Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 44
Helgarblað 23.–26. september 201636 Menning Sjónvarp Sjónvarpsdagskrá Sunnudagur 25. september Okkar kjarnastarfssemi er greiðslumiðlun og innheimta. Hver er þín? 515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is Síðan 2006 RÚV Stöð 2 07.00 Barnaefni 10.25 Orðbragð (3:6) 10.55 Sjónvarp í 50 ár: Menning og listir 12.25 Heimur mann- kynsins (2:5) (Human Universe) 13.25 Genabreytingar (Our Genes Under Influence) 14.15 Sjálfsskaði - hin duldu sár (Cutting - de oversete sår) 14.45 Steinsteypuöldin 15.15 Rusl á matseðlinum 16.15 Menningin (3:40) 16.45 Varasamir vegir (Dangerous Roads III) 17.45 Táknmálsfréttir 17.55 Barnaefni 18.50 Landakort (Þjóðar- réttur Íslendinga) 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Landinn (2:20) 20.20 Orðbragð (4:6) 20.50 Poldark (3:10) Ross Poldark snýr aftur í annarri þáttaröð af þessum bresku sjónvarps- þáttum þar sem Heiða Rún Sigurðar- dóttir fer með eitt aðalhlutverkið. Þegar við skyldum við Herra Poldark síðast var hann á barmi gjaldþrots og nýbúið að hneppa hann í fangelsi. Þáttaröðin hlaut BAFTA verðlaun árið 2016. 21.55 Íslenskar sjón- varpsmyndir: Draugasaga Sjón- varpsmynd frá árinu 1985. Myndin gerist innan veggja gamla Sjónvarpshússins við Laugaveg. Þar fara að ganga sögur um dular- fulla rauðhærða afturgöngu sem hrellir þá sem vinna í húsinu að næturlagi. Förðunardama og ungur næturvörður sýna málinu sér- stakan áhuga. Atriði í myndinnni eru ekki við hæfi ungra barna. 23.00 Gullkálfar (5:6) (Mammon) Atriði í myndinni eru ekki við hæfi ungra barna. e. 00.00 Útvarpsfréttir 07:00 Barnaefni 12:00 Nágrannar 12:25 Nágrannar 12:45 Nágrannar 13:05 Nágrannar 13:25 Nágrannar 13:50 Grand Designs: Australia (3:10) 14:40 Masterchef USA 15:20 Spilakvöld (2:12) 16:10 Sendiráð Íslands 16:40 Gulli byggir (5:12) 17:10 60 mínútur (51:52) 18:00 Any Given Wednesday (11:20) 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:50 Sportpakkinn 19:10 Friends (17:24) 19:35 Þær tvær (6:8) 20:05 Rizzoli & Isles 20:50 The Tunnel (8:8) 21:45 The Third Eye (8:10) Önnur þátta- röðin af þessum hörkuspennandi og vönduðu norsku þáttum um rannsóknarlögreglu- manninn Viggo Lust. Tvö ár eru liðin frá því að dóttir hans hvarf sporlaust í hans umsjá og lífi hans snúið á hvolf. Hann hefur nú slitið öll tengsl við fortíð- ina og hafið störf á nýjum vettvangi hjá lögreglunni. 22:35 Aquarius (8:13) Dramatískir þættir sem gerast á sjöunda áratugn- um og skarta David Duchovny í aðalhlutverki. Hann leikur harðsvíraðan lögreglumann sem fer sínar eigin leiðir í lífi og starfi. Þegar lögreglan kemst á snoðir um hættulegan glæpamann þá fer okkar maður huldu höfði inní heim hans og reynir að koma í veg fyrir hrottaleg morð þessa manns, Charles Manson og liðsmanna hans sem hann kallar fjölskyldu sína. 23:25 60 mínútur (52:52) 00:10 The Night Shift 00:55 Quarry (2:8) 01:50 Better Call Saul 02:45 Rizzoli & Isles 03:30 The X-Files: I Want to Believe 05:15 Idiocracy 06:40 Þær tvær (6:8) 08:00 Black-ish (1:24) 08:20 King of Queens 08:45 King of Queens 09:05 How I Met