Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Side 18
Vikublað 19.–21. apríl 201618 Fréttir Erlent
M
anstu eftir myllumerk-
inu #Bringbackourgirls?
Það eru tvö ár síðan það
var áberandi á samfélags-
miðlum. Fyrir tveimur
árum, þann 14. apríl 2014, mættu 276
stelpur í ríkisrekna skólann í Chibok í
Borno-fylki í Nígeríu.
Enn eru 219 þeirra í haldi Boko
Haram-liða sem rændu þeim og
myrtu kennara þeirra. Amnesty
International hefur krafist þess að ní-
gerísk stjórnvöld bindi enda á þján-
ingar stúlknanna og fjölskyldna
þeirra og komi þeim aftur heim.
Talsvert hefur verið ritað um sam-
tökin Boko Haram og heljartök þeirra
í Nígeríu á þessum síðum á síðustu
tveimur árum. Alþjóðasamfélagið
virðist hafa verið ráðþrota í aðgerðum
gegn samtökunum, en forseti Níger-
íu fullyrðir sigurreifur að hann muni
ná að rjúfa heljartak samtakanna og
sagðist raunar ætla að gera það fyr-
ir síðustu áramót. En hvernig stend-
ur þá á því að enn eru 219 nígerískar
skólastúlkur enn í haldi samtakanna
og hvers vegna eru börn gerð út sem
sjálfsvígssprengjuvargar? Hvernig
er hægt að beita sér gegn samtökum
sem virðast ekki lúta miðlægri stýr-
ingu og engu líkara en margir haldi
um stjórnvölinn?
Deyr reglulega
Forseti Nígeríu, Muhammdu Buhari,
sagðist ætla að takast á við samtökin af
fullum þunga og ná yfirhöndinni fyrir
síðustu áramót. Hann segist reglulega
hafa eyðilagt æfingasvæði samtak-
anna og bækistöðvar. Samt tekst sam-
tökunum reglulega að sprengja upp
fólk – og börn – á sínum vegum, nán-
ast vikulega. Þá hafa samtökin skot-
ið rótum í nágrannaríkjum Nígeríu,
meðal annars Tsjad og Kamerún. Rík-
in hafa myndað bandalag til að vinna
gegn þeim, en svo virðist sem þau
sæki heldur í sig veðrið en hitt, þrátt
fyrir loforð og staðhæfingar stjórn-
valda um hið gagnstæða.
Þá má bæta því við að forsprakki
samtakanna, Abubakar Shekau, er
reglulega sagður hafa dáið í átökum.
Hann er reyndar mjög umdeildur,
það er að segja, fólk er ekki endilega
sannfært um tilvist hans. Margir telja
að liðsmenn Boko Haram bregði sér
í hlutverk hans í áróðursmyndbönd-
um, þar sem litarhaft hans og hreim-
ur virðist breytast nokkuð reglulega.
Hann tók við samtökunum árið 2009
eftir dauða fyrri leiðtoga og stofn-
anda Boko Haram, Mohammeds
Yusuf. Hann hefur myndað banda-
lög við önnur íslömsk öfgasamtök,
meðal annars ISIS. Ætla má að vopn
og áróðursaðstoð berist Boko Haram
frá ISIS, en ekkert bendir til þess að
ISIS-liðar hafi komið til Nígeríu eða
annarra ríkja sem liðsstyrkur.
Virðast ekki trúræknir
Boko hafa farið með ofbeldi og skelf-
ingu um héruð Nígeríu frá árinu 2009.
Samtökin voru stofnuð nokkru fyrr,
árið 2002, en í fyrstu voru þau sjálf
með trúarskóla sem einbeitti sér að
því að rægja vestræna menningu og
áhrif hennar og kenna íhaldssamar og
róttækar kenningar um íslam. Nafnið
Boko Haram þýðir einmitt „Vestræn
menntun bönnuð“, en orðin koma úr
tungumáli sem kallast hausa. Önnur
þýðing gæti verið „Vestræn menning
er syndsamleg“.Meðlimir segjast að-
hyllast formfasta og gamaldags bók-
stafstrú og telja að fylgja eigi íslömsk-
um lögum, en raunar bendir fátt til
þess að þeir séu trúræknir af ein-
hverju ráði.
Grimmileg
Aðfarir samtakanna eru grimmilegar.
Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna
sýnir til að mynda að 44 börn voru
látin fremja sjálfsvígssprengjuárásir
af liðsmönnum Boko Haram í fyrra.
Í einni af hverjum fimm sjálfs-
morðsárásum kemur barn við sögu.
