Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Síða 24
Helgarblað 27.–30. maí 201620 Fólk Viðtal
að vera einnar konu starf. Það gildir
um alla fjölmiðla.“
Þegar Eiríkur settist í ritstjóra-
stólinn á sínum tíma tóku lesendur
eftir talsverðum breytingum á blað-
inu. Í það minnsta á fólkinu sem
fjallað var um. „Eiríkur áttaði sig á
að eldra fólk er líklegra til að kaupa
blað. Samkeppnin við netið er hörð,
en hann tók réttan pól í hæðina.
Við verðum samt að þjóna mörgum
aldurshópum, og eldra fólkið á börn
og barnabörn og vill lesa um sigra
þeirra. Ég mun ekki leggja áherslu
á að yngja blaðið upp, þó að ég sé
yngri en Eiríkur. Meginmarkmið
okkar er að gera lífið skemmtilegra.
Við erum óheppin að vera ekki með
kóngafólk á Íslandi, en við viljum
lesa um fína og fræga fólkið. Fá sögur
af Íslendingum sem gengur vel í út-
löndum, sjá hvernig fólk býr, hverjir
eru saman og hverjir eignast börn.
Svoleiðis mál eru okkar meginlína.“
Ástu finnst mikilvægt að fólk sé
óhrætt við blaðið. „Það á að vera gam-
an að birtast í Séð og heyrt. Fólk á að
vilja vera gæinn sem einhver er að lesa
um uppi í sumarbústað eftir fimm ár.“
Ásta og Keli
Ásta sá um Stundina okkar í 5 ár,
1997–2002. Hún og Kötturinn Keli
stálu hjörtum barna á öllum aldri og
margir verða dreymnir og nostalgísk-
ir á svip þegar minnst er á þau. Ég er
forvitin um það hvernig samstarfið
kom til og hvaðan hugmyndin um
hreinskilna loðboltann Kela kom.
„Hugmyndin var eldgömul og kvikn-
aði þegar ég var að ljúka grunnskóla
og sá þátt í hollenska MTV, þar sem
stelpa og köttur voru þáttastjórnend-
ur. Við Steinn Ármann vorum búin
að þekkjast í fjölmörg ár áður en ég
fékk hann til að leika köttinn Kela.
Við kynntumst þannig að hann gekk
upp að mér á Hressó og sagði „veistu
hver ég er?“ ég neitaði, „ég er Flóri-
dana-gæinn,“ ertu hvað? sagði ég,
“Flóridana-gæinn“ endurtók hann
og varð pínu brjálaður yfir því að ég
skyldi ekki vera búin að sjá Flori-
dana-auglýsinguna sem hann lék í.
Svo sagði hann að ég væri miklu sæt-
ari með gleraugu og við höfum verið
vinir síðan. Þegar kom að Kela voru
fáir aðrir sem komu til greina. Hann
hélt reyndar að hann ætti að vera
köttur í fullri stærð, en hans örlög
urðu að liggja á hnjánum við hlið
mér í þessi fimm ár.“
Það er greinilegt að Ástu þyk-
ir vænt um árin í sjónvarpinu, Kela
og Stein Ármann. „Hann kenndi
mér mikilvæga lexíu, enda reyndur í
leikmyndadeild sjónvarpsins. Hann
útskýrði fyrir mér að sjónvarps-
fólk kæmi og færi stöðugt, en fólk-
ið í stoðdeildunum væri aðalmál-
ið. Stjörnuljósin brenna hratt upp,
en sminkan og leikmyndafólkið eru
alltaf á sínum stað.“
Fjölbreytnin réð ríkjum á þáttum
Ástu og Kela. „Kannski var þetta dá-
lítið meira í stíl við Séð og heyrt en
núna. Ég fylgdist vel með öllu sem
var að gerast og við tókum upp viku-
lega. Með því móti fær maður allt
annan brag en þegar meira er tek-
ið upp fyrirfram. Sem barn var ég
sólgin í þætti Davids Attenborough
og Carls Sagan, og lærði svo ótrúlega
mikið af þeim. Sjónvarpið er sterk-
ur fræðslumiðill. Þetta snýst ekki um
fíflaskap, eða að tala niður til barna,
heldur að kenna þeim á skemmti-
legan hátt. Það er ákveðin kúnst að
gera fræðslu skemmtilega.“
Vitjunartíminn
Síðustu mánuðina í sjónvarpinu
var Ásta kasólétt, hún eignaðist
son skömmu eftir lokaþáttinn. „Ég
verð svo sjúklega ólétt, alveg allan
hringinn. Þetta var góður tími til
að hætta. Ég var búin að vinna með
þremur framleiðslustjórum, búin að
fara hring um landið og vera mjög
virk í að fylgjast með barnamenn-
ingu þessi fimm ár. Hætta ber leik þá
hæst stendur, og það er mikilvægt að
þekkja sinn vitjunartíma og ég var
reiðubúin að einbeita mér að öðru.
Ég er mjög stolt af öllu efninu sem
liggur eftir okkur. Fullt af krökkum
kom í stúdíóið hjá okkur, og margir
þeirra eru framarlega í tónlist, leik-
list og menningu í dag.“ Ég spyr Ástu
hvort hún gæti hugsað sér að snúa
aftur í sjónvarp. „Já, ég væri alveg til
í það, ef eitthvað skemmtilegt byðist.
