Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Síða 10
Vikublað 19.–21. apríl 201610 Fréttir
Leit að guLLskipinu hefst á ný
L
eit að gullskipinu á Skeiðar-
ársandi mun hefjast á ný í
sumar eftir að hafa legið niðri
frá árinu 1983. Gísli Gíslason
frumkvöðull, sem fer fyrir
hópnum sem nú hyggst hefja leit á
sandinum, hitti á sunnudag Þórar-
in Kristinsson sem tók mikinn þátt í
síðustu leit að flakinu en sú leit stóð
í þrjú ár, 1980–1983. Undirbúningur
verkefnisins hefur staðið í tvö ár og
stefnt er að því að hefja leit í sumar.
Hollenska kaupskipið Het Wapen
van Amsterdam strandaði úti fyrir
Skeiðarársandi þann 19. september
1667. Tæplega þrjú hundruð manns
voru um borð í skipinu og komust
flestir heilu og höldnu frá borði.
Einungis á bilinu 60 til 80 manns var
þó bjargað því fólkið lést á sandin-
um og í örvæntingarfullri baráttu
við íslenskt ofsaveður.
Gríðarleg verðmæti
Farmur skipsins er talinn gríðarlega
verðmætur og hefur í tvígang verið
ráðist í leit að skipinu. Fyrst var það
árið 1960, þegar Ólafur Thors undir-
ritaði leyfisbréf til Bergs Lárussonar,
þar sem kveðið var á um að hlutur ís-
lenska ríkisins skyldi vera 12 prósent
af því verðmæti sem myndi finnast.
Aftur var ráðist í viðamikla að-
gerð árið 1980 við leit að skipinu,
sem síðari ár hefur gengið und-
ir nafninu gullskipið. Í þrjú ár leit-
aði flokkur manna að skipinu en án
árangurs. Þá voru fremstir í flokki
Kristinn Guðbrandsson, kenndur
við Björgun, og Eyjólfur Konráð
Jónsson alþingismaður. Meðal
þeirra sem tóku þátt í leitinni á sín-
um tíma er Þórarinn Kristinsson,
sonur Kristins í Björgun. Óhætt er
að fullyrða að enginn núlifandi Ís-
lendingur þekkir betur til aðstæðna
en Þórarinn.
„Skipið er örugglega þarna. Það
er hundrað prósent öruggt. Hvað er
í því er kannski ekki alveg vitað en
það er til farmskrá og á sínum tíma
var verðmætið talið nema 43 tunn-
um af gulli.“ Gísli Gíslason, lögmað-
ur, rafbílasali og ævintýramaður,
hefur bjargfasta trú á að hollenska
gullskipið sé á sínum stað.
Leitað fyrst með drónum
Nú hefur Minjastofnun gefið út leyfi
til hlutafélagsins 1667 ehf., sem Gísli
Gíslason á, og heimilar leit að skip-
inu á Skeiðarársandi. Enn er unnið
að samkomulagi við landeigendur
og Gísli segir að tveggja ára undir-
búningsvinna hafi alltaf miðað að
því að gera þetta í sátt og samlyndi
og samkvæmt lögum. Hann hefur
sett saman alþjóðlegan hóp sér-
fræðinga sem mun einbeita sér að
því að nýta nýjustu tækni við leitina.
Leitin mun hefjast í sumar en Gísli
leggur mikla áherslu á að fyrst í stað
verði eingöngu um að ræða að flog-
ið verði yfir svæðið með drónum og
jafnvel lítilli þyrlu eða flugvél.
„Við erum á þessari stundu ekki
að fara í nokkurt jarðrask eða utan-
vegaakstur. Fyrst í stað miðar þetta
að því að reyna að greina frávik í
mælingum á sandinum og staðsetja
hvar skipið gæti mögulega legið.“
Gunnar A. Birgisson, kafari og
sérfræðingur í leit að sokknum skip-
um, er hluti af teymi 1667 ehf. Hann
telur að blandaðri tækni verði beitt
í sumar við leit í sandinum. „Það er
erfitt að beita rafsegulbylgjum þar
sem sandurinn er svo segulmagn-
aður. Þá málma, sem eiga að vera í
skipinu, er erfitt að finna með raf-
segulmæli. Við þurfum að beita
öðrum aðferðum og við erum klár-
ir í það.“ Gunnar er atvinnumað-
ur á þessu sviði. Hann reiknar með
að skipið liggi á tíu til tuttugu metra
dýpi í sandinum. Hann hefur siglt
með ströndinni fyrir utan Skeiðar-
ársand og einnig kannað fjöruna.
„Við erum enn í þeim fasa að safna
frekari gögnum og það er mjög
mikil vægt.“
Farmurinn ósnertur
„Skipið kom hingað. Það strandaði
hér og það er á sínum stað. Í skráð-
um heimildum sem við höfum
séð er sagt frá því að 90 árum eftir
að skipið strandaði voru menn að
skipuleggja að reyna að komast
út í flakið til að bjarga einhverju
af farmi þess. Það segir okkur að
menn komust ekki út í það vegna
aðstæðna. Það segir okkur líka að
farmurinn er ósnertur,“ segir Gísli.
Eitt af því sem Gísli og félagar
vinna að nú er að ná samningi við
ríkið. Gísli var búinn að fastsetja
fundartíma með þáverandi for-
sætisráðherra, Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni. Nú leitar hann eftir
fundi með arftaka hans. „Allt sem
er í jörðu og er eldra en hundrað
ára er í raun eign ríkisins, þar sem
það telst fornminjar.“ Markmiðið
n Undirbúningur staðið í tvö ár n Alþjóðlegt teymi með nýjustu tækni n Gull, óskornir demantar, perlur, silfur, kopar og vín var hluti af farminum
Eggert Skúlason
eggert@dv.is „Skipið er
örugg-
lega þarna. Það
er hundrað pró-
sent öruggt.
Klárir og spenntir
Gunnar A. Birgisson og Gísli
Gíslason hafa undirbúið
verkið í tvö ár. Nú er komið
leyfi fyrir fyrsta skrefinu.
Mynd EGGErt SKúLaSon
Tilboð á Lappset
útileiktækjum 2016
Leitið til sölumanna í síma 565 1048
HEILDARLAUSNIR FYRIR LEIKSVÆÐI
- Leiðandi á leiksvæðum
jh@johannhelgi.is • johannhelgi.is
Uppsetningar, viðhald og þjónusta
• Útileiktæki
• Girðingar
• Gervigras
• Hjólabrettarampar
• Gúmmíhellur
• Fallvarnarefni