Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Side 16
Vikublað 19.–21. apríl 201616 Fréttir Erlent
R
úmlega fjögur hundruð
flóttamenn eru taldir af
eftir að báti, sem var á leið
frá Egyptalandi til Ítalíu,
hvolfdi á Miðjarðarhafinu á
sunnudag. Aðeins tókst að bjarga 29
einstaklingum en flest fórnarlömb-
in komu frá Sómalíu, Eþíópíu
og Erítreu. Slysið kemur í kjölfar
fregna um mikla aukningu á ferð-
um smyglara með flóttamenn frá
ströndum Líbýu og Egyptalands yfir
til Ítalíu. Sú leið er margfalt hættu-
legri en bátsferðirnar sem flótta-
menn frá Mið-Austurlöndum hafa
lagt í frá Tyrklandi til grískra eyja.
Umdeilt samkomulag
Þann 20. mars síðastliðinn undir-
rituðu Evrópusambandslöndin og
Tyrkland samkomulag um brott-
vísun allra flóttamanna sem koma
til Evrópu í gegnum Tyrkland. Fyr-
ir hvern flóttamann sem er vísað á
brott mun Evrópusambandið taka
við einum Sýrlendingi frá flótta-
mannabúðum í Tyrklandi í gegn-
um kvótaflóttamannakerfið. Mark-
mið samkomulagsins var að draga
úr hvatanum fyrir Sýrlendinga til
að ferðast með bátum smyglara til
Grikklands með tilheyrandi hættu
á fjörtjóni. Þeir sjái sér frekar hag í
því að vera um kyrrt í flóttamanna-
búðum í Tyrklandi í von um að
komast til Evrópu. Á þeim tæpa
mánuði sem samkomulagið hef-
ur verið í gildi hafa rúmlega 200
flóttamenn verið fluttir til baka frá
Grikklandi.
Skelfilegar aðstæður í
Grikklandi
Þá hefur lokun landamæra
Makedóníu og Grikklands gert það
að verkum að 53 þúsund flótta-
menn eru núna fastir í Grikklandi
og lifa þar margir hverjir við skelfi-
legar aðstæður. Verst er ástandið í
Idomani, litlum bæ við landamæri
Makedóníu, en þar dvelja um 32
þúsund einstaklingar við afleitar
aðstæður í tjaldbúðum. Mikill órói
hefur verið á svæðinu og reglulega
hefur soðið upp úr. Makedóníska
landamæralögreglan hefur verið
gagnrýnd harðlega af grískum yfir-
völdum fyrir að beita mikilli hörku
en táragasi og byssukúlum úr plasti
hefur rignt yfir óeirðaseggi.
Makedóníumenn svara hins
vegar fullum hálsi og saka Grikki
um aðgerðarleysi varðandi flótta-
mannavandann. Þá hafa borist
fregnir af óeiningu meðal flótta-
manna sem hefur leitt til átaka.
Út af stríðinu í Sýrlandi hafa ríkis-
borgarar þess lands verið í forgangi
varðandi umsóknir um alþjóðlega
vernd sem skapraunar einstak-
lingum frá öðrum þjóðlöndum, til
dæmis Afganistan, sem eru ekki
síður að flýja hörmungar. Þær eru
hins vegar ekki metnar jafn rétthá-
ar í samanburði við ástandið í Sýr-
landi.
Færri flýja til Grikklands
Afleiðingar af hinu umdeilda
samkomulagi og slæmu ástandi í
Grikklandi eru þær að mun færri
flóttamenn hafa freistað þess að
komast yfir til Grikklands frá Tyrk-
landi. Flóttamönnum sem lögðu
upp í förina fækkaði um 42% í mars
samanborið við febrúarmánuð.
Þróunin hefur haldið áfram í þessa
átt. Fyrstu tvær vikurnar í apr-
íl komu 1.903 flóttamenn yfir til
Grikklands frá Tyrklandi. Til sam-
anburðar komu 24.073 einstak-
lingar sömu leið fyrstu tvær vikurn-
ar í mars.
Hjálparstofnanir óttast mjög
að hindranirnar sem eru til staðar
í Grikklandi og þessi mikla fækk-
un varðandi komu flóttamanna
frá Tyrklandi sé vísbending um að
mun fleiri muni reyna að komast
til Egyptalands, Líbýu eða Túnis og
freista þess að komast sjóleiðina
þaðan yfir til Ítalíu. Þessi ótti hefur
ekki enn raungerst því enn er hlut-
fall Sýrlendinga afar lágt.
1.132 drukknað á árinu
Það sem af er ári hafa 178.228
flóttamenn komið til Evrópu sam-
kvæmt tölum International Org-
anization of Migration. Langflest-
ir hafa komið til Grikklands, eða
153.468 talsins, en 24.048 einstak-
lingar hafa ferðast sjóleiðina frá
ströndum Afríku til Ítalíu. Þá hafa
648 einstaklingar flúið til Spánar og
28 til Kýpur. Samkvæmt sömu töl-
um hafa 1.132 einstaklingar látið
lífið eða er saknað. Flestir hafa lát-
ist á leið sinni frá Afríku til Ítalíu,
eða 752 einstaklingar, þá er með-
talið slysið hræðilega um helgina.
Þá hafa 375 einstaklingar látið líf-
ið á sjóleiðinni milli Grikklands og
Tyrklands og fimm einstaklingar
hafa drukknað á árinu við að reyna
að komast frá Afríku til Spánar. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Hættuför Óttast er að mun fleiri flóttamenn reyni að komast til Evrópu sjóleiðina frá
Afríku. Um 400 einstaklingar létu lífið um helgina í mannskæðasta slysi það sem af er ársins.
Færri flýja til Grikklands
n Afleiðingar umdeilds samkomulags milli Tyrklands og Evrópulanda n Fleiri reyna hættuför
Flóttamenn það sem af er ári Um 178 þúsund manns hafa komið sjóleiðis til Evrópu það sem af er ári. Alls 1.132 einstaklingar
hafa látið lífið á árinu og óttast er að sá fjöldi muni vaxa þar sem flóttamenn eru taldir munu reyna hættulegri sjóferðir til Evrópu.
Spánn
648
5 látnir
Ítalía
20.084
752
LÁTNIR
153.468
Grikkland
375
LÁTNIR
28
Kýpur
0 LÁTNIR
1.011.712 einstaklingar
samtals fóru sjóleiðina til
Evrópu á síðasta ári