Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Síða 34
34 35
- Leigusamningur um rekstur á gisti- og veitingaþjónustu í Skálholtsskóla.
Fyrra kirkjuráð samþykkti í október sl. að ljúka gerð samnings við Óla Jón Ólason um útleigu á
gisti- og veitinga þjónustu í Skálholti. Skyldi gengið frá samningi eftir að úttekt hefði verið gerð
á ástandi húsnæðisins. Ástands mat á hús næði Skál holts skóla leiddi í ljós að veru legra endur-
bóta var þörf á húsnæðinu og m.a. væru fimm herbergi í húsinu ekki hæf til út leigu vegna
myglu svepps. Áætlaður kostnaður var talinn verulegur. Kirkju ráð tók fyrir ætlun um út leigu
hús næðis ins til umræðu að nýju, m.a. í ljósi úttektarinnar en ljóst var að leggja þyrfti í veru legar
endur bætur á leiguhúsnæðinu ef þær tekjur ættu að fást sem gengið var út frá í rekstrar áætlun
leigu takans. Kirkju ráð ákvað að falla frá gerð fyrir hugaðs leigu samnings þar sem for sendur fyrir
út leigu væru brostnar. Óli Jón Ólason krafðist bóta vegna málsins og var sam þykkt að greiða
honum kr. 3 miljónir og greiðslu lögfræðikostnaðar kr. 150 þúsund. Bæturnar voru greiddar
vegna þess kostnaðar sem Óli Jón hafði haft af samnings gerðinni svo og vegna óhagræðis sem
hann varð fyrir vegna bókana ferða hópa í Skál holts skóla næsta sumar. Séra Gísli Gunnarsson,
kirkju ráðsmaður óskaði eftir að bókað yrði að hann væri andvígur afgreiðslu málsins.
- Skipun stjórnar Skálholtsstaðar
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á kirkjuþingi 2014:
„Kirkjuþing mælist til þess við kirkjuráð að skoða, hvort málefnum Skálholtsstaðar yrði
það til gagns að skipuð yrði þriggja manna stjórn Skálholtsstaðar og jafn margir til vara,
er annist í umboði biskups og kirkjuráðs, ásamt vígslubiskupi uppbyggingu og rekstur
staðarins í samræmi við lög um afhendingu Skálholts frá 1963, starfsreglur kirkjuþings og
samþykktir kirkjuráðs.“
Kirkjuráð ákvað að skipa eftirfarandi einstaklinga í starfsstjórn Skálholts til fjögurra ára:
Aðalmenn
Formaður: Drífa Hjartardóttir, bóndi og kirkjuþingsmaður
Kristófer Tómasson, sveitastjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Sr. Þorvaldur Karl Helgason, fyrrv. biskupsritari
Varamenn
Þórarinn Þorfinnsson, bóndi
Jónína Bjartmarz, lögfræðingur og kirkjuþingsmaður
Sr. Þorvaldur Víðisson, biskupsritari.
-Skipun skólaráðs Skálholtsskóla.
Í 11. gr. starfsreglna um kirkjuráð er greint frá því að kirkjuráð skuli skipa Skólanefnd
Skálholtsskóla, sbr. lög um Skálholtsskóla nr. 22/1993. Kirkjuráð skal skipa þrjá aðalmenn
og þrjá til vara, til fjögurra ára í senn frá og með 1. júlí árið eftir kirkjuþingskjör og
jafnframt ákveða hver er formaður og varamaður hans.
Skólaráð Skálholtsskóla er skipað eftirfarandi einstaklingum:
Aðalmenn:
Ásborg Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi Árnessýslu,
Ásdís Guðmundsdóttir Háskóla Íslands,
Hreinn Hákonarson fangaprestur.