Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Qupperneq 13
Helgarblað 27.–30. maí 2016 Umræða 13
Persónur og leikendur
Flestir tengdir Sjálfstæðisflokki
Benedikt Jóhannesson hef-
ur staðið í stafni fyrir Við-
reisn frá upphafi. Að stofnun
flokksins hafa ásamt hon-
um komið ýmsir frjálslynd-
ir hægrimenn sem hafa
verið hallir undir Evrópu-
sambandsaðild Íslands. Ýmis
nöfn hafa verið nefnd í þeim
efnum frá árinu 2014. Jór-
unn Frímannsdóttir, fyrrver-
andi borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins, hefur þannig
komið að stofnuninni og tók
hún sæti í stjórn Viðreisnar
á stofnfundinum. Jórunn er
ein þeirra sem yfirgaf Sjálf-
stæðisflokkinn, vegna svika í
Evrópumálunum, eins og það
var orðað. Til umræðu var að
Viðreisn byði fram í síðustu
borgarstjórnarkosningum og var þá talað um að Jórunn myndi leiða það
framboð. Af því varð hins vegar ekki. Sömuleiðis hefur fjárfestirinn Helgi
Magnússon komið að stofnun Viðreisnar.
Auk þeirra Jórunnar, Helga og Benedikts voru 13 manns kjörin í stjórn
Viðreisnar. Þar eru nokkur kunn nöfn úr ýmsum geirum þjóðlífsins. Má
þar nefna Daða Má Kristófersson, hagfræðing og forseta félagsvísinda-
sviðs Háskóla Íslands, Vilmund Jósepsson, fyrrverandi formann Samtaka
atvinnulífsins, Ásdísi Rafnar hæstaréttarlögmann og Jón Steindór Valdi-
marsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins og formann
Já Ísland.
Segjast ekki á leið í Viðreisn
Þá hafa ýmsir málsmetandi aðilar þráfaldlega verið orðaðir við Viðreisn.
Hæst hafa borið nöfn tveggja fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins,
þeirra Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og formanns
Sjálfstæðisflokksins, og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fyrrverandi
menntamálaráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Í samtali
við Eyjuna vildi Þorgerður ekkert gefa út varðandi þennan orðróm utan
það að hún hefði bara, rétt eins og ýmsir aðrir, fylgst með Viðreisn í fjöl-
miðlum. Þegar Eyjan hafði svo samband við Þorstein sagði hann að hann
hefði hvorki setið stofnfund Viðreisnar né á annan hátt komið nálægt
flokknum. Hann væri ekki að hugsa um nein framboðsmál, hvorki þar né
annars staðar.
Þá hefur gengið sú saga að fulltrúar Viðreisnar hafi nálgast sitjandi
þingmenn með það í huga að fá þá til liðs við flokkinn og jafnvel að stofna
þingflokk á Alþingi fyrir komandi kosningar. Nafn Bjartar Ólafsdóttur,
þingkonu Bjartrar framtíðar, hefur verið nefnt í þeim efnum. Þegar Eyjan
hafði samband við Björt kannaðist hún hins vegar ekkert við neinar slíkar
þreifingar og sagði að hún hefði ekki verið í neinum samskiptum við full-
trúa Viðreisnar.
Bjóða fram fléttulista
Viðreisn hyggst bjóða fram í öllum kjördæmum fyrir þingkosningarnar í
haust. Ákveðið hefur verið að uppstillingarnefndir muni stilla upp listun-
um. Ófrávíkjanleg regla er að kynjahlutföll verði í efstu sex sætunum og
verður beitt fléttulistum til þess.
Benedikt Jóhannesson segir að hann vonist til þess að Viðreisn fái
nægilegt fylgi í kosningum til að ná lykilstöðu, svo ekki verði hægt að
ganga framhjá flokknum við ríkisstjórnarmyndun. Til þess sé leikurinn
gerður. Spurður hvaða forsendur þurfi að vera fyrir hendi til þess að
flokkurinn taki þátt í ríkisstjórn leggur Benedikt áherslu á að Evrópusam-
bandsmálin verði kláruð.
„Ég hef lýst því yfir að við munum ekki vinna með neinum flokki í rík-
isstjórn sem ekki vill klára það með þjóðaratkvæðagreiðslu hvort haldið
verði áfram samningaviðræðum við Evrópusambandið.“
Neitar tengslum við Hringbraut
Fullyrt hefur verið að Viðreisn sé tengd sjónvarpsstöðinni Hringbraut
traustum böndum. Þannig hefur því verið haldið fram að Helgi Magnús-
son hafi verið fjárhagslegur bakhjarl stöðvarinnar, en eins og nefnt er hér
að ofan er Helgi einn af þeim sem unnið hafa að stofnun Viðreisnar. Þá
hefur vakið athygli að í pistlaskrifum gervimannsins Ólafs Jóns Sívertsen
á Hringbraut, sem ekki hefur fengist gefið upp hver skrifar fyrir, hefur ver-
ið að finna mjög ákveðinn áróður fyrir Viðreisn. Benedikt Jóhannesson
vildi í samtali við Eyjuna hins vegar ekkert kannast við nein tengsl Við-
reisnar við Hringbraut.
