Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Síða 36
Vikublað 19.–21. apríl 201632 Skrýtið
1 BlaðamaðurMeðallaun: 386 þús. kr. Vöxtur: -9%
Með tilkomu internetsins hefur blaðaútgáfa
verið á stöðugu undanhaldi undanfarinn
áratug eða svo. Það hefur í för með sér
fækkun starfa og þess vegna færri tækifæri.
Tekjurnar minnka og launin haldast því í
lágmarki.
2 SkógarhöggsmaðurMeðallaun: 365 þús. kr. Vöxtur: -4%
Pappírsnotkun í heiminum fer hratt minnk-
andi enda stafræn samskipti það sem tekið
hefur yfir. Því hefur dregið úr skógarhöggi. Í
ofanálag er vinnuumhverfið afar hættulegt
og líkamlegt álag mikið.
3 SjónvarpsmaðurMeðallaun: 386 þús. kr.
Vöxtur: -9%
Starfið þykir illa borgað og álagið í
vinnunni er mikið. Þá fer tækifær-
um fækkandi samhliða hnignun
hefðbundinnar dagskrárgerðar.
Ekki bætir úr skák að frammistað-
an í vinnunni er fyrir allra augum.
4 PlötusnúðurMeðallaun: 311 þús. kr.
Vöxtur: -11%
Útvarpsstöðvar berjast í bökkum úti
um allan heim, enda hefur samkeppni
vaxið hröðum skrefum. Plötusnúðar á
útvarpsstöðvum hafa vikið fyrir lagalistum
sem tölvur sjá um að spila. Þá eru launin
áberandi léleg.
5 HermennskaMeðallaun: 291 þús. kr. Vöxtur: ?
Starf í hernum er eitt það hættulegasta
– og þess vegna það streitumesta – sem
völ er á. Hermenn vita aldrei hvenær þeim
verður falið að fara inn á svæði þar sem þeir
eru í bráðri lífshættu. Starfið er auk þess illa
borgað.
3 MeindýraeyðirMeðallaun: 319 þús. kr. Vöxtur: -1%
Meindýraeyðar þurfa daglega að horfast í
augu við og drepa dýr sem vekja óhug hjá
öðrum, svo sem rottur, geitunga, snáka
og köngulær. Þá þurfa þeir nær daglega
að meðhöndla alls kyns eitur. Launin eru
heldur ekki beysin.
7 AfgreiðslustarfMeðallaun: 225 þús. kr. Vöxtur: 7%
Þrátt fyrir að vaxtarhorfur í smásölu séu
ágætar getur afgreiðslustarfið verið bæði
taugatrekkjandi og lýjandi, sérstaklega
hjá þeim sem eru lægst settir. Launin eru
skelfileg og álagið getur verið mikið.
8 AuglýsingasalaMeðallaun: 498 þús. kr. Vöxtur: -3%
Samhliða hnignun hefðbundinna fjölmiðla
verður starf auglýsingasala erfiðara með
hverju árinu. Hafa þarf mikið fyrir hverri
krónu enda eru launin oft árangurstengd.
Starfið er í fyrsta sinn á meðal þeirra tíu
verstu.
9 LeigubílstjóriMeðallaun: 241 þús. kr. Vöxtur: 13%
Það hefur aldrei verið meira að gera hjá
leigubílstjórum, jafnvel þótt samkeppni – á
borð við Über – sé tiltölulega nýtilkomin.
Starfið er afar streituvaldandi, vegna ná-
lægðar við viðskiptavini og umferðarinnar,
auk þess að vera illa borgað.
10 SlökkviliðsmaðurMeðallaun: 478 þús. kr. Vöxtur: 5%
Starf slökkviliðsmanns getur verið rólegt,
þegar verkefnin eru fá. Það getur hins vegar
breyst með einni hringingu og starfsmað-
urinn þarf að leggja líf sitt í mikla hættu.
Starfið er afar krefjandi líkamlega og
andlega.
10 verstu störfin
A
ð vera blaðamaður á dag-
blaði er versta starf í
heimi, samkvæmt úttekt
careercast.com. Vefsíðan
stendur árlega fyrir saman-
burði á hinum ýmsu störfum miðað
við tilteknar forsendur. Breyturnar
eru vinnuumhverfi, tekjur, streita og
vinnuöryggi. Við vinnsluna eru not-
aðar tölur frá ráðuneytum banda-
rískra stjórnvalda en 200 störf eru
vegin og metin.
Endalaust væri sjálfsagt hægt að
karpa um hvort tiltekið starf er gott
eða slæmt. Áhugasvið fólks eru sem
betur fer fjölbreytt og ólík störf eiga
misvel við það. Þannig á undirritaður
blaðamaður bágt með að viðurkenna
að starfið sem hann hefur gegnt síð-
astliðin níu ár sé það versta í heimi.
En þannig virðist það engu að síð-
ur vera. Hér er farið yfir það hver tíu
verstu störfin eru. Hafið hugfast að
um er að ræða störf í Bandaríkjunum
og að mánaðarlaun, sem hér eru birt
í krónum, eru umreiknuð úr dollur-
um, á gengi dagsins í dag. n
baldur@dv.is