Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 25
Helgarblað 23.–26. september 2016 Kynningarblað - Með allt á hreinu 5 Einungis handþvottur – engir kústar eða burstar Bón- og þvottastöðin, Grjóthálsi 10 B ón- og þvottastöðin státar af sérlega glæsilegri bíla- þvottastöð að Grjóthálsi 10, við hliðina á Skeljungi við Vesturlandsveginn. Að sögn Ara Rafns Vilbergssonar fram- kvæmdastjóra var Bón- og þvotta- stöðin fyrsta sjálfvirka bílaþvottastöð- in á Íslandi en hún var stofnuð árið 1968. Rekstur stöðvarinnar hófst í Sóltúni og var þar samfleytt í nærri 40 ár – eða allt til ársins 2007. Hjá Bón- og þvottastöðinni er einungis beitt handþvotti, engir kústar eða burstar notaðir, enda tel- ur Ari það veita besta árangurinn og skila mun meiri gæðum: „Í boði hjá okkur er öll sú meðferð sem nýtist best til þess að þrífa bílinn og bóna hann af natni, eins og tjöruhreinsun, háþrýstiþvottur, handþvottur, bón og þurrkun á sjö mínútum,“ segir Ari. „Bílaþvotturinn er allur unninn í höndunum með svömpum, bón er síðan sett á bílinn og loks þurrk- að með míkró fíber-klútum ásamt því að þurrkað er úr fölsum bílanna. Við leggjum einungis stund á handþvott sem við teljum veita besta árangur- inn og notum hvorki kústa né bursta.“ Byltingarkennd, glæný leið til að bóna bílinn „Bón- og þvottastöðin tók nýlega í notkun glænýja bónaðferð sem kall- ast Gullfoss og hefur slegið í gegn hjá okkur,“ segir Ari. „Um er að ræða þá skemmti- legu viðbót að fá allsherjar bón á bíl- inn sem endist mun lengur og veit- ir líka aukinn gljáa. Gullfoss er ný og byltingarkennd aðferð við að bera bón á bíla. Bíllinn fer þá í gegnum vegg af þykku lagi af bóni sem rennur í alla króka og kima á bílnum auk þess sem litadýrðin gleður augað.“ n Bón og þvottastöðin Grjóthálsi 10, 110 Reykjavík Sími: 588-1010 Opnunartími: Virka daga: 8.00–18.00, laugardaga: 10.00–16.00 www.bon.is Ummæli ánægðra viðskiptavina:„Algjörir snillingar og frábær þjónusta.„5 stjörnu þvottastöð!„Ég ætla aldrei aftur að þvo bílinn minn sjálfur …„Fæ alltaf afbragðsþjónustu og glampandi hreinan bíl hjá þessum snillingum!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.