Er bíllinn klár fyrir
sumarið?
Við einföldum líf bíleigandans
Ferðabox
Reiðhjóla-
grindur
Þverslár
lækningar og sálfræðiþjónusta tekin
inn í almannatryggingakerfið.
Viðreisn lýsir vilja til þess að kost-
ir fjölbreyttari rekstrarforma verði
kannaðir og er augljóslega verið að
tala fyrir aukinni aðkomu einkaaðila
að heilbrigðisþjónustu.
Vilja taka upp evru
Stjórn efnahagsmála á að hafa að
markmiði að tryggja stöðugleika og
jafnan hagvöxt, segir í stefnu Við-
reisnar um efnahagsmál. Flokk-
urinn vill að gengi krónunnar verði
fest og til lengri tíma litið skuli stefnt
að upptöku evru með stuðningi
Seðlabanka Evrópu.
Viðreisn vill líka að innflutnings-
hömlur á landbúnarvörum verði
aflétt í áföngum og að samkeppnis-
lög gildi um allar greinar, þar með
talinn landbúnað.
Þá er í stefnunni lýst vilja til að
einfalda skattkerfið. Þannig eigi virð-
isaukaskattur að vera eins almennur
og mögulegt sé og minnka eigi vægi
tekjuskatts. Skera á upp herör gegn
kennitöluflakki og skattsvikum, þar
með töldum aflandsskattsvikum.
Vestræn samvinna, Evrópusam-
starf og NATO hornsteinar
Hvað varðar utanríkisstefnu þá
skal hún, að mati Viðreisnar, byggj-
ast á samstarfi vestrænna ríkja,
evrópsku samstarfi og norrænu
samstarfi. Sömuleiðis skuli utan-
ríkisstefnan byggja á aðild að Sam-
einuðu þjóðunum og vestrænu frið-
ar- og öryggisstarfi.
Sérstaklega er fjallað um Evrópu-
samvinnu og segir að hagsmunir Ís-
lands séu samofnir hagsmunum
Evrópuríkja á flestum sviðum, þar á
meðal menningar, efnahags og við-
skipta. Aðild að Evrópusambandinu
fylgi margir kostir sem styrki stöðu
Íslands og efli hagsæld. Því eigi, líkt
og segir í grunnstefnunni, að bera
það svo fljótt sem auðið er undir
þjóðaratkvæði hvort ljúka eigi að-
ildarviðræðum við Evrópusam-
bandið. Ef það er vilji þjóðarinnar að
ljúka aðildarviðræðum verði niður-
staða þeirra samninga einnig bor-
in undir þjóðina. Báðar þessar at-
kvæðagreiðslur skulu vera bindandi.
Þá segir að Ísland eigi að vinna að
því að tryggja frið og öryggi í heim-
inum í samstarfi við vestrænar lýð-
ræðisþjóðir. Sérstaklega er tiltekið
að það skuli gert á vettvangi NATO
og með varnarsamningnum milli Ís-
lands og Bandaríkjanna.
Breyta á landbúnaðarkerfinu
Hvað varðar atvinnumál er miklu
púðri eytt í almennar yfirlýsingar
um nýsköpun og frumkvöðla-
starf, virka samkeppni og hagfelld-
an ramma utan um atvinnumál af
hálfu ríkisvaldsins. Einnig er vikið
sérstaklega að ákveðnum atvinnu-
greinum. Þar er meðal annars lögð
áhersla á innviða-uppbyggingu til
að nýta tækifæri og hámarka arð-
semi ferðaþjónustu.
Í landbúnaðarmálum vill Við-
reisn að almenn samkeppnissjónar-
mið ríki innan greinarinnar. Afnema
skuli innflutningshöft og tolla á
landbúnaðarvörur. Framleiðslu-
tengdir styrkir verið afnumdir og
beinum styrkjum verði fremur beitt.
Þá er lögð áhersla á að beita skuli al-
mennum aðgerðum í byggðamál-
um fremur en sértækum. Sérstak-
lega eigi þetta við um uppbyggingu
innviða líkt og vegakerfis og sam-
göngumannvirkja, raforku- og fjar-
skiptakerfa.
Viðreisn vill að námstími á grunn-
og framhaldsskólastigi verði styttur
og boðið verði upp á fjölbreytt-
ara nám. Gera þurfi skapandi og
starfstengdu námi hærra undir höfði.
Þá verði einstökum menntastofnun-
um veitt frelsi og svigrúm til að vinna
innan skýrra markmiða og ramma
sem settur verði um starfsemi
menntastofnana. Allir skuli hafa jöfn
tækifæri til háskólanáms og skulu
skólagjöld og námslán taka mið af
því. Kjör námslána taki mið af náms-
hraða, árangri og framgangi í námi. n