Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 16
5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0
Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21
Píratar stærstir í öllum
kjördæmum landsins
P
íratar mælast með yf-
irburðafylgi í flestum
kjördæmum landsins, sam-
kvæmt greiningu á fylgi
flokkanna í hverju kjör-
dæmi fyrir sig sem Gallup gerði fyrir
Eyjuna. Framsóknarflokkurinn tap-
ar miklu fylgi í öllum kjördæmum,
en það er landsbyggðin sem heldur
lífi í flokknum.
Niðurstöðurnar byggja á svörum
þátttakenda í Þjóðarpúlsi Gallup
frá lok janúar fram í lok apríl og
gefa því nokkuð nákvæma mynd af
stöðu mála í dag. Það vekur óneitan-
lega athygli að Píratar skuli mælast
stærstir í öllum kjördæmum lands-
ins, jafnvel í gamalgrónum vígjum
stjórnarflokkanna á landsbyggð-
inni. Þessi staða hefði þótt nán-
ast óhugsandi fyrir ekki svo löngu.
Minnstu flugi, ef þannig má að orði
komast, ná Píratar í Norðvesturkjör-
dæmi þar sem þeir mælast „einung-
is“ með ríflega fjórðung atkvæða.
Í síðustu kosningum fengu Píratar
engan kjördæmakjörinn þingmann,
en samkvæmt þessum niðurstöðum
yrðu þeir 22 talsins.
Framsóknarflokkurinn, sem
vann stórsigur í síðustu alþing-
iskosningum, tapar miklu fylgi í öll-
um kjördæmum. Það er, eins og
sagði, landsbyggðin sem heldur lífi í
flokknum þar sem hann mælist með
um og yfir 20 prósent. Flokkurinn á
hins vegar erfitt uppdráttar á höf-
uðborgarsvæðinu og í Reykjavíkur-
kjördæmunum slefar fylgið rétt upp
fyrir 5 prósentin og aðeins í Suðvest-
urkjördæmi fengi Framsókn kjör-
dæmakjörinn þingmann.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur svo
til óbreyttu fylgi í öllum kjördæm-
um, en tapar þó marktæku fylgi bæði
í Norðaustur- og Suðurkjördæmi.
Hann bætir hins vegar hvergi við
sig fylgi. Kjördæmabundnum þing-
mönnum flokksins myndi fækka um
fjóra, yrði þetta niðurstaðan.
Samfylkingin tapar sömuleiðis
umtalsverðu fylgi í öllum kjördæm-
um og aðeins í einu kjördæmi,
Reykjavík norður, mælist fylgi flokks-
ins í tveggja stafa tölu. Samfylkingin
fengi að auki engan kjördæmakjör-
inn þingmann á landsbyggðinni.
Þetta endurspeglar sífellt þverrandi
fylgi flokksins í könnunum á lands-
vísu. Hvort nýjum formanni, sem
kjörinn verður á landsfundi í byrjun
júní, takist að snúa þróuninni við
verður að koma í ljós.
Björt framtíð fékk sex þingmenn
í síðustu alþingiskosningum sem
mátti að stórum hluta rekja til ágætis
gengis á suðvesturhorni landsins.
Íbúar höfuðborgarsvæðisins og ná-
grennis hafa yfirgefið flokkinn í stór-
um stíl. Hvergi mælist flokkurinn
með yfir 5 prósenta fylgi og íbúar
Norðvesturkjördæmis vita varla af
honum.
VG bætir við sig fylgi í öllum
kjördæmum að Reykjavík norður
undanskildu. Flokkurinn er sem fyrr
sterkur í Norðausturkjördæmi þar
sem Steingrímur J. Sigfússon hefur
leitt listann, en VG telur sig vafalaust
sjá sóknarfæri í Suður- og Suðvestur-
kjördæmi þar sem fylgið mælist
undir tveggja stafa tölu. Alls myndi
flokkurinn bæta við sig tveimur kjör-
dæmabundnum þingmönnum. n
Magnús G. Eyjólfsson
mge@eyjan.is
n Landsbyggðin heldur lífi í Framsókn n Höfuðborgin hefur yfirgefið Bjarta framtíð
Helgarblað 13.–16. maí 201616 Umræða Stjórnmál