Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 85
85
2. Þegar staðlar hafa verið ákveðnir fylgist biskup með því hvernig gengur að ná þeim
með reglubundnu eftirliti. Kirkjuráð hefur eftirlit með fjármálum
3. Biskup ásamt kirkjuráði hefur tilsjón með prófastsdæmum próföstum, prestum,
sóknarnefndum og starfsfólki kirkjunnar. Tilsjónin felst í því að fylgjast með hvernig
gengur að ná fyrirfram ákveðnum stöðlum. Biskup og kirkjuráð skila skýrslu til
kirkjuþings á hverju ári. Kirkjuráð hefur tilsjón með fjármálum en biskup með öðru.
III. Mannauðsstefna
Mikilvægt er að færa mannauð kirkjunnar til þess horfs sem mest þörf er á hverju sinni.
Að vissu leyti er hér um sístætt verkefni að ræða, þar sem síbreytilegar aðstæður krefjast
síbreytilegs mannauðs. Stefnt verði að því að auka styrk mannauðs á þeim sviðum sem
þörf er á, sérstaklega á sviði barna- og æskulýðsstarfs en einnig á sviði stjórnunar.
Tekið verði til endurskoðunar hvaða kröfur þjóðkirkjan þarf að gera til presta, djákna
og annars starfsfólks.
Skoða þarf að gera gagnvirka ráðningasamninga við nýráðna presta. Allir ráðningar-
samningar presta sem undirritaðir verða eftir gildistöku nýrrar stefnumótunar verði með
ákvæðum um starfsþróun. Í því sambandi er m.a. hægt að skoða:
1. Að prestur geti óskað eftir menntun sem hann telur að nýtist sér í starfi. Þá geti biskup
falið presti að kenna öðrum starfmönnum kirkjunnar, búi hann yfir sérþekkingu eða
hæfni sem biskup telur að sé mikilvæg. Embættismaður fái afleysingu þegar biskup
felur honum slíkt nám eða kennslu og ekki verði greitt aukalega fyrir það.
2. Prestum sé skylt að taka á móti eftirlitsaðila á vegum biskups og veita honum alla
aðstoð varðandi gæðamat í viðkomandi prestakalli hvenær sem þess er óskað.
3. Biskupi sé heimilt að auglýsa embætti laust til umsóknar, sé það álit hans að verulegur
misbrestur sé á að gæðastöðlum og markmiðum hafi verið náð og hafi áminningum
biskups ekki verið sinnt.
4. Öllum prestum verði boðið að gerður verði við þá ráðningasamningur með sama hætti
og við nýja presta. Ekki er gert ráð fyrir að ný mannauðsstefna hafi áhrif á þá presta
sem nú eru í starfi nema þeir óski þess.
5. Einungis verði veitt námsleyfi til náms sem biskup telur að muni nýtast í starfi og
samræmist mannauðsmarkmiðum kirkjunnar.
6. Lögð verði áhersla á að nýja tegund embætta (djákna, presta eða annarra?) þar sem
sérþekkingar sé krafist í barna og æskulýðsstarfi.
7. Hluti af gæðakröfum til prófastsdæma verði að þau komi sér upp vel menntuðum
starfsmanni með sérþekkingu á barna og æskulýðsstarfi.
IV. Meginhugmyndir um verkaskiptingu
Biskupsstofa
• Nefndin hefur fjallað nokkuð um biskupsstofu og ákveðið að gera tillögu að starfsreglum
fyrir hana. Hún hefur sett sér það markmið að þær verði tilbúnar fyrir seinni hluta
kirkjuþings 2015. Ef hins vegar þingið klárast nú í haust, þá verði starfsreglum skilað
inn á kirkjuþingi 2016.