Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 34
Helgarblað 23.–26. september 201626 Sport
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp á
viðgerðarþjónustu fyrir
flestar gerðir túrbína.
Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
Viðgerða- og varahlutaþjónusta í yfir 30 ár
Bætir ehf hefur í rúm 30 ár boðið uppá alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir breiðann
hóp viðskiptavina. Við þjónustum og útvegum varahluti í flestar tegundir dísilvéla og höfum
mikla reynslu í ZF og Twin Disc gírum. Bætir ehf hefur um árabil boðið uppá há gæða
varahluti, frá framleiðendum á borð við IPD og Interstate Mcbee, sem henta m.a. í vélar frá:
Caterpillar® Cummins® Detroit Diesel®
Nöfn vélaframleiðenda eru hér aðeins til upplýsinga og eru vörumerkin eign hvers framleiðanda. Cat® og Caterpillar® eru skrásett vörumerki í eigu Caterpillar Inc. Cummins® er skrásett vörumerki í eigu Cummins Engine Company. Detroit Diesel® er skráett vörumerki í eigu Detroit Diesel Corporation.
Snillingurinn
Sem hvergi er húSum hæfur
n hatem Ben Arfa enn á ný að klúðra gullnu tækifæri n Kominn í kuldann í París
A
ðeins tæpum þremur
mánuðum eftir að draumur
hans rættist og hann skrif-
aði undir samning hjá stór-
liði Paris-Saint Germain
er breyski snillingurinn Hatem Ben
Arfa kominn í vandræði. Hann náði
aðeins að leika þrjá deildarleiki
með liðinu sem hann dreymdi um
að leika með sem ungur drengur í
Frakklandi, en síðustu þrjá leiki hef-
ur hann mátt horfa á úr stúkunni.
Unai Emery, knattspyrnustjóri
PSG, hefur gagnrýnt hugarfar, fram-
lag og frammistöðu Bens Arfa inn-
an vallar sem utan, leynt og ljóst að
undanförnu og sett hann út í kuld-
ann. Með þeim skilaboðum meðal
annars að Ben Arfa sé „enginn
Messi“ og „geti ekki unnið leiki
upp á sitt einsdæmi,“ að því er hið
virta franska sportdagblað L‘Equipe
greinir frá innan úr herbúðum PSG.
Ben Arfa virtist loks hafa náð þeim
hæðum sem búist hafði verið við af
honum síðan hann var táningur með
Nice á síðasta tímabili. En nú virðist
hann vera að klúðra gullnu tækifæri
– og ekki í fyrsta skipti.
15 ára undrabarn
Ben Arfa hóf atvinnumannsferil sinn
hjá Lyon í Frakklandi en frá því hann
var 15 ára gamall hafði verið talað um
hann sem undrabarn og stórstjörnu
framtíðarinnar í heimalandinu.
Óumdeilt hefur verið alla tíð að Ben
Arfa sé gæddur einstökum hæfileik-
um og þegar hann er í stuði þá stand-
ast fáir honum snúning á vellinum.
En hugarfar hans og framkoma hefur
oftar en ekki eitrað samband hans við
liðsfélaga og þjálfara.
Áður en hann gekk til liðs við
Lyon hafði hann sem unglingur
verið valinn til að sækja hina virtu
Clairefontaine knattspyrnuakadem-
íu þar sem honum lenti meðal
annars saman við annan ungan og
upprennandi leikmann, Abou Di-
aby, sem síðar átti eftir að leika með
Arsenal.
Ungstirni í átökum
Orðstír Bens Arfa skánaði talsvert hjá
Lyon þar sem hann var umkringdur
öðrum ungum og efnilegum leik-
mönnum á borð við Michael Essien,
Florent Malouda og Karim Benzema.
Fjögur ár hans hjá Lyon voru
stormasöm og sögur af ósætti milli
Benzema og Bens Arfa skutu reglu-
lega upp kollinum. Ben Arfa, þá 21
árs og nýkjörinn besti ungi leikmað-
ur deildarinnar, skrifaði undir nýjan
samning við Lyon árið 2008 en ekki
leið á löngu þar til allt fór í háa loft.
Ben Arfa mun hafa lent í slagsmálum
við Sebastian Squillaci á æfingu og
farið var að orða hann við önnur lið.
Sumarið 2008 var hann orðaður
við m.a. Arsenal, Manchester United
og Real Madrid en einnig var hávær
orðrómur um að hann væri eftir-
sóttur af keppinautunum í Marseille
sem virtust vera að landa honum.
En Lyon hætti við allt saman. Því tók
Ben Arfa illa. Hann mætti í viðtal og
lýsti því yfir að hann væri búinn að
skrifa undir hjá Marseille og myndi
ekki snúa aftur til Lyon á undirbún-
ingstímabilinu. Í júlíbyrjun 2008,
eftir að samtök knattspyrnumanna
í Frakklandi höfðu blandað sér í
deiluna, var síðan tilkynnt um kaup
Marseille á Ben Arfa fyrir 12 milljón-
ir evra.
Slagsmál og enskt flopp
Eftir vænlega byrjun á ferlinum hjá
Marseille, endaði þriggja ára dvöl
hans þar með álíka látum. Hann lenti
í átökum við liðsfélaga á ný á æfinga-
svæðinu, að þessu sinni Modeste
M‘Bami, hann neitaði að hita upp
og koma inn á sem varamaður í tap-
leik gegn PSG, skrópaði á æfingar
og lenti í útistöðum við þjálfarann.
Við tók dvöl hjá Newcastle. Þar líkt
og áður sýndi Ben Arfa oft og tíðum
glæsileg tilþrif og snilld sína næstu
fjögur tímabil. En ferill hans þar
fór í vaskinn sömuleiðis. Í septem-
ber 2014 lánaði Newcastle hann til
Hull City út tímabilið þar sem hann
lék aðeins átta leiki. Í desember lét
Ben Arfa sig hverfa af landi brott án
þess að láta nokkurn mann hjá Hull
vita. Steve Bruce, stjóri liðsins, viður-
kenndi að hann vissi ekkert hvar leik-
maðurinn væri niðurkominn. Í janú-
ar 2015 var Ben Arfa leystur undan
samningi sínum hjá Newcastle.
Mátti ekki spila
Nokkrum dögum síðar birtist hinn
áður týndi Ben Arfa í Frakklandi þar
sem hann hafði skrifað undir samn-
ing við Nice. „Jafnvel þó að Real Ma-
drid hefði haft samband þá hefði ég
samt komið hingað. Ég var búinn að
ákveða mig,“ lét Ben Arfa hafa eftir
sér. Kvaðst hann njóta trausts þarna
hjá fólki sem dæmdi hann ekki eins
og aðrir. Vandamálið var hins vegar
að Ben Arfa mátti ekki leika með Nice
það sem eftir lifði tímabils, því hann
hafði þegar leikið með Newcastle
og Hull á einu og sama tímabilinu. Í
febrúar var samningi hans við Nice
rift en félagið samdi aftur við hann
um sumarið.
Blómstraði hjá Nice
Hjá Nice átti Ben Arfa óvænt sitt
besta tímabil á ferlinum og var
hann einn besti leikmaður Ligue
1-deildarinnar. Hann blómstraði
undir stjórn Claude Puel, skoraði 18
mörk á tímabilinu, þar af 17 í deild,
og hjálpaði liðinu að tryggja sér 4.
sætið. Ben Arfa sýndi loks vikulega
hversu góður hann var í fótbolta og
að hann væri leikmaðurinn sem
svo margir töldu að hann gæti orðið
sem unglingur. Hann vann sér sæti
í franska landsliðinu á ný, þar sem
hann hefur aldrei átt fast sæti, og allt
virtist í blóma.
Draumabyrjun varð að martröð
Hinn 29 ára gamli Ben Arfa fór síðan
á frjálsri sölu til Paris-Saint Germain
síðastliðið sumar en hann hafði ver-
ið eftirsóttur af fjölmörgum liðum í
Evrópu. Ben Arfa hafði alltaf dreymt
að spila fyrir PSG og hóf ferilinn með
því að skora gegn sínum gömlu fé-
lögum í Lyon, í Trophée des Champ-
ions, leiknum sem vanalega er á milli
deildar og bikarmeistara í upphafi
tímabilsins í Frakklandi. Síðan þá
hefur Ben Arfa aðeins komið við sögu
í þremur deildarleikjum, en er kom-
inn út í kuldann á ný. Draumurinn er
orðinn að martröð og ljóst að hann
þarf að leggja sig fram við að vinna
stjórann, Unai Emery, aftur á sitt
band. En miðað við sögu hans búast
fæstir við því að Ben Arfa gefi eftir.
Nú þegar er farið að orða hann við
Southampton í janúarglugganum,
þar sem Claude Puel, maðurinn sem
náði því besta út úr honum hjá Nice,
er nú við stjórnvölinn. n
Strax í vanda Hatem Ben Arfa var í skýjunum með að skrifa undir hjá PSG í Frakklandi
í sumar. Félaginu sem hann hafði stutt frá barnsaldri. Hann var ekki lengi að koma sér í
vandræði þar. MyNDir EPA
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Látinn heyra það Unai Emery, stjóri PSG,
hefur gagnrýnt Ben Arfa og krafið hann um
að vera meiri liðsmaður. Líklega ekki fyrsti
stjórinn sem það gerir.
Blómstraði í Nice Ben Arfa lék á als oddi
hjá Nice og átti sitt besta tímabil á ferlinum.
Ungstirni hjá Lyon Ben Arfa var einn
fjölmargra efnilegra leikmanna í frábæru
liði Lyon sem einokaði franska meistaratitil-
inn eftir aldamót.