Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Side 98

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Side 98
98 99 4. gr. Tímabundin setning í prestsembætti og embættisskipti. Biskupi er heimilt að fengnu áliti/umsögn sóknarnefnda/héraðsnefnda að setja í embætti án auglýsingar tímabundið, falli sá frá sem skipaður hefur verið eða er fjarverandi um lengri tíma vegna veikinda, fæðingarorlofs eða af öðrum ástæðum. Óski prestur/prestar heimildar til embættaskipta, getur biskup að fengnu áliti/umsögn sóknarnefnda/héraðsnefnda leyft tímabundin embættaskipti presta, að hámarki í eitt ár. Engar bætur verða greiddar ef laun lækka við embættaskiptin. Biskupi er heimilt að flytja presta úr einu embætti í annað með samþykki viðkomandi sóknarnefnda eða héraðsnefnda ef við á. Flytjist maður í annað embætti sem er lægra launað en fyrra embættið, skal greiða honum launamismuninn þann tíma sem eftir er af skipunartíma hans í fyrra embættinu. 5. gr. Matsnefnd um hæfni til prestsembættis. Biskup Íslands skipar þriggja manna matsnefnd til að meta hæfni umsækjenda um laus prestsembætti. Biskup tilnefnir einn fulltrúa. Biskup skipar formann úr hópi nefndar- manna. Kirkjuþing tilnefnir tvo fulltrúa og tvo til vara til eins árs í senn. Nefndarmenn sitji ekki lengur en fjögur ár samfellt. Biskup og kirkjuþing skulu gæta þess að í matsnefnd veljist fólk með haldgóða þekkingu á starfsemi þjóðkirkjunnar og mannauðsmálum. Jafnframt að í nefndinni sitji fólk af báðum kynjum í samræmi við jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar Presta félag Íslands og viðkomandi kjörnefnd/héraðsnefnd er heimilt að tilnefna einn áheyrnarfulltrúa hvort til setu á fundum nefndarinnar. Formaður matsnefndar er í fyrirsvari fyrir nefndina og stýrir störfum hennar, fundum og gagnaöflun. Í sérstökum tilvikum er matsnefnd heimilt að kveða til utanaðkomandi sérfræðinga, nefndinni til ráðgjafar. Um sérstakt hæfi matsnefndarmanna fer eftir ákvæðum II. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Nefndarmönnum og áheyrnarfulltrúum er skylt að gæta þagmælsku um viðkvæmar upplýsingar sem leynt eiga að fara er varða umsækjendur og þeir fá vitneskju um í starfi sínu. Þagnarskylda helst þó látið sé af störfum í nefndinni. Að öðru leyti gilda ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og upplýsingalaga nr. 140/2012 um meðferð umsókna eftir því sem við á. 6. gr. Störf matsnefndar. Meta skal hvernig umsækjendur uppfylla sérstök skilyrði og hæfni samkvæmt þarfagreiningu sem áskilin eru í auglýsingu. Að öðru leyti skal við mat á hæfni umsækjenda horfa til eftirfarandi: menntunar, starfsferils og starfsreynslu. Matsnefnd skilgreinir prósentuvægi einstakra viðmiða og greinir viðmiðin í þætti og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.