Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Page 14
Vikublað 19.–21. apríl 201614 Fréttir Bankinn krefst uppboðs á 500 milljóna gagnaveri Vill eign svissneska athafnamannsins Giorgio Massarotto á Ásbrú á nauðungarsölu L andsbankinn hefur farið fram á að gagnaver sem sviss- neskur athafnamaður að nafni Giorgio Massarotto opnaði á Ásbrú í Reykjanesbæ árið 2014 verði selt á nauðungaruppboði. Um 70 milljóna króna fasteignalán Svisslendingsins er í vanskilum sem og reikningar frá Orkusölunni og HS veitum. Gagnaverið er því rafmagns- laust en þar er tölvubúnaður fyrir um 300 milljónir króna. Greiddi 130 milljónir Massarotto keypti fasteignina Kletta- tröð 19 af Þróunarfélagi Keflavíkur- flugvallar, Kadeco, í júlí 2014 í gegn- um félag sitt IceMine ehf. Húsnæðið er alls 1.720 fermetrar að stærð og var byggt af Bandaríkjaher árið 1960. Kaupverðið nam 130 milljónum króna og greiddi Svisslendingurinn það að fullu við afhendingu. Lands- bankinn lánaði 70% af kaupverðinu, með veði í fasteigninni, og Massarotto samdi síðar við Orkusöluna og HS veitur um kaup og flutning á þremur megavöttum af raforku. Samkvæmt upplýsingum DV réðst IceMine í kostnaðarsamar breytingar á húsnæðinu á Ásbrú. Þær hafi á end- anum kostað um 80 milljónir króna eða tvöfalt meira en upphaflega stóð til. Verktakar sem sáu um fram- kvæmdina hafi ekki fengið allar kröf- ur sínar greiddar og hið sama megi segja um nokkur önnur fyrirtæki sem aðstoðuðu Svisslendinginn við að keyra gagnaverið í gang. Þrátt fyrir umsvif hans hér á landi hafa hvorki hann né gagnaverið ratað í íslenska fjölmiðla. Fór í þrot Gagnaverið var samkvæmt heim- ildum DV leigt út til fyrirtækja í Sviss og á Ítalíu sem stunda Bitcoin- námavinnslu. Fyrirtæki í slíkum rekstri nota sérstakar ofurtölvur, sem geta leyst flóknar stærðfræði- jöfnur, til að „grafa“ rafmyntina upp. Við það verða til nýjar Bitcoin-mynt- ir en fjölmörg alþjóðleg fyrirtæki grafa eftir rafræna gjaldmiðlinum í gagnaverum hér á landi. Eina tekjuöflun IceMine byggði á leigu á tölvubúnaði og reiknigetu gagnaversins. Svissneska fyrirtækið Bitmine, sem var í eigu Massarotto og meðfjárfesta hans, var fyrsti og eini viðskiptavinur gagnaversins þangað til það fór í þrot í maí 2015. Eftir það bárust engar leigugreiðslur frá Sviss en samkvæmt heimildum lokaði Massarotto í kjölfarið samn- ingi við ítalskt fyrirtæki. Sá leigutaki hefur nú sagt skilið við gagnaverið en ekki hafa fengist upplýsingar um hvort þeim viðskiptum lauk áður en lokað var fyrir rafmagnið. „Þessi Bitcoin-búnaður er fljótur að úreldast og nú eru komnar nýjar kynslóðir af þessum tölvum sem eru orkuhagkvæmari. Þessi búnaður er því nánast verðlaus í dag. Lands- bankinn er með fyrsta veðrétt í hús- inu og er eini kröfuhafinn sem er vel tryggður. Aðrir eru í von um að það sé eigið fé í húsinu sem losni þegar það verður selt,“ segir viðmælandi DV sem á kröfu á IceMine og vildi ekki láta nafns síns getið. Skráð á Kadeco Fasteignin Klettatröð 19 er í nauð- ungarsölubeiðni Landsbankans sögð í eigu Kadeco. Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri þróunarfélagsins, segir ástæðuna þá að afsali fasteignarinnar hafi aldrei verið þinglýst. „Þessi aðili er búinn að greiða okkur eignina að fullu og gerði það strax þegar hann fékk hana afhenta. Þó að við séum þarna að nafninu til beinist krafan ekki gegn okkur held- ur er hún talin eign viðkomandi fé- lags. Það voru einhver tæknileg at- riði sem tengjast undirritun hjá þeim sem komu í veg fyrir að þessu væri þinglýst á sínum tíma. Við erum búin að koma því á framfæri að þetta er ekki okkar eign og eina leiðin til að leiðrétta þetta er að þinglýsa afsali og við gætum gert það einhliða en það þýðir þá kostnað fyrir okkur sem við erum ekki að leggja í og því látum við þetta standa svona. Þetta fer þá bara sinn veg en hefur engin áhrif á okkur,“ segir Kjartan. Heimildir DV herma að sýslu- maðurinn á Suðurnesjum hafi óskað eftir yfirlýsingu frá Massarotto, í kjöl- far þess að afsalinu var skilað inn til þinglýsingar, um að hann byggi innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Yfirlýsingin hafi ekki borist og afsalinu því aldrei verið þinglýst. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Umdeildur Giorgio Massarotto virðist umdeildur innan Bitcoin-samfélagsins ef marka má ýmsa spjallþræði á netinu. Þar er hann sakaður um fjár- svik og óheiðarlega viðskiptahætti. Íslenskt félag hans keypti Klettatröð 19 á Ásbrú sumarið 2014. „Það voru einhver tæknileg atriði sem tengjast undirritun hjá þeim sem komu í veg fyrir að þessu væri þing- lýst á sínum tíma. Framkvæmdastjóri Kadeco Kjartan Þór Eiríksson segir IceMine hafa greitt 130 milljóna króna kaupverð fasteignarinnar á Ásbrú við afhendingu hennar í júlí 2014. PLUSMINUS OPTIC Smáralind www.plusminus. is Hönnun mánaðarins: California Design 20% afsláttur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.