og ráðherra hafa þessi mál verið rædd síðan. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2016 er hækkun á sóknargjöldum 9,8% milli ára. -Kirkjujarðasamkomulagið Þann 24. apríl sl. fór forseti kirkjuráðs á fund innanríkisráðherra og afhenti bréf frá kirkjuráði varðandi kirkjujarðasamkomulagið Í bréfinu var skorað á íslenska ríkið að virða skuldbindingar sínar gagnvart íslensku þjóðkirkjunni. Enn hefur skriflegt svar ekki borist en á fundum biskups og ráðherra hafa þessi mál verið rædd síðan. Í framhaldi af fundi biskups og ráðherra 2. júlí sl. þar sem fram kom að ríkið myndi leggja til frekari niðurskurð á samkomulaginu árið 2016 og að sóknargjöldin myndu ekki hækka árið 2016, ákvað biskup Íslands að boða til fundar. Fundurinn var haldinn í Neskirkju þann 10. júlí sl. til að ræða vanefndir ríkisins á kirkju jarða sam komu laginu. Fundinn sátu aðal- og varamenn í kirkjuráði, vígslubiskupar, starfsfólk Biskupsstofu, prófastar, fv. forseti kirkjuþings, forsætisnefnd kirkjuþings og formenn fastanefnda kirkjuþings, fulltrúar Prestafélags Íslands, lögmenn og almannatengslafólk. Niðurstaða fundarins var að boðað yrði til aukakirkjuþings til að taka afstöðu til tillögu að viðbótarsamkomulagi við samkomulag Íslenska ríkisins og Þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna Þjóðkirkjunnar frá árinu 1997. Fundur kirkjuþings var haldinn í Grensáskirkju þann 14. ágúst. 7. maí 2014 skipaði kirkjuráð fulltrúa kirkjunnar í viðræðunefnd við ríkisvaldið. Nefndin sem í sátu sr. Gísli Gunnarsson, sóknarprestur og kirkjuþingsmaður, Inga Rún Ólafsdóttir, fyrrv. kirkjuþingsmaður og Valgerður Sverrisdóttir. fyrrv. ráðherra, skiluðu umboði og vinnugögnum sínum til kirkjuráðs á fundi 13. október sl. Af hálfu ríkisins hafa enn ekki verið skipaðir fulltrúar í viðræðunefnd um endurskoðun 3. greinar kirkjujarða- samkomulagsins og hafa viðræður því ekki hafist. Fasteignasvið Kirkjuþing 2014 samþykkti niðurfellingu fasteignanefndar þjóðkirkjunnar. Með því varð sú breyting á stjórnsýslu kirkjuráðs að fasteignasviði Biskupsstofu er falin ýmis umsýsla sem fasteignanefndin hafði áður. Hlutverk kirkjuráðs hvað varðar fasteignir er m.a. að taka ákvarðanir um nýbyggingar fasteigna, kaup og sölu fasteigna, að staðfesta langtímasamninga o.fl. en fasteignasvið sinnir almennum daglegum rekstri og umsýslu fasteigna undir stjórn sviðsstjóra. Fasteignir kirkjumálasjóðs eru um 79 talsins. Skálholt er talin ein fasteign þótt á jörðinni standi mörg hús, s.s. dómkirkjan, vígslubiskupshús, prestsbústaður, bændabýli, sumarhús o.fl. Hið sama á við um fleiri jarðir í eigu kirkjumálasjóðs þar sem mörg hús standa. Af þessum eignum eru 52 prestssetur og þrjú biskupssetur. Unnið var að umsýslu og viðhaldi fasteigna kirkjumálasjóðs á starfsárinu undir stjórn kirkjuráðs, í samræmi við starfsreglur og áætlanir þar að lútandi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.