Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Síða 64

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Síða 64
64 65 skuld frá fyrri árum og áratugum. Skuldin er til komin vegna uppbyggingar á staðnum, stækkun skólahúsnæðis og fleira. Unnið hefur verið að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 í ljósi rekstrar yfirstandandi árs og ára. Í samþykktum kirkjuráðs frá 2012 segir um rekstrarform staðarins: Starfsemin er áfram rekin sem ein skipulagsheild undir kennitölu Skálholts. Stjórnin hefur rætt þetta fyrirkomulag með það í huga að leggja fram breytingar á skipan fjármála Skálholts, þannig að í uppsetningu í bókhaldi verði rekstur staðarins vel aðgreindur frá rekstri skólans og það sem tilheyrir báðum aðilum. Það er mat stjórnar að með því fáist skýrari sýn á hvað tilheyrir hinum fasta rekstri og hvað er meira tilfallandi og háð tekjum skólans við rekstur og utanumhald. Ekki er talin þörf á að snúa aftur til þess er Skálholt var rekið með tveimur kennitölum, og bókhald algjörlega aðskilið. Leitað verður eftir samþykkti kirkjuráðs við þessum hugmyndum svo og áliti ríkisendurskoðunar, þegar þær hafa verið útfærðar nánar. 6. Starfsþjálfun prestsefna. Stjórnin vill vinna að því að efla starfsþjálfun prestsefna og djáknanema eftir því sem við á, með því að hluti starfsþjálfunar fari fram í Skálholti. Öll aðstaða í skólahúsnæði og kirkju er fyrir hendi. Hugmyndin er ekki ný af nálinni, enda var „prestaskóli“ ein af meginhugmyndum sem voru uppi þegar farið af stað með uppbygginguna í Skálholti á sínum tíma. Starfsþjálfun hefur farið fram í Skálholti fyrir prestsefni, en ekki reglubundið, en stjórninni finnst tímabært að skoða alvarlega að starfsþjálfunin verði fastur starfsþáttur í Skálholti, hina fornu skóla- og fræðslusetri kirkjunnar. Stjórninni er kunnugt um að eitt af málum á kirkjuþingi 2015 fjallar um starfsþjálfunina og hvernig megi efla hana. Ábyrgð og samstarf Hinn forni helgistaður Skálholt er var afhentur kirkjunni 1963 til eignar og ábyrgðar. Kirkjunni ber að standa að því að staðurinn verði kirkju og þjóð til sóma og megi gagnast til eflingar kristni í landinu. Til þess þarf ekki hvað síst sem víðtækast samstarf allra innan kirkjunnar. Stjórn Skálholts vonar að svo megi verða og mun leggja sig fram um að axla þá ábyrgð sem lögð er henni á herðar í þeim efnum. Stjórnin þakkar kirkjuráði það traust sem stjórnarmönnum er sýnd með skipan þeirra í stjórnina. Virðingarfyllst Drífa Hjartardóttir Kristófer Tómasson Þorvaldur Karl Helgason Fylgiskjöl: Erindisbréf Stjórnar Skálholts Fjárhagsáætlun 2016 Yfirlit yfir lausafé í Skálholti – bráðabirgða yfirlit
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.