Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Blaðsíða 23
Vikublað 19.–21. apríl 2016 Umræða 23
S
kattaskjól eru þau ríki köll
uð sem gera litlar eða engar
kröfur um að eignarhald
fyrirtækja sé þekkt og inn
heimta litla eða enga skatta
af fyrirtækjum. Með þessu skapa
skattaskjólin fyrirtækjum og fjárfest
um aðstöðu til að komast hjá skatt
lagningu. Skattheimta er forsenda
þess að stjórnvöld geti byggt upp
nauðsynlega innviði og veitt mikil
væga þjónustu. Skattaskjólin veikja
því velferðarsamfélagið um leið
og þau auka á ójöfnuð þar sem
skattaundanskot leiða til þyngri
skatta á þá sem standa í skilum.
Umfangið gríðarlegt
Í bókinni The Hidden Wealth of
Nations eftir G. Zucman er fjallað um
eignir í skattaskjólum og þær metn
ar á 7,6 þúsundir milljarða USD. Í
MiðAusturlöndum
og Rússlandi er
ríflega helm
ingur eigna
falinn í
skattaskjól
um, í Evrópu
er hlutfall
ið 10% en 4% í
Bandaríkjunum
og Asíu. Zucman áætl
ar að 80% af eignum félaga í skatta
skjólum séu ekki talin fram til skatts.
Skattaskjól eru víða
OECD telur upp 38 ríki sem upp
fylla ekki lágmarkskröfur um upp
lýsingaskipti. Á lista OECD má finna
Bresku Jómfrúaeyjarnar, Panama,
Möltu og Kýpur. Tvö síðasttöldu rík
in eru aðilar að ESB en á listanum er
einnig Liechtenstein sem er aðili að
EESsvæðinu. En vandinn er víðar ef
marka má óháð samtök sem kalla sig
„Tax Justice Network“. Samtökin hafa
birt athyglisverðan lista yfir skatta
skjól en þar tróna Sviss, Hong Kong
og Bandaríkin í efstu sætum. Luxem
borg og Þýskaland eru einnig ofar
lega á listanum en samkvæmt sam
tökunum geta erlendir aðilar í vissum
tilvikum notið nafnleyndar eða mjög
lágra skatta í þessum ESBríkjum.
Hvað er til ráða?
Ísland er þátttakandi í átaki á veg
um OECD sem meðal annars felst í
því að skiptast á gögnum um fyrir
tæki og skattgreiðslur þeirra. Á næst
unni mun Ísland staðfesta reglur
OECD sem skylda fjölþjóðleg fyrir
tæki til að sundurliða ársreikninga
sína niður á einstök ríki. Með því að
upplýsa hvernig hagnaður mynd
ast í hverju ríki fyrir sig verður erfitt
fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki að flytja
hagnað sinn til skattaskjóla. Einnig
hafa verið innleiddar hér reglur
um milliverðlagningu sem draga úr
möguleikum fjölþjóðlegra fyrirtækja
til að færa hagnað milli dótturfélaga
sinna í ólíkum löndum.
Auk þess að taka þátt í alþjóð
legri samvinnu gegn skattaskjólum
er mikilvægt
að kanna
hvaða laga
breytingar
hér á landi
gætu mið
að að sama
marki. Til
að kynna
sér það nán
ar hefur Efna
hags og viðskiptanefnd
Alþingis boðað til sín fulltrúa frá fjár
mála og efnahagsráðuneyti, ríkis
skattstjóra, skattrannsóknarstjóra,
Fjármálaeftirliti og Seðlabanka.
Ljóst er að það verður ekki einfalt
að ná til þeirra sem vilja leyna eign
um sínum. Þótt sett yrði bann við því
að íslenskir aðilar ættu félög í skatta
skjólum, væri mögulegt að komast
hjá banninu með því að setja upp
erlent skúffufélag utan skattaskjóla.
Erlenda félagið gæti þá stofnað félag
í skattaskjóli og haft milligöngu um
viðskipti við það.
Það yrði til bóta ef upplýst væri
hverjir séu raunverulegir eigend
ur að ráðandi eignarhlutum í
íslenskum félögum. Slík upplýs
ingaskylda er í ýmsum löndum.
Raunverulegur eigandi er sá einstak
lingur sem nýtur ávinnings af hluta
fjáreigninni þótt það kunni að vera
í gegnum skúffufélag. Hugsanlega
mætti setja hliðstæða kröfu um
raunverulega eigendur annarra fjár
málagerninga svo sem innstæðna
og skuldabréfa. Einnig hefur verið
nefndur sá möguleiki að leggja skatt
á greiðslur íslenskra félaga til félaga
í skattaskjólum en fleiri leiðir koma
til greina og verða skoðaðar nánar
á næstunni. Í ljósi umfangs vand
ans hér á landi er afar mikilvægt að
Ísland verði í fremstu röð í hinni al
þjóðlegu baráttu gegn starfsemi
skattaskjóla. n
Lokum á skattaskjólin
Kjallari
Frosti Sigurjónsson
þingmaður Framsóknarflokksins
Myndin Kuldakast Það var vetrarlegt um að litast víðs vegar um landið, sérílagi eftir hríðarbyl sem gekk yfir norðanvert landið á sunnudag. Næstu dagar gætu orðið í kaldara lagi, samkvæmt veðurspám. mynd SigtryggUr ari
HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook
Ræktaðu
þitt eigið