Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 21
Kynningarblað Með allt á hreinu Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 23. september 2016 Er gamla æðardúns- sængin þín orðin slitin? Morgunroði ehf. – sími 893-2928 F ólki þykir eðlilega vænt um æðardúnssængurnar sín­ ar enda afskaplega notalegt að sofa með slíkar ábreiður ofan á sér. En æðardúns­ sængur slitna eins og aðrir ver­ aldlegir hlutir og stundum fara þær að leka að auki og æðar­ dúnninn getur verið orðið óhreinn. Margir vita ekki að hér á landi er hægt að fá þá þjónustu að fá gömlu slitnu æðar­ dúnssængurnar sínar góðar á ný. Dóróthea Guðrún Sigvalda­ dóttir rekur fyrirtæk­ ið Morgunroða, sem staðsett er við Borgar­ nes, og þar er meðal annars boðið upp á þá þjónustu að koma með slitnar æðardúnssængur. Æðardúnninn er þá þveg­ inn og settur í nýtt ver og fólk fær til baka mjúka, slétta og fallega æðardúnssæng. „Við þvoum æðardúninn, skiptum um dúnver á gömlum æðardúnssængum og setjum nýj­ an æðardún í dúnver. Einnig selj­ um við nýjar æðardúnssængur og merkjum æðardúnssængur,“ segir Dóróthea. Fyrir utan þessa þjónustu við sængureigendur sinnir Morgun­ roði öllum æðardúnþvotti fyrir fyrirtækið RR Dúnhreinsun í Borgar­ nesi. Dóróthea fær þá æðardúninn til sín grófhreinsaðan og skilar honum hreinum til baka svo hann er tilbúinn í framleiðsluvörur, sængur eða ann­ að. Dúnþvotturinn er þar í vissum skilningi hluti af framleiðsluferlinu. Enn fremur sinnir Morgunroði dúnþvotti fyrir einstaklinga sem hafa dúntekju og þurfa að láta þvo dún­ inn sinn. Margt dúntekjufólk veit ekki af þessari þjónustu en hún getur komið sér afar vel. Til að kynna sér og nýta sér þjón­ ustu Morgunroða ehf. er best að hafa samband í síma 893­2928. n „Við þvoum æðardúninn, skiptum um dúnver á gömlum æðardúnssængum og setjum nýjan æðardún í dúnver. Einnig seljum við nýjar æðardúns- sængur og merkjum æðardúnssængur. Tilboð á Lappset útileiktækjum 2016 Leitið til sölumanna í síma 565 1048 HEILDARLAUSNIR FYRIR LEIKSVÆÐI - Leiðandi á leiksvæðum jh@johannhelgi.is • johannhelgi.is Uppsetningar, viðhald og þjónusta • Útileiktæki • Girðingar • Gervigras • Hjólabrettarampar • Gúmmíhellur • Fallvarnarefni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.