Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Síða 29
Helgarblað 27.–30. maí 2016 Menning 25 SÚM og var einn fjögurra listamanna sem sýndi á fyrstu sýningu hóps- ins í Ásmundarsal árið 1965, ásamt Jóni Gunnari Árnasyni, Sigurjóni Jó- hannssyni og Hauki Dór Sturlusyni. „Sýningin í Ásmundarsal hef- ur verið álitin dálítil tímamót og er kannski álitin það ennþá – ég veit ekki hvernig hún er afgreidd af list- fræðingum sem skoða íslenska lista- sögu í dag,“ segir Hreinn. Þar sýndi hann meðal annars verk sem hann nefndi Komið við hjá Jóni Gunnari. Verkið var hurð sem Hreinn hafði fengið augastað á heima hjá Jóni Gunnari og fékk að hirða þar sem hún var ekki í notkun. Hann braut hana, málaði brotin í grunnlit- um og hengdi upp. „En ég braust ekki inn til hans eins og margir halda,“ segir Hreinn og hlær. Nú hálfri öld síðar sýnir hann aft- ur hurð í Ásmundarsal, núna er hún hins vegar heil en úr skráargatinu skín ljóstíra sem vekur með manni þá tilfinningu að eitthvað sé á bak- við hana, að hún opni gátt inn í ann- að rými. List Hreins Friðfinnssonar fæst oftar en ekki um það sem liggur handan við hið sýnilega, hvað það er er ekki ljóst, það er einungis tilfinn- ingin um að eitthvað sé þarna hinum megin, einhver merking, eitthvert leyndarmál. „Ég hafði lengi hugsað að mig langaði að fara í verslun og kaupa ferska hurð og sýna í rýminu, eins og readymade eftir Duchamp eða eitthvað. Helst vildi ég hafa það sams konar hurð og var í rýminu. Og þannig er það í gryfjunni, í gegn- um innanhússglugg- ann blasir við svipuð en funksjónal hurð. Í mínum huga er hún hluti af verkinu en ég stóðst freistinguna að merkja hana, það hefði kannski verið aðeins of langt geng- ið. Ég læt bara fólk um það hvort því detti í hug að tengja þetta saman. Þetta er svona smá „secret,““ segir Hreinn og glottir. Svífandi flökkuhús Það er ekki aðeins á bak við hurðina sem nýtt rými opnast með leik að væntingum áhorfandans. Í verkinu Portal er svart kúlnaband þrætt milli tveggja mótstæðra spegla í gólfi og lofti svo manni virðist sem bandið liggi í gegnum þakið upp á næstu hæð og rými ofan í jörðinni. Í verkinu Illustration skapar Hreinn svo örsmáan draumkenndan heim ofan í kúptri skál sem stendur á stöpli í horni rýmisins. Þar vinnur hann áfram með The House Project, sem hann hefur íslenskað sem Hús- söguna, en það er líklega þekktasta verk listamannsins. Verkið á rætur sínar að rekja til ársins 1974 þegar Hreinn byggði lítinn kofa í hrauninu fyrir utan Hafnarfjörð. Þetta fyrsta hús seríunnar var innblásið af hug- myndum Sólons Guðmundssonar, persónu í Íslenskum aðli, skáldsögu Þórbergs Þórðarsonar, en sá ævin- týramaður hafði ætlað sér að byggja hús á röngunni, með bárujárnið inni og veggfóðrið úti. Annað hús var byggt meira en þremur áratugum síðar í Frakklandi en þá hafði því ver- ið snúið á réttuna, og árið 2011 hafði það svo umbreyst í grind að húsi sem var aftur komið fyrir á sama stað í hrauninu. Í Illustration hefur lítilli plat- ínumgrind, smækkaðri útgáfu af þessu sama húsi, verið komið fyrir ofan í kúptri skál, ofan á loftmynd af hrauninu. Með speglum ofan í skál- inni skapast sú sjónhverfing að hús- grindin takist á loft og fljóti upp úr hrauninu og ofan á skálinni. „Þetta er myndskreyting af þriðja húsinu, hliðarafurð af því verki. En hús núm- er fjögur er ef til vill á leiðinni. Ef mér tekst að gera fjórða húsið verður það líka svona flökkuhús, nomadic,“ seg- ir Hreinn. Við vorum einu sinni nágrannar Í efri rýminu í safninu og á ganginum eru verk eftir bandaríska málarann John Zurier en þeir Hreinn kynnt ust þegar þeir sýndu báðir á myndlist- artvíæringnum í Sao Paolo og voru – eins og nafnið gefur til kynna – með sýningarrými í nágrenni við hvor ann- an. „Mjög lítið af málverkunum á þessum bíennal höfðu höfðað til mín, en einn kollegi sagði mér að athuga þennan nágranna minn sem væri eins konar landslagsmálari sem málaði mikið á Íslandi. Mér fannst þetta svo- lítið fyndið, þarna voru verk sem hétu eftir íslenskum örnefnum: Í Jökuldal, eða eitthvað svoleiðis,“ segir Hreinn. „Maðurinn reyndist einkar geðs- legur náungi og ég fór að dragast æ oftar inn til hans að skoða verkin bet- ur. Fyrst hafði mér fundist verkin vera svolítið liðin tíð, eins og frá síðustu öld, en svo sannfærðist ég um að þetta væri virkilega „contemporary“ og bara mjög viðeigandi á þessu augna- bliki. Ég sagði við hann að það væri nauðsynlegt að skipuleggja sýningu á verkum hans á Íslandi fyrst hann væri hérna svona mikið, og hann svarar eins og dæmigerður kurteis Banda- ríkjamaður: Eigum við ekki bara að sýna saman?“ n „Ég braust ekki inn til hans eins og margir halda. „Ef mér tekst að gera fjórða húsið verður það líka svona flökkuhús. „Hann svarar eins og dæmigerður kurteis Bandaríkjamað- ur: Eigum við ekki bara að sýna saman? Portal (2016) Mynd Sigtryggur Ari door (2016) Mynd Sigtryggur Ari Komið við hjá Jóni gunnari, endurgerð (2016) Mynd Sigtryggur Ari third house (2011) Sumargjöfin í ár! fæst í scootlife ísland, Rofabæ 9, 110 Rvk Þráðlausu Touch heyrnartólin eru seld í Scootlife Ísland. Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki. Einnig er hægt að svara í símann með þeim. Hópefli í fákaseli Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.Is | símI: 483 5050 Matur, drykkur og skemmtun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.