Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 2
Helgarblað 23.–26. september 20162 Fréttir Fjarlægir tannstein. Vinnur gegn sýkingu í tannholdi. Berst gegn andfýlu. Náttúrulegt gæludýrafóður og umhirða Pantanir og fyrirspurnir: 8626969 | 8996555 platinum@platinum.is | platinum.is Ekki láta þetta ganga svona langt. OralClean+Care 100 % náttúrulegt R ithöfundurinn og drottning íslenskra glæpasagna, Yrsa Sigurðardóttir, hefur átt mikilli velgengni að fagna á undanförnum árum. Sú vel­ gengni hefur farið stigvaxandi og birt­ ist í ársreikningum eignarhaldsfélags hennar, Yrsa Sigurðardóttir ehf. Sam­ kvæmt nýbirtum ársreikningi félags­ ins, sem hún notar utan um rekstur­ inn sem tengist bókaskrifum hennar, var árið í fyrra eitt það besta á ferli hennar í fjárhagslegu tilliti. Félagið skilaði hagnaði upp á 32,3 milljónir og er þar lagt til að greiddur verður arður upp á 25 milljónir króna á árinu 2016. Síðastliðin fimm ár hefur hagn­ aður félagsins numið 77,6 milljónum króna og hefur Yrsa, að tillögu ársins 2016 meðtalinni, getað leyft sér að njóta ávaxta þessarar velgengni og greitt sér alls 74,5 milljónir króna í arð út úr félaginu á síðustu fimm árum. Í hópi þeirra bestu Yrsa, sem talin er á meðal fremstu glæpasagnahöfunda Norðurlanda, gaf fyrir jólin í fyrra út metsölubókina Sogið sem varð næst mest selda bók ársins á eftir Arnaldi samkvæmt sölu­ lista Félags íslenskra bókaútgefenda. Árið þar áður hafði hún gefið út DNA, Lygi (2013), Kuldi (2012), Brakið (2012) og Ég man þig (2010), svo fátt eitt sé nefnt. Bækur hennar hafa verið gefnar út í fjölmörgum löndum og þýddar á ótalmörg tungumál undan­ farinn áratug. Sogið var ellefta glæpa­ saga Yrsu en hennar fyrsta, Þriðja táknið, kom út árið 2005. Góð staða Samkvæmt nýjasta árs­ reikningi félags Yrsu, nam eigið fé þess í árslok 2015 rúmum 38 milljón­ um króna á móti skuldum upp á átta milljónir. Félag­ ið stendur því vel. Einnig ber að hafa í huga að Yrsa hefur á undanförnum árum einnig starfað sem verkfræðingur. Fyrst í fullu starfi en ritstörfin og vel­ gengnin í kringum útgáfu bóka hennar gerði það að verkum að hún ákvað að minnka starfshlutfallið í dagvinnunni. Í sérflokki Til samanburðar þá hagnaðist Arn­ aldur Indriðason, í gegnum félag sitt Gilhagi ehf., um 108 millj­ ónir á árinu 2015, greiddi sér 31 milljón í arð fyrir árið 2016, eigið fé nam 736 millj­ ónum króna. Þegar kemur að velgengni íslenskra rithöfunda eru Yrsa og Arnaldur því í algjör­ um sérflokki. n Stigvaxandi velgengni Yrsu Sigurðardóttur n 74 milljónir í arð á fimm árum n Fínn hagnaður á félagi krimmadrottningarinnar Velgengni Yrsu í tölum Svona hefur krimmadrottningin gert það gott á undanförnum árum Yrsa siGurðardóttir ehf. haGnaður Í milljónum kr. arðGreiðslur Í milljónum kr. 2016 x 25* 2015 32,3 17 2014 21,9 18 2013 9,8 5 2012 13,6 9,5 *tillaGa um arðGreiðslu rokseldist Sogið eftir Yrsu Sigurðardóttur kom út fyrir jólin í fyrra og seldist vel. mYnd siGtrYGGur ari sigurður mikael jónsson mikael@dv.is Sturla og Ingibjörg fara úr stjórn ESÍ Sigríður kemur ný inn í stjórn Eignasafns Seðlabankans S turla Pálsson, framkvæmda­ stjóri markaðsviðskipta og fjárstýringar