Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Side 33
Vikublað 19.–21. apríl 2016 Sport 29
Radamel
Falcao
Tímabil: 2011–2013
Leikir: 91 Mörk: 70
Atletico beið risavaxið
verkefni sumarið 2011
að fylla skörð Agüero,
sem seldur hafði verið
til Manchester City á 45
milljónir evra, og Forlán,
sem fór til Inter Milan. Það
virtist nær ómögulegt. En
í Portúgal hafði Radamel
nokkur Falcao verið að raða
inn mörkum fyrir Porto í
tvö ár og var orðinn afar
eftirsóttur. Stærstu félög
Evrópu þorðu þó einhverra
hluta vegna ekki að taka
sénsinn og verðmiðinn
fældi aðra frá. Atletico
greiddi Porto 40 milljónir
evra fyrir Falcao sem sló
umsvifalaust í gegn. Mörk-
unum rigndi, Atletico vann
spænska bikarinn, UEFA-
bikarinn og UEFA-Ofurbik-
arinn með Falcao í fremstu
víglínu. Hið nýríka franska
félag Monaco greiddi síðan
60 milljónir evra fyrir
hann sumarið 2013
og Atletico vant-
aði enn á ný
stjörnufram-
herja.
Antoine Griezmann
Tímabil: 2014–enn hjá Atletico Leikir: 98 Mörk: 54
Enn á ný hafði Atletico misst sinn helsta
markaskorara þegar félagið ákvað, sumarið
2014, að veðja á 23 ára Frakka sem slegið hafði í
gegn hjá Real Sociadad tímabilið áður. Atletico
greiddi hátt í 30 milljónir evra fyrir Griezmann
sem sló samstundis í gegn og skoraði 25 mörk
á sínu fyrsta tímabili. Hann er enn að og hefur
leikið betur en nokkru sinni fyrr á yfirstandandi
tímabili. Hefur skorað 29 mörk í 45 leikjum í
öllum keppnum. Hvort Atletico takist að halda
honum frá auðjöfrum knattspyrnuheimsins
á eftir að koma í ljós, en eitt er víst; þeir
eru sjálfsagt með eftirmann hans
í handraðanum.
Fernando Torres
Tímabil: 2001–2007 Leikir: 244 Mörk: 91
Brotthvarf Hasselbaink var ekki eins mikið
áfall og margir héldu því í unglingaliðinu
átti Atletico einn Fernando Torres sem
miklar vonir voru bundnar við. Þegar hann
var aðeins 19 ára var hann orðinn fyrirliði
Atletico og varð á sex ára tímabili að
goðsögn á Vicente Calderón. Var síðan
keyptur til Liverpool á um 25 milljónir
punda árið 2007 þar sem hann sló rækilega
í gegn. Torres er nú aftur kominn til Atletico
á láni frá AC Milan og hefur skorað nokkur
mikilvæg mörk.
Diego
Costa
Tímabil: 2010/2011
og 2012–2014
Leikir: 135 Mörk: 65
Atletico hafði
keypt Costa fyrst
árið 2007 frá Braga
en lánað hann út
um allar trissur árin
á eftir. Eftir að hafa selt
hann til Valladolid 2009
var hann keyptur aftur sem
varaskeifa fyrir Agüero og
Forlán tímabilið 2010/2011.
En þegar þeir voru horfnir og
Falcao orðinn aðalmaðurinn
náði Costa sér á strik og skor-
aði 20 mörk í öllum keppnum
tímabilið 2012/2013. En það
var ekki fyrr en á því næsta,
þegar Falcao var horfinn á
braut, sem Costa blómstr-
aði. Skoraði 36 mörk í öllum
keppnum og var lykilmaður í
liðinu sem óvænt vann spænsku
deildina tímabilið 2013/2014 og
komst í úrslitaleik Meistaradeildar-
innar. Þá um sumarið var hann seldur
til Chelsea á um 32 milljónir punda og
hélt uppteknum hætti þar.
Jimmy Floyd Hasselbaink
Tímabil: 1999/2000 Leikir: 43 Mörk: 33
Hollendingurinn öflugi hafði átt tvö góð tímabil með Leeds á Englandi þegar hann var keyptur til Atletico sum-
arið 1999 á 10 milljónir punda. Þrátt fyrir frábæra frammistöðu og markafjölda þá tókst Hasselbaink ekki að
forða Atletico frá falli það tímabilið. Fallklásúla í samningi hans gerði að verkum að Chelsea vann kapphlaupið
um hann, greiddi 15 milljónir punda sem þá var hæsta verð sem Chelsea hafði greitt fyrir leikmann. Þar átti
hann eftir að slá í gegn og mynda m.a. öflugt framherjapar með Eiði Smára Guðjohnsen.
Diego
Forlán
Tímabil: 2007–2011
Leikir: 196 Mörk: 96
Forlán hafði slegið í gegn
á þremur tímabilum
sínum með Villareal á
Spáni eftir misheppnaða
dvöl hjá Manchester
United. Var hann orðinn
einn öflugasti framherji
Evrópu þegar Atletico
keypti hann sumarið
2007 á 21 milljón evra
til að fylla skarð Torres
og stilla upp með
undrabarninu Agüero.
Samstarf þeirra var
gjöfult og mynduðu þeir
eitt besta framherjapar
Evrópu næstu tímabilin á
eftir. Félagið vann meðal
annars UEFA-bikarinn
2010. Þó að Torres væri
að brillera á Englandi
á sama tíma, voru fáir
sem söknuðu hans með
Forlán og Agüero í stuði.