Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 33
Helgarblað 23.–26. september 2016 Fólk Viðtal 25 fyrirsjáanlegri rúmlegu og fjarveru frá vinnu. Hefði átt að sleppa með mar Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er bifreiðin gjörónýt, en farþegahliðin sérstaklega illa farin. „Ég vil vart hugsa þá hugsun til enda ef það hefði verið farþegi með mér. En bíllinn er minna skemmd- ur mín megin og ég held að ef beltið hefði virkað þá hefði ég gengið frá þessu slysi, með kannski mar eftir bílbeltið. En af því að beltið fór alltaf með mér í veltunni þá meiddi ég mig svona. Beltið hefði átt að halda mér í sætinu.“ Jóhanna segir að í samtali við lögreglumann í kjölfar slyssins hafi henni verið hugsað til þess að hún muni ekki eftir því að hafa fundið fyrir mótstöðu í beltinu, eins og gerist t.d. þegar maður rífur of snöggt í það. „Ég man aldrei eftir að hafa lent í því í þessum bíl. Kannski hefði ég átt að vera búin að hugsa út í það en eins og lögreglumaðurinn sagði við mig; við gerum bara ráð fyrir því að allur öryggisbúnaður sé í lagi. En það virðist ekki hafa verið þarna. Og bara augnabliks athyglisbrestur getur haft skelfilegar afleiðingar. Þetta er fyrsta slysið sem ég lendi í og ég er ekki búin að sofa í tvær nætur,“ segir Jóhanna sem ræddi við blaða- mann DV á miðviku- dag eftir slysið. Umboð vill skoða málið Jóhanna kveðst hafa rætt við Bílabúð Benna, umboðsaðila bílsins, eftir slysið og þar á bæ hafi menn í huga að skoða málið. Björn Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri bílasviðs hjá Bílabúð Benna, staðfestir í samtali við DV að bíll- inn verði skoðaður betur og reynt verði að ganga úr skugga um hvort hugsanlega hafi eitthvað brugðist. Í því ferli verði haft samráð við fram- leiðanda en einnig hafi umboðið kannað hvort rannsóknarnefnd umferðarslysa skoði mál sem þessi, þar sem grunur leikur á að bún- aður hafi brugðist. En svo er víst ekki. Að sögn Björns fengust þó þær upplýsingar hjá nefndinni að þekkt sé, í bílum almennt, að upp komi tilfelli þar sem bílbelti og loftpúðar bregðist þegar bílar fari veltur. Öryggisbúnaðurinn sé fyrst og fremst hannaður til að bregðast við í árekstri. Þá springi púðarnir út og beltin kippist að farþegum. En stundum virðist þessi búnaður al- mennt ekki virka í bílveltum. Hann segir að bílaumboðið hyggist mynda bílinn betur og senda upplýsingar til framleiðanda og hugsanlega leita til óháðs að- ila sem gæti rannsakað bílinn. Hjá framleiðanda fái þeir síðan fyrir- mæli um hvort lesa eigi á upplýs- ingar úr tölvu bílsins þar sem getur komið fram hvort beltin eða ann- að hafi ekki virkað eins og það á að virka. „Okkur er umhugað um öryggi okkar viðskiptavina og allra sem keyra þessa bíla frá okkur.“ n „Við gerum bara ráð fyrir því að allur öryggisbúnaður sé í lagi. En það virðist ekki hafa verið þarna. Borin af vettvangi Hér má sjá mynd af vettvangi þar sem verið er að bera Jóhönnu af slys- stað í Sandgerði. AðsendAr myndir Útivistarkona Jóhanna er fyrst og fremst þakklát fyrir að ekki fór verr, en segir að það verði þrautin þyngri að taka því rólega í tvo mánuði eftir slysið. illa farinn á vettvangi Eins og sjá má fór farþegahlið smábílsins afar illa. Mikil mildi að enginn farþegi var með í för, segir Jóhanna. Ónýtur Bifreiðin er af gerðinni Chevrolet Spark . Hér má sjá dekkið bílstjóra- megin sem lenti á stórum steini sem varð t il að bíllinn kollvarpaðist og velti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.