Doune Porter, talsmaður hjá UNICEF,
segir að börnin sem um ræðir eigi
það flest sameiginlegt að hafa mátt
þola svívirðilega meðferð af hálfu
liðsmanna samtakanna. Rétt er að
hafa í huga að það er óvarlegt að nota
orðið sjálfsmorðsárásir þegar börn
eiga í hlut. Porter segir að þarna séu
á ferðinni börn sem mátt hafa mátt
þola andlegt, líkamlegt og kynferðis-
legt ofbeldi. Dæmi eru um að stúlk-
ur, eins og þær sem var rænt í Chibok,
séu hnepptar í ánauð af liðsmönnum
samtakanna og þær neyddar til að
giftast liðsmönnum þeirra. Sýni þær
mótþróa og neiti að giftast séu þær
neyddar til að sprengja sig í loft upp
á fjölförnum stöðum. Drengir eru
neyddir til að ráðast á fjölskyldumeð-
limi sína til að sanna að þeir séu
hliðhollir samtökunum.
Gleymdum við þeim?
En gleymdum við stúlkunum sem var
rænt í Chibok? Eða gáfumst við upp?
Boko Haram hafa sem áður sagði
sagt að þau styðji samtökin ISIS sem
halda Sýrlandi og Írak í heljargreip-
um. Athygli heimsins og pressunnar
hefur beinst að báðum þessum ríkj-
um, enda er straumur flóttamanna
þaðan yfir til Evrópu mikill og hafa
stækkað og aðgerðir þeirra orðið sí-
fellt viðameiri. Ofbeldi ISIS hefur fyr-
ir vikið kannski stolið sviðsljósinu, en
alþjóðasamtök og stofnanir segja að
full ástæða sé til þess að fylgjast með
ástandinu í Nígeríu.
Boko Haram sendu nýlega frá sér
mynd band sem sýn ir fimmtán stúlk-
ur frá Chibok. Stúlkurnar eru klæddar
í svarta sloppa með slæður, en flestar
þeirra voru kristinnar trúar. Þeim
hefur verið gert að snúast til íslam.
Tvær mæður sem eiga stúlk ur sem
hurfu frá Chibok þekktu dæt ur sín ar í
mynd bandinu. Þær gátu einnig nafn-
greint aðrar stúlkur sem þær sáu og
borðið kennsl á þær. Myndbandið var
tekið upp 25. desember, en var sýnt
núna. Hluti stúlknanna er því á lífi.
En auk þessara 276 stúlkna í Chi-
bok hafa 2.000 stúlkur og fullorðnar
konur horfið frá árinu 2014 í Nígeríu
og nágrannaríkjum Nígeríu. Ástandið
þar hefur ekki batnað þrátt fyrir
aðgerðir stjórnarhersins til að endur-
heimta svæði úr herkví Boko Haram.
En þá mætir stúlkunum einnig annar
vandi, skömm fyrir að hafa tengst
samtökunum eða verið í haldi þeirra.
Það er erfitt að sameinast sínu gamla
samfélagi eða fjölskyldu eftir slíkar
þjáningar, sem bætir ekki úr skák. Þá
er mikill næringarskortur í landinu
og má ætla að flóttamannastraumur
þaðan aukist í ljósi þess að fátækasta
fólkið líður gríðarlegan skort. Þeir
allra fátækustu þurfa að þola öfga-
kennt ofbeldi, misnotkun, afleiðingar
loftslagsbreytinga og hungur. Að auki
er að vaxa úr grasi kynslóð sem aldrei
hefur átt heimili, fengið menntun og
þekkir ekkert nema líf á flótta og und-
ir ægivaldi hryðjuverkasamtaka. n
219 stúlkur eru líklega enn í haldi Boko Haram frá Chibok
20 þúsund hafa fallið í árásum og vegna ofbeldis samtakanna
2,3 milljónir nígerískra borgara eru heimilis-lausar vegna aðgerða
Boko Haram – þar af 1,3 milljónir barna.
180 milljónir manna búa í Nígeríu
1/3 þjóðarinnar býr við sára fátækt
500 tungumál eru töluð í Nígeríu
44 börn voru látin fremja sjálfsvígs-sprengjuárásir í fyrra.
Manstu eftir stelpunum?
n Tvö ár síðan 276 stúlkum var rænt n 2.000 til viðbótar hefur verið rænt
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Stöðugar árásir Hér má sjá eyðileggingu eftir eina af árásum Boko Haram. MynD EPA
Stúlkurnar Tvær konur þekktu
dætur sínar og gátu borið kennsl
á aðrar stúlkur í myndbandinu.
Hentar vel í matargerð, ofan á brauð, til að poppa popp,
í baksturinn, í þeytinginn, á húðina eða til inntöku.