Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Side 40
Helgarblað 27.–30. maí 2016
41. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 445 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
SÍÐUmúla 9 · SÍmi 530 2900lágmúla 8 · SÍmi 530 2800 · ormsson.is
FYRiR HEimiliN Í laNDiNU
Fögnum íþróttasumrinu
með nýrri árgerð, 2016-17
65” Samsung KS9005T
SamSUNgSEtRiD.iS
SUHD • ULTRA HD PREMIUM • HDR1000 • 4K • QUANTUM DOT DISPLAY • SMART TV
55” Samsung KS8005T 55” Samsung KS7005
SUHD • ULTRA HD PREMIUM • HDR1000 •
4K • QUANTUM DOT DISPLAY • SMART TV
SUHD • ULTRA HD PREMIUM • HDR1000 •
4K • QUANTUM DOT DISPLAY • SMART TV
Þetta merki er eingöngu
notað fyrir vörur sem
uppfylla efri mæligildi
mynd- og hljóðgæða.
Hátt dynamic svið (HDR),
hámarks styrkleiki ljóss,
svarti liturinn og breið
litapalletta er þess á
meðal. Einnig er merkið
staðfesting á betri
hljómgæðum. Framfarir í
upplausn, skerpu, birtu,
lit og hljóði hafa verið
hraðar, en með þessu
merki ættu flestir að sjá
hvar mestu gæðin eru.
Ó borg,
mín borg!
Stoppar stutt
n Samfélagsmiðladrottningin
Manúela Ósk Harðardóttir er
orðinn reglulegur gestur í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar en síðustu
vikur og mánuði hefur hún verið
dugleg að fljúga vestur um haf
og til baka. Fylgjendur hennar á
Instagram fengu í síðustu viku að
fylgjast með ævintýrum hennar í
Los Angeles þar sem hún er tíður
gestur. Fegurðar-
drottningin fyrr-
verandi stopp-
aði einungis í
nokkra daga
og er nú kom-
in heim eftir
millilendingu í
Boston.
Barnalukka
Henrys
n Íþróttafréttamaðurinn Henry
Birgir Gunnarsson hjá 365 miðl-
um og eiginkona hans, Hild-
ur Sigurðardóttir, eignuðust á
mánudag litla stúlku. Hjónin,
sem áttu tvö börn fyrir, voru að
vonum hæstánægð með komu
þriðja barnsins eins og sjá
mátti í mynda-
albúmi sem faðir-
inn stolti birti á
Facebook síðu-
sinni. „Hraust
og glæsi-
leg eins
og hetjan
hún móð-
ir henn-
ar,“ sagði
Henry.
Hermdi eftir Davíð
n Forsetaframbjóðandinn Dav-
íð Oddsson rakst, ásamt föruneyti
sínu, á grínistann Ara
Eldjárn fyrir utan
Kaffihús Vestur-
bæjar á miðviku-
dag. „Hann var
þarna með sínu
fólki að taka upp eitt-
hvert innslag. Ég stóðst ekki mátið
og tók í höndina á honum og heils-
aði með minni bestu Davíðs-röddu.
Hann spurði hvort hann fengi pró-
sentur fyrir vikið og ég sagðist ekki
greiða prósentur fyrir eftirhermur.
Þá sagðist hann vera að meina pró-
sentur í skoðanakönnunum,“ segir
Ari í samtali við DV.
É
g ætla að gefa út tíu laga plötu
í sumar með lögum eftir mig.
Platan mun heita Ég elska lífið
eftir titillagi hennar,“ segir Ólaf-
ur F. Magnússon læknir, tónlistar-
maður og fyrrverandi borgarstjóri.
Ólafur hefur síðustu vikur og
mánuði tekið upp fjögur mynd-
bönd við lög af plötunni og birt þau á
Youtube. Nýjasta lagið, Gott og göfugt
hjarta, fór á vefinn í byrjun vikunnar.
DV barst ábending um að Ólafur hefði
sést við Gálgahraun í Garðabæ, ásamt
myndatökumanni, um síðustu helgi
en þar var hann staddur til að taka
upp tónlistarmyndband við titillagið.
„Lagið er tilbúið en við erum nú
að taka upp myndefni úti í náttúr-
unni því það verður nú að vera líf-
rænt og fallegt í myndbandi við lag
sem heitir Ég elska lífið. Ég hef ver-
ið að fást við, í vaxandi mæli síðustu
þrjú árin, að semja lög og ljóðin sem
ég sjálfur við þau. Páll Rósinkranz
hefur sungið fimm lög fyrir mig.
Nokkur þeirra sendi ég í Eurovision
en meira svona í gamni því þetta eru
melódíur meira en rokklög. Þessi lög
sem Páll söng verða ásamt fimm öðr-
um á nýju plötunni,“ segir Ólafur.
Borgarstjórinn fyrrverandi tekur
fram að hann ætli sér einungis að
gefa út plötu en ekki mynddisk.
Hann gerir sér ekki vonir um að plat-
an seljist vel.
„Ég hef lagt mikið í þessi lög og
ég veit að plötur seljast mjög lítið. Ég
er meira að gefa þetta út málefnisins
vegna og skrá lögin þannig að þau fái
spilun. Ég er ekki að gera mér neinar
vonir um að selja eitthvað. Fyrir mig
persónulega er þessi listsköpun and-
legur fjársjóður en ekki veraldlegur,“
segir Ólafur.
„Ég vissi ekki að ég gæti eitthvað
í tónlist. Þegar ég hætti í pólitík 2012
var ég mjög veikur í heilt ár og var við
dauðans dyr út af miklu þunglyndi
og öllu eineltinu sem ég hef orðið
fyrir. Svo smám saman sneri ég aftur
til lífsins og það sem kom mér á flug
aftur var að ég fór að semja ljóð og lög.
Nú er ég farinn að syngja og tónlistin
orðin mín langstærsta lífsfylling. Það
er nú oft þannig að þegar fólk lendir
í miklum erfiðleikum, en kemst yfir
þá, sprettur upp nýr og betri maður.
Ég held ég geti sagt það um mig að ég
sé miklu skemmtilegri og afslappaðri
persóna en ég var þegar ég var í
pólitíkinni,“ segir Ólafur. n
haraldur@dv.is
Tónlistin er stærsta lífsfylling borgarstjórans fyrrverandi
Ólafur F. gefur út plötu „Nú er ég farinn að syngja og tónlistin orðin mín langstærsta
lífsfylling.
Elskar lífið Ólafur F. Magnússon einbeitir
sér nú að tónlist.