Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 60

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 60
60 61 gangi frá samkomulagi um rekstur Skálholtsdómkirkju milli Skálholtssóknar og Skálholtsstaðar og um afnot annarra af kirkjunni eins og t.d. til helgiathafna, tónleika eða tónlistarupptöku.) hefur verið gengið frá drögum að samkomulagi milli Skálholtsstaðar og Skálholtssóknar um skiptingu rekstarkostnaðar Skálholtskirkju. Gengið er út frá því að Skálholtssókn greiði 20% heildarkostnaðar á móti 80% Skálholtsstaðar, en að upphæð þess kostnaðar sem sóknin greiðir fari þó aldrei upp fyrir 30% af heildarinnkomu sóknargjalda Skálholtssóknar á ári hverju. Tekjur sem verða til þegar kirkjan er vettvangur tónleikahalds þar sem greitt er fyrir aðgang skiptist með sama hætti. Meginreglan er sú að lágmarksgjald fyrir tónleika sé 30. þús.kr. eða 10% af innkomu fyrir seldan aðgang. Þó aldrei minna en 30 þúsund krónur. 4. Í þessu samkomulagi er undanskilin hlutdeild sóknarinnar í launum organistans í Skálholti. Þar á Skálholtssókn hlutdeild í samkomulagi allra sókna hins gamla Skálholtsprestakalls (áður en það var sameinað Mosfellsprestakalli og Þingvallaprestakalli.). Sóknirnar hafa undanfarin ár greitt 25% launa organistans, vegna fjárhagserfiðleika sinna, en upphaflegur samningur gerði ráð fyrir að Skálholtsstaður greiddi 65% launanna en ekki 75%. Í ljósi breyttra aðstæðna og sameiningar Mosfells- og Skálholtsprestakalla telur stjórnin eðlilegt að Skálholtsstaður endurskoði hlutfall sitt í launum organistans. Endurskoða þarf ennfremur starfslýsingu og erindisbréf organistans í ljósi þessa og einnig vegna þess að síðan á haustmánuðum 2014 er barnastarf í Skálholtskirkju fyrir allar sóknir prestakallsins á laugardögum, vikulega í um það bil 30 vikur, með aðstoð og skyldumætingu organistans. Þessi hluti starfsins var ekki fyrirséður við ráðningu hans 2009. 5. Ófrágenginn en í drögum er tilbúinn samningur Skálholtskirkju og kirkjuvarðar á ársgrundvelli. Hinn fastráðni kirkjuvörður er ábyrgur fyrir útförum innan sóknar sem utan og heldur utan um þær, sem og annað kirkjustarf utan þess tíma sem sumarstarfsmenn starfa ekki. 6. Að tilmælum Ríkisendurskoðunar hefur einnig verið gengið frá drögum að skipulagsskrá fyrir Þorlákssjóð, sem heita skal Áheitasjóður Þorláks helga, sem ætlað er að standa einkum straum af viðhaldi og endurnýjun skrúða og annars búnaðar kirkjunnar vegna helgihaldsins. Lögfræðingur Biskupsstofu er með skipulagsskrána í skoðun. 7. Bókasafn Skálholtsstaðar er sem kunnugt er að mestu varðveitt í turni Skálholtsdómkirkju. Ríkisendurskoðun telur að ekki eigi að færa bókasafnið til eignar í ársreikningi Skálholtsstaðar. Ákveðið hefur verið að afskrifa safnið að fullu á þremur árum í samræmi við þá reikningsskilavenju að þjóðargersemar af þessu tagi séu ekki verðlagðar í ársreikningi. Umsjónarmaður safnsins, Hildur Eyþórsdóttir hefur skilað af sér gögnum og tölvu þeirri sem geymir skráninguna. Nú er brýnt að ljúka því verki sem skráningunni fylgir: Samræma skráninguna að fullu við skráningakerfi Landsbókasafns á Þjóðarbókhlöðu, bera saman skráninguna við bókakostinn í safninu, einkum og sér í lagi verðmætasta hluta safnsins, Hólaprent, Skálholtsprent og Hrappseyjarprent, og koma þeim hluta safnsins í örugga geymslu. Skálholtsstaður. Stærsta verkefni Skálholtsstaðar á ári hverju er þjónusta við staðinn sjálfan, og við ferðamenn. Þjónustan við staðinn er umsjón með fasteignum og umhirða kringum kirkju og staðarhús. Til þess að vel takist til þarf að vera nægilegur fjöldi starfsfólks. Ófullnægjandi er orðið að miða við að þetta starfsfólk sé einungis starfandi frá júníbyrjun þar til skólar hefjast seint í ágúst.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.