Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Side 97

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Side 97
97 5. Hvort óskað hafi verið eftir þjónustu matsnefndar. 6. Frá hvaða tíma og til hve langs tíma skipað er í embættið. 7. Að umsækjendur leggi fram prófskírteini og staðfestingu um að viðkomandi hafi lokið starfsþjálfun. Einnig vottorð um aðra menntun og þjálfun sem nýtist í starfi. 8. Upplýsingar um starfsferil og annað það sem umsækjendur telja nauðsynlegt að fram komi. 9. Umsækjendur skili greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn og væntingar er varða embættið. 10. Að umsækjandi skuli leggja fram sakavottorð. 11. Hvenær umsóknarfrestur um embættið rennur út. 12. Hver veitir nánari upplýsingar um embættið, starfskjör, erindisbréf og helstu lög og reglur sem um starfið gilda. 13. Hvort prestssetur fylgir embættinu. 14. Að sótt skuli um embættið á þar til gerðu eyðiblaði biskupsstofu. 15. Að matsnefnd fjalli um umsóknir, hafi kjörnefnd óskað eftir þjónustu matsnefndar, samkvæmt starfsreglum þessum. 16. Að heimilt sé að óska eftir almennum prestskosningum samkvæmt lögum nr. 78/1997. 17. Að skylt er, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að upplýsingum um nöfn og starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn. Áður en biskup sendir umsóknir til meðferðar matsnefndar skal hann gæta þess að umsækjandi uppfylli skilyrði til skipunar, samkvæmt 38. gr. laga nr. 78/1997, þar með talið starfsþjálfun samkvæmt nánari ákvæðum í starfsreglum um þjálfun prestsefna nr. 788/2002. Biskup Íslands skal leita eftir samþykki umsækjenda til þess að fá aðgang að upplýsingum úr sakaskrá. Synji hlutaðeigandi umsækjandi um heimild til þess, er óheimilt að setja, skipa eða ráða hann til starfa. Óheimilt er að ráða til starfa einstakling til að sinna börnum og ungmennum undir 18 ára aldri, sem hlotið hefur refsidóm vegna brota á eftirtöldum lagabálkum: a) Barnaverndarlögum nr. 80/2002. b) Almennum hegningarlögum nr. 19/1940, þ.e. kynferðisbrot skv. 22. kafla, önnur ofbeldisbrot, skv. 23. kafla og brot gegn frjálsræði manna, skv. 24. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, að undanskildum minniháttar líkamsmeiðingum samkvæmt 217. gr. c) Lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sem og 173. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og hlotið refsidóm á fimm undangengnum árum. Biskup Íslands skal auglýsa laust embætti í Lögbirtingablaði og á öðrum opinberum vettvangi og skal umsóknarfrestur ekki vera skemmri en fjórar vikur frá útgáfudegi blaðsins. Sæki enginn um skal embættið auglýst að nýju. Skal að jafnaði auglýsa innan þriggja mánaða frá birtingu fyrri auglýsingar, nema ef sérstaklega stendur á. Biskup skal afla og varðveita lista yfir þá sem eru atkvæðisbærir í prestakalli þegar auglýsing er birt.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.