Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Síða 99
99
skilgreinir hvernig stig eru gefin fyrir hvern þátt og hvaða þættir hafa áhrif. Matsnefnd
notar 0-10 stiga skala í starfi sínu þar sem 10 er hæst.
Matsnefnd gefur umsögn um hvaða umsækjendur uppfylli best þarfagreiningu sem
fyrir liggur.
Matsnefnd fer yfir og metur umsóknir, fylgiskjöl með þeim og aðrar upplýsingar frá
við komandi umsækjanda. Taki mats nefnd viðtöl við umsækjendur skal hún styðjast við
staðlað an spurningalista.
Matsnefnd getur, með samþykki umsækjenda, aflað frekari upplýsinga um þá og
starfsferil þeirra frá vinnuveitendum og öðrum sem samskipti hafa átt við umsækjendur
vegna starfa þeirra. Gæta ber jafnræðis umsækjenda.
Komi fram í gögnum, sem matsnefndin aflar, upplýsingar sem hún telur vera
umsækjanda í óhag skal kynna honum efni þeirra, frá hverjum þær koma og veita honum
tækifæri til að tjá sig um þær.
Eftir að vinna nefndarinnar við mat á umsóknum er hafin er henni ekki skylt að taka
við frekari umsóknargögnum, nema þau séu til að votta gögn sem fylgdu umsókn.
Matsnefnd skal sjá til þess að mál varðandi umsóknir séu nægilega upplýst.
Matsnefndin skal skila niðurstöðu innan fjögurra vikna frá því að umsóknarfrestur
rann út.
Ef sérstakar aðstæður valda tímaþröng, svo sem mikill fjöldi umsókna, getur biskup
veitt matsnefndinni allt að tveggja vikna viðbótarfrest til að skila niðurstöðu. Sóknarnefnd
og umsækjendum skal tilkynnt um framlengingu frestsins.
Í skýrslu matsnefndar skal vera skrifleg lýsing á matsferlinu og niðurstöðu þess þar
sem fram kemur hverja umsækjendur nefndin eða meirihluti hennar telur best fallna til
að gegna embættinu.
Matsnefnd velur að jafnaði þrjá hæfustu umsækjendurna en þó aldrei fleiri en fimm.
Þess skal gætt að kynjahlutfall sé sem jafnast.
Matsnefnd skal kynna umsækjendum niðurstöður sínar og gefa sjö daga frest til
skriflegra athugasemda.
Gefi athugasemdirnar tilefni til svara að mati meirihluta matsnefndar, skulu andmæli
og svör nefndarinnar fylgja endanlegri niðurstöðu. Umsækjendur eru bundnir trúnaði
um niðurstöður matsnefndarinnar.
Telji umsækjandi málsmeðferð matsnefndar áfátt er hún kæranleg til biskups innan
sjö daga. Biskup skal úrskurða um álitaefnið innan fimm daga. Að kæruferli loknu sendir
biskup kjörnefnd umsóknargögn, sbr. 8. gr.
Dragi umsækjandi umsókn sína til baka áður en endanleg niðurstaða liggur fyrir á
hann rétt á að ekki verði fjallað frekar um umsókn hans, enda fari hann fram á það með
skriflegum hætti. Ekki er þó hægt að óska nafnleyndar ef umsókn er dregin til baka eftir
að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 3. gr. hér að framan.
Matsnefndin sendir biskupi niðurstöðu sína um hvaða umsækjendur hún telur hæfasta
til að gegna prestsstarfinu sem og rökstuðning sinn.
Biskup skal hafa aðgang að öllum gögnum sem matsnefndin byggir mat sitt á.
Kostnaður af störfum matsnefndar greiðist af kirkjumálasjóði.