Your Mother (15:24) 09:30 How I Met Your Mother (16:24) 09:50 Jennifer Falls 10:15 Cooper Barrett's Guide to Surviving Life (10:13) 10:35 Dr. Phil 11:15 Dr. Phil 11:55 Dr. Phil 12:35 The Tonight Show with Jimmy Fallon 13:15 The Tonight Show with Jimmy Fallon 13:55 The Voice (1:24) 14:20 The Voice (2:24) 15:50 Superstore (1:11) 16:10 Hotel Hell (3:8) 16:55 Royal Pains (6:13) 17:40 Parenthood (5:13) 18:20 King of Queens 18:40 How I Met Your Mother (19:24) 19:05 Rachel Allen's Everyday Kitchen 19:30 The Voice (3:24) 21:00 Law & Order: Special Victims Unit (1:23) 21:45 American Gothic (12:13) Bandarísk þáttaröð um fjöl- skyldu í Boston sem kemst að því að einn í fjölskyldunni gæti verið hættulegasti morðingi í sögu borgarinnar. Bönnuð börnum. 22:30 Ray Donovan (4:12) 23:15 Fargo (8:10) Fargo eru bandarískir sjón- varpsþættir sem eru skrifaðir af Noah Hawlay og eru undir áhrifum samnefndr- ar kvikmyndar Coen bræðra frá árinu 1996 en þeir eru jafnframt framleið- endur þáttanna. 00:00 Limitless (21:22) 00:45 Shades of Blue 01:30 Law & Order: Special Victims Unit (1:23) 02:15 American Gothic 03:00 Ray Donovan 03:45 Under the Dome 04:30 The Late Late Show with James Corden Sjónvarp Símans Í heimildaþáttunum Frumherjar sjónvarpsins sem RÚV sýnir á mánudagskvöldum var fjallað um míní-seríur, þar á með- al The Thorn Birds, Þyrnifugl- ana. Þættirnir fjölluðu um ástir prests, sem Richard Chamberla- in lék, og ungrar konu, en Rachel Ward fór með hlutverk hennar. Þættirnir nutu gríðarlegrar hylli og fengu metáhorf. Í þættinum var rætt við þessa tvo aðalleikara, Chamberlain var sáttur og glað- ur með sitt en leikkonan geðþekka var fremur döpur. Í ljós kom að á þeim áratugum sem hafa liðið frá því þættirnir voru sýndir hefur hún enn ekki gleymt vondu dómunum. Hún nefndi það sérstaklega í við- talinu að ólíkt helstu meðleikurum sínum hefði hún á sínum tíma ekki verið tilnefnd til Emmy-verðlauna fyrir leik sinn. Til að bæta gráu ofan á svart höfðu gagnrýnendur Newsweek og New York Times gef- ið leikkonunni skelfilega vonda dóma fyrir frammistöðu hennar í þáttunum. Í kjölfarið missti hún sjálfstraustið og dró sig að mestu í hlé frá kvikmyndaleik. „Þetta var skelfileg lífsreynsla,“ sagði leikkonan sem sagðist aldrei hafa jafnað sig og velti því fyr- ir sér hvort gagnrýnendur gerðu sér grein fyrir því hversu mjög þeir gætu sært fólk með dómum sínum. Ég segi nú bara að ef gagnrýnend- ur ættu stöðugt að taka tillit til við- kvæms tilfinningalífs listamanna þá myndu þeir aldrei treysta sér til að kveða upp aðra dóma en þá já- kvæðu. Rachel Ward var ekki tilnefnd til Emmy-verðlauna fyrir leik sinn í Þyrnifuglunum en hún var hins vegar tilnefnd til Golden Globe- verðlauna fyrir frammistöðu sína þar. Leikkonan mundi ekki eftir því og heldur ekki eftir því að um- heiminum líkaði bara ansi vel við hana í hlutverkinu. Gagnrýnendur Newsweek og New York Times voru greinilega enn að angra sálar- líf hennar, áratugum eftir að hafa kveðið upp dóma sína. Leikkonan var viðkunnanleg í þessu viðtali en manni fannst að hún ætti að bera höfuðið hátt og leyfa sér smá