Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Qupperneq 50
Vikublað 19.–21. apríl 201646 Fólk
„Engin að halda
kjafti og vEra sæt“
Rósa Björk og María Lilja vinna að bók með ástarsögum nútímakvenna
U
m þessar mundir vinna vin-
konurnar Rósa Björk Berg-
þórsdóttir og María Lilja
Þrastardóttir að bók með
raunverulegum ástarsög-
um íslenskra nútímakvenna. Bókin
er væntanleg í byrjun sumars og er
ætluð öllum þeim sem hafa áhuga á
ástinni.
„Við erum ekki komnar með nafn
á bókina en vinnuheitið er Ástar-
sögur íslenskra nútímakvenna. Ekki
sögur af ástamálum langalangömmu
þinnar heldur ástarsögur kvenna
sem geta fundið út úr því að senda
okkur „mail“. Þannig skilgreinum við
nútímakonuna.“
Er mikilvægt að setja saman
smásagnarit um ástamál nútíma-
kvenna á Íslandi? Og hefur þetta
verið ykkur hugleikið lengi?
„Þetta er hugmynd sem er búin
að vera með okkur í svolítinn tíma.
Við eigum sjálfar fyndnar ástarsög-
ur og vinkonur okkar eiga fyndnar
sögur en núna var staður og stund
til þess að gera þetta. Ég er búin
að vera í fæðingarorlofi og það var
kominn tími til að vinna einhver
verkefni utan heimilisins. Þessi bók
er bara jákvæð og því ekkert nema
jákvætt að vinna að henni. Bókin
verður vonandi spennandi kostur
fyrir fólk til þess að taka með sér í
fríið og ég held að bæði karlar og
konur gætu haft gaman af því að
lesa hana,“ segir Rósa Björk en þær
stöllur eru komnar vel á veg með
vinnuna og stefna á að í bókinni
verði í kringum 100 sögur.
Sjáum bara konfettí í sjónvarpi
Vinkonurnar segja sögurnar í bók-
inni ólíkar skálduðum ástarsögum
því þessar eru raunverulegar og þar
af leiðandi einlægari en margt af því
sem við sjáum á samfélagsmiðlum
og í sjónvarpi dagsdaglega.
„Okkur fannst þetta góð hug-
mynd en þegar við byrjuðum að
auglýsa eftir sögum á Facebook, í
hópum eins og til dæmis Beauty
tips, þá fóru okkur að berast sög-
ur sem sýndu hvað þetta var raun-
verulega frábær hugmynd. Kon-
ur eru svo einlægar og þegar sagan
er ekki skálduð þá verður hún svo
sönn. Við sjáum svo mikið kon-
fettí í sjónvarpinu, í myndbönd-
um og kvikmyndum. Samskipta-
miðlar eru ekki endilega að hjálpa
til enda hægt að filtera góðar para-
myndir. En sögurnar sem við höfum
fengið hingað til sýna líka leiðin-
legu dagana sem koma hjá öllum
inni á milli. Við sjáum sérstaklega
að nafnleyndin sem við bjóðum
upp á gerir að verkum að höfund-
urinn er ekkert að skafa utan af því
og segir líka frá pararáðgjöfinni og
öðrum fylgifiskum sem oft tengjast
ástinni. Ég held einmitt að af því að
við bjóðum upp á nafnleynd þá séu
konur oft reiðubúnari að vera ein-
lægar og segja frá raunveruleikan-
um.“
Rósa Björk og María Lilja eru
almennt hrifnar af reynslusagna-
forminu og segja svo margt fallegt
við það þegar konur segja frá sinni
reynslu.
Stelpur gerendur
í ástarsamböndum
Konur virðast fúsar til þess að miðla
af reynslu sinni enda hefur sögun-
um rignt inn á netfang stelpn-
anna að undanförnu. Ritstýrurn-
ar segja að sögurnar sýni mikinn
fjölbreytileika en líka að í þeim
endurspeglist ákveðinn þráður sem
mögulega einkenni ástamál nú-
tímakonunnar og nefna sem dæmi
hve miklir og meðvitaðir gerendur
konur eru í ástamálum sínum í dag.
„Við ákváðum að þetta yrðu bara
sögur frá konum. Sú ákvörðun var
tekin vegna þess að við erum miklir
femínistar og okkur langaði að hafa
þetta með fókus á konuna. Við vild-
um leyfa konum að segja sína hlið
og upplifun af ástinni. Svo hefur það
komið í ljós að stelpur eru miklir
gerendur í ástarsamböndum sínum
sem gleður okkur því arfleifð okkar
hefur viljað kenna konum að sitja á
ballinu og bíða eftir því að vera boð-
ið upp. En sögurnar sem við erum
að sjá eru ekki þannig. Þar er engin
að halda kjafti og vera sæt heldur
eru höfundarnir miklir þátttakend-
ur. Þetta vonum við að til dæmis
ungar stelpur sjái og bara konur yf-
irhöfuð og að þetta virki valdeflandi
fyrir þær í ástamálunum þeirra.“
En hvernig hafa viðtökurnar ver-
ið? Eru nútímakonur á Íslandi til í
að segja sögur sínar?
„Viðtökurnar hafa verið fram-
ar öllum vonum. Við erum komn-
ar með mjög margar og mjög ólík-
ar sögur. Allt frá Tinder-sögum og
æskuástum að vinkonuástarsögum
og ástarsögum sem enda illa. En
okkur langar í enn fleiri. Við kvíðum
því mest að þegar bókin er komin
út þá eigi margar eftir að koma til
okkar og segjast eiga skondnar sög-
ur sem hefðu verið fínar í bókinni.
Við erum að taka við sögum þang-
að til í byrjun maí og það má í raun-
inni senda okkur sögur fram að því
á astarsogur@gmail.com.“
Aðdáunin og áhuginn leynir sér
svo sannarlega ekki í augum Maríu
Lilju og Rósu Bjarkar en hefur þetta
verkefni fengið þær til þess að skrifa
sínar eigin sögur?
„Já, við verðum báðar með sög-
ur. Það væri nú svolítið erfitt að
biðja fólk að senda inn ástarsögur
þegar við getum ekki gert það sjálf-
ar!“ n
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
María Lilja og Rósa Björg
„Við eigum sjálfar fyndnar ástarsög-
ur og vinkonur okkar eiga fyndnar
sögur en núna var staður og stund til
þess að gera þetta.“ Mynd SigTRygguR ARi
„við erum
komnar með
mjög margar og mjög
ólíkar sögur
Við tökum upp söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómsveitir,
hljóðbækur, og margt fleira
Stúdíó
NORN
Síðumúla 17, 108 Reykjavík • Sími 561 7200 • studionorn.is • facebook.com/studionorn