Ég veit samt ekki hvort maður fest-
ist á filmu eftir fertugt. Ef það er til
hrukkufilter slæ ég kannski til.“
Dans og hlaup að næturlagi
Ásta er á fullu í dansi. Hún elskar að
dansa og er meira að segja hluti sýn-
ingarhóps. „Dans er það skemmtileg-
asta sem ég geri. Ég var alltaf svo léleg
í íþróttum í skóla, skrópaði, reif kjaft
og skildi ekki boltaleiki. Ég kynntist
djassballett sem unglingur í Banda-
ríkjunum og áttaði mig á að þetta væri
gaman. Ég hafði samt ekki trú á mér
sem dansara og eyddi miklu meiri
tíma á bókasöfnum. Í Garðabænum
byrjaði ég í dansi hjá Dísu, sem núna
rekur World Class, og í menntó fór ég í
samkvæmisdansa. Mig vantaði dans-
herra og gabbaði pabba minn með.
Um fertugt uppgötvaði ég svo Zumba
hjá Tönju Dimitrovu, og þá var ég
bara komin heim. Tanja er ótrúleg,
svo litrík og alltaf vel skreytt og með
hárkollur eða eitthvað. Í Zumba eru
grunnspor úr djassballett og sam-
kvæmisdansi, og þú þarft ekki mótað-
ila. Ég er núna meðlimur í Dansdívu-
hópnum og við skemmtum við ýmis
tækifæri. Brussur á ýmsum aldri sem
breytumst í dívur og erum ósigrandi
frábærar. Dans er besta geðlyf í heimi
og ég dansa heima hjá mér daglega.“
Ásta er líka hlaupari og hleypur
meira að segja að næturlagi. „Í nótt
gat ég ekki sofnað, enda skil á fyrsta
blaðinu mínu yfirvofandi. Ég var
komin í ótrúlega flottan bleikan silki-
náttkjól, reif mig úr honum og fór í
hlaupagallann. Svo setti ég Ramm-
stein í eyrun og hljóp 6 kílómetra við
„Du hast“. Ég er samt ekki töff hlaup-
ari, meira í ætt við Phoebe í Friends.“
Embættið
Það liggur beint við að spyrja Ástu
hvernig henni hugnist baráttan um
forsetastólinn, nú þegar líður að
kosningum. „Ég hef alltaf litið svo á
að embætti forseta eigi að vera óháð
og sjálfstætt, og ég tel að við þurfum
að dansa í takt við þarfir nútímans.
Öllum er hollt að þekkja sinn vitj-
unartíma, hvort sem er í pólitík eða
öðru landslagi. Það er ákaflega brýnt
fyrir þjóðina að nýta Bessastaði ekki
sem endurvinnslustöð fyrir gamla
stjórnmálamenn. Við eigum að fá
þangað hlutlausan aðila sem hefur
ferska sýn og er óumdeildur.“
Það hlýtur að vera gósentíð
framundan hjá Ástu og félögum á Séð
og heyrt vegna forsetakosninganna.
„Við fylgjumst með öllu og viljum endi-
lega að fólk sendi okkur ábendingar,
um frambjóðendur og aðra. Við höf-
um reynt að gera öllum frambjóðend-
um jafnhátt undir höfði og hlökkum til
að fylgjast með þeim sem taka við búi
á Bessastöðum. Ólafur Ragnar prýðir
forsíðu blaðsins núna. Blaðið og Ólaf-
ur hafa haldist í hendur í 20 ár og það
er gaman að hafa þá sögu.“
Meira en stelpa með kött
Ég hef oft heyrt fólk tala um Ástu sem
stelpuna sem var með Stundina okk-
ar. Ennþá í dag, tuttugu árum seinna.
Ímyndin er lífseig. „Margir halda að
ég sé skotta með krullur og gleraugu
og það sé ekki mark á mér takandi.
Sem er drepfyndið því ég varð grá-
hærð 18 ára. Auðvitað vil ég að fólk
taki mig alvarlega, ég er á fimmtugs-
aldri og svo miklu meira en bara
barnatímaskvísa, þó að fólk muni
mjög vel eftir mér og Kela. Ég held
áfram í lífinu eins og allir aðrir.“
„Kannski hljómar það klisjukennt,
en samt ekki,“ segir Ásta Hrafnhildur
og hugsar sig um. „Ég kann í grunninn
mjög vel að meta einfaldleika lífsins.
Hann er svo dýrmætur. Ég þarf ekki
meira en lóuna og að hafragrauturinn
hafi heppnast til að verða hamingju-
söm í dagsins önn.“ n
„Ég tel mig græða
á meðvirkninni. Í
staðinn fyrir að dvelja við
vandræði, þarf að nýta
þau til góðs
Sátt eftir
skilnaðinn
Nýskilin eftir 15
ára hjónaband.
HVAR ER SÓSAN?
Þegar þú ert að pakka niður fyrir útileguna er nauðsynlegt
að hafa forgangsröðunina á hreinu.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.
LÍFRÆN EGG
nesbu.is
Í FYRSTA SINN Á ALMENNUM
NEYTENDAMARKAÐI
NESBÚ
EGG