Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Blaðsíða 63
63
Halldór hefur unnið að gerð fræðsluverkefna, námskeiða og málþinga og lagt fram verkefnalista þar
að lútandi. Hafa nokkur þeirra verkefna þegar farið af stað. Einnig hafur hann endurheimt allmörg
námskeið fyrir kirkjustarfsfólk sem áður voru fastur liður í starfsemi Skálholtsskóla.
Þar má nefna námskeið vegna barnastarfs kirkjunnar, um verklag í viðkvæmum aðstæðum,
fræðslu fund prófasts dæmanna, námskeið um fermingarstörf byggt á bókinni Con Dios. Þá má
nefna að pílagríma dagar verða haldnir um miðjan nóvember, svo og kyrrðardagar og samverur fyrir
syrgjendur í vetur og vor.
Kirkjuráð hefur skipað nýtt skólaráð Skálholtsskóla. Í því sitja sem aðalmenn Hreinn Hákonarson,
fanga prestur og kirkjuþingsmaður, Ásdís Guðmundsdóttir frá Háskóla Íslands og Ásborg Arnþórs-
dóttir ferðamálafulltrúi. Til vara Runólfur Smári Steinþórsson, frá HÍ, Sigurður Sigursveinsson frá
háskóla neti Suðurlands og Margrét Bóasdóttir verkefnisstjóri kirkjutónlistar.
Áherslur stjórnar Skálholts almennt.
Stjórn Skálholts mun setja á oddinn eftirfarandi málefni fyrir árið 2016:
1. Betri nýting Skálholtsskóla.
Nýting á skólans þarf að vera betri mánuðina janúar og febrúar, nóvember og desember. Jafnframt
því að leggja áherslu á fleiri námskeið og ráðstefnur sem þjóna málefnum kirkjunnar, verður aukið
samstarf við aðila eins og Fræðslunet Suðurlands, Háskóla Íslands og Listaháskólann. Samstarf
við þau sem skipuleggja dvöl skólahópa frá Bretlandseyjum verður aukið, sem og við Meredith
College í BNA sem aftur sendir hóp í Skálholt til mánaðardvalar í júní 2016, en nemendur og
kennarar skólans hafa komið reglulega annað hvort ár um nokkurra ára skeið.
2. Betri nýting annars húsnæðis í Skálholti.
Með stuðningi fasteignasviðs/kirkjumálajóðs verður húsnæði Skálholtsbúða, bæði stóra skála og
Oddsstofu auk litlu húsanna þriggja, lagfært og endurbætt verulega á þessu hausti og á næsta
ári. Með því skapast fleiri og betri tækifæri til nýtingar og þar með einnig hækkunar á gjaldskrá.
Kjallari biskupshúss og íbúðin undir bílskúrnum hafa nýst vel undanfarin sumur sem húsnæði fyrir
starfsfólk. Endurhanna má skipulag kjallarans með það fyrir augum að nýta hann enn frekar.
3. Samningar við Sumartónleika í Skálholti.
Stjórnin telur mikilsvert að áfram verði Sumartónleikar í Skálholti. Til þess að svo megi verða þarf
að ganga frá nýju samkomulagi um samstarf Sumartónleikanna og Skálholtsstaðar og finna leiðir
til þess að tryggja fjármögnun þeirra.
4. Styrkir.
Stjórn Skálholts hefur sótt um styrki til verkefna í Skálholti, sérstaklega þeirra verkefna sem tengjast
þjónustunni við ferðamenn, og minjavernd á staðnum og þar með talið vinnuna við deiliskipulagið.
Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi uppsveitanna er stjórninni til aðstoðar við það.
5. Fjármál.
Stjórnin hefur þurft að fást við óbreyttan rekstur Skálholtsstaðar en mikla skerðingu á framlagi úr
kirkjumálasjóði til rekstrarins. Á árinu 2014 var framlagið 7 m. kr. en ekkert var veitt úr sjóðnum á
yfirstandandi ári.
Stjórnin fagnar því að kirkjuráð hefur samþykkt að greiða niður á næstu þremur árum uppsafnaða