Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Qupperneq 8
8 Fréttir Vikublað 19.–21. apríl 2016
„Hingað koma engir peningar“
n Ferðaþjónustubændur horfa á ferðamenn úr fjarlægð n Dettifossvegur út af vegaáætlun
M
aður veit ekkert hvernig
maður á lengur að
smæla framan í heim
inn,“ segir Ævar Ísak
Sigur geirsson, verslunar
maður í Ásbyrgi, í samtali við DV. Á
dögunum var tilkynnt að fyrirhug
aðri vegatengingu á milli Detti
foss og Ás byrgis hefði verið kippt
út af Samgönguáætlun. Enn þurfa
heimamenn í Öxarfirði og nágrenni
því að horfa úr fjarlægð á ferða
mannastrauminn yfir vetrartímann
en um Mývatn og Dettifoss fer mik
ill fjöldi allt árið um kring. Slóðin úr
Ásbyrgi að Dettifossi, jafnt austan
sem vestan megin Jökulsár á Fjöll
um, er lokuð stærstan hluta ársins,
eða frá fyrstu vetrarveðrum þar
til snjóa leysir í lok maí eða júní.
Engin vetrarþjónusta er á leiðunum
austan og vestan megin árinnar.
Hljóðið í ferðaþjónustubændum
og verslunarmönnum við Öxarfjörð
er þungt. Erlendum ferðamönnum,
sem bóka gistingu, er oft, að sögn
heimamanna, ókunnugt um ástand
þeirra vega sem þeir sjá í GPStækj
um sínum. Afbókanir þeirra sem
ætla frá Dettifossi niður í Öxarfjörð
– um 24 kílómetrar í beinni loftlínu
– eru fremur regla en undantekn
ing. Þannig segir Olga Gísladóttir,
ferðaþjónustubóndi og sveitar
stjórnarmaður í Norðurþingi, að af
30 sem bókuðu gistingu í desem
ber, hafi tveir komið og gist. All
ir aðrir hafi hringt og boðað forföll
vegna ófærðar. Leiðin frá Detti
fossi að vestanverðu, um Mývatn,
Húsavík og Tjörnes, að Ásbyrgi í Öx
arfirði telur 168,4 kílómetra. Þessu
hafa ferðamenn sjaldnast gert ráð
fyrir, þegar þeir hringja og afpanta
gistingu undir kvöld.
Hitti ráðherra í mars
Olga segir að mikil óánægja sé með
ákvörðun ráðherra. Biðin eftir vega
úrbótum sé orðin ansi löng. Ferða
þjónustan – sem ætti að vera ein
helsta tekjulindin – líði mjög fyrir
stöðu vegamála. Þannig hafi ferða
þjónustan í Skúlagarði verið lokuð í
vetur, afbókanir hafi verið svo tíðar
að ekki hafi verið talið borga sig að
hafa opið.
Olga segist hafa hitt Ólöfu Nor
dal innanríkisráðherra þann 18.
mars síðastliðinn til að leggja á það
áherslu að ljúka við vegatenginguna
á milli Mývatnssveitar og Ásbyrg
is. Ákvörðunin um að blása út af
borðinu því sem áður hafði verið
boðið hafi því komið henni alveg í
opna skjöldu. „Þetta hefur áhrif al
veg austur til Raufarhafnar.“ Hún
nefnir að bæði Kópasker og Raufar
höfn séu á lista yfir Brothættar
byggðir, verkefni Byggðastofnunar
til að hjálpa byggðum sem berjast
í bökkum. „Það er skrýtið ef ríkis
valdið er ekki með okkur í því. Hér
binda menn miklar vonir við ferða
þjónustu.“
Aftur jákvæðir fyrir kosningar?
Í svipaðan streng tekur Benedikt
Björgvinsson, sem rekur gistiþjón
ustu á Kópaskeri og hefur gert um
árabil. Hann kannast einnig við
að fólk afbóki gistingu vegna lok
aðra vega beggja vegna Jökulsár.
„Maður finnur mun þegar þess
ir gömlu vegir – sem lagðir voru í
upphafi bifreiðaaldar – eru opnað
ir. Þá eykst umferðin.“ Hann telur að
opnun heilsársvegar úr Mývatns
sveit og niður í Öxarfjörð myndi tví
mælalaust auka umferð. „Það yrði
kannski ekki mikið yfir háveturinn
til að byrja með, en það munar um
allt.“
Benedikt, sem var í stjórn ferða
þjónustusamtakanna Norðurhjara,
segir að þingmenn sem mætt hafi
á samgönguráðstefnu sem félagið
hélt í september í fyrra hafi verið
mjög jákvæðir gagnvart fyrirhug
uðum vegaframkvæmdum. „Ég
veit ekki hvað hefur gerst hjá þeim
þegar þetta var samþykkt. Þing
menn verða örugglega aftur orðnir
jákvæðir fyrir kosningar næsta
haust. Þetta gufar upp þess á milli.“
Hann bendir á að ákvörðunin
gangi þvert gegn þeirri stefnu
að stuðla að því að dreifa
ferðamönnum betur um landið.
Benedikt segist þó fagna fyrirhug
uðum vegaframkvæmdum á þjóð
vegi 85, sem liggur um Kelduhverfi
að Bakkafirði. Það sé út af fyrir sig
jákvætt en nægi ekki til að bæta upp
fyrir vonbrigðin sem fylgdu Detti
fossveginum. Hann segir að sam
Ófært Eins og sjá má eru vegirnir sem tengja Mývatnssveit og Öxarfjörð, um Dettifoss, enn
ófærir. Aðeins er fært að fossinum sunnan frá. Dettifoss er stjörnumerktur á myndinni.
„Þingmenn verða
örugglega aftur
orðnir jákvæðir fyrir kosn-
ingar næsta haust. Þetta
gufar upp þess á milli.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Olga Gísladóttir Af 30 pöntunum í des-
ember voru 28 afbókaðar, að sögn Olgu.
„Við stöndum
hér og veitum
upplýsingar og hleypum
fólki á klósett
Verslunareigandinn Ísak segist
vera orðinn langþreyttur á biðinni
eftir veginum, sem myndi hleypa
fólki niður í Ásbyrgi yfir vetrartím-
ann. Mynd ÆVAr ÍsAk siGurGeirssOn
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is