Seðlabanka Ís­ lands, og Ingibjörg Guðbjarts­ dóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlits Seðlabankans, hafa hætt í stjórn Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ). Í þeirra stað hefur Sig­ ríður Logadóttir, aðallögfræðingur Seðlabankans, tekið sæti í stjórninni. Þetta var ákveðið á hluthafa­ fundi félagsins 8. september síðast­ liðinn en Jón Þ. Sigurgeirsson, fram­ kvæmdastjóri alþjóðasamskipta og skrifstofu seðlabankastjóra, er sem fyrr stjórnarformaður ESÍ. Eftir þessar breytingar verður stjórn ESÍ aðeins skipuð tveimur stjórnar­ mönnum. Ingibjörg fékk ársleyfi frá störfum í bankanum í júlí síðast­ liðnum en hún er í framhaldsnámi í opin berri stjórnsýslu (MPA) við John F. Kennedy School of Government við Harvard­háskóla í Bandaríkjun­ um. ESÍ var komið á fót 2009 til að fara með vörslu, úrvinnslu, og stýringu krafna og fullnustueigna sem Seðla­ bankinn fékk í hendurnar í kjölfar bankahrunsins. Í árslok 2015 námu heildareignir ESÍ ríflega 133 millj­ örðum króna. Þar munaði mestu um almennar kröfur ESÍ á hendur fjár­ málafyrirtækjum í slitameðferð upp á 55 milljarða króna auk skuldabréfa og annarra langtímakrafna að fjár­ hæð 38 milljarða. Í greinargerð sem yfirstjórn Seðla­ bankans tók saman í árslok 2015 í til­ efni bréfs frá umboðsmanni Alþingis 2. október sama ár, vegna athugunar embættisins á meðferð gjaldeyris­ mála og umsýslu eigna sem félög í eigu bankans fara með, kom fram að Seðlabankinn vonaðist til að leggja niður starfsemi ESÍ á þessu ári. „Þegar kröfur hafa verið innheimt­ ar og eignir seldar hefur félagið lokið hlutverki sínu og verður slitið. Jafn­ vel er vonast til þess að hægt verði að leggja niður ESÍ á komandi ári,“ sagði í greinargerðinni. n hordur@dv.is Úr stjórn esÍ Sturla Pálsson. mYnd sÍmamYnd Samdæmd próf í fyrsta sinn rafræn Samræmd könnunarpróf í ís­ lensku og stærðfræði voru í fyrsta skipti lögð fyrir nemendur í gær, fimmtudag. Það voru nemendur í sjöunda bekk sem riðu á vaðið en Menntamálastofnun hefur unnið að undirbúningi verkefnisins síð­ an í janúar. Í næstu viku er röðin komin að nemendum í 4. bekk. Um fjögur þúsund nemendur í sjöunda bekk luku rafrænu prófi í íslensku. Vandamál kom upp með broddstafi í tölvum einhverra skóla. Vandinn tengdist upp­ færslu svokallaðs vefláss en við prófanir hafði vandinn ekki kom­ ið fram. „Það er afar gremju legt að þetta hafi komið upp en það gerðist og við ætl um bara að leysa það til fram búðar,“ er haft eftir Gylfa Jóni Gylfasyni, sviðsstjóra matssviðs hjá Menntamálastofn­ un, á mbl.is. Próftakan gekk að öðru leyti snurðulaust fyrir sig. Píratar mælast með 22,7 prósent Píratar og Sjálfstæðisflokkurinn mælast báðir með 22,7% fylgi í nýrri skoðanakönnun MMR. Viðreisn bætir við þar við sig 2,7 prósentustigum og mælist með 11,5%. Fylgi annarra flokka er svo til óbreytt frá síðustu könnun. Vinstri græn eru þriðji stærsti flokkurinn af þeim sem nú eru á þingi með 13,2%, Fram­ sókn með 11%, Samfylking 8,1% og Björt framtíð 4,1%. Íslenska þjóðfylkingin mælist með 2,2%, Dögun með 1,4% en aðrir minna. Könnunin var gerð dagana 12. til 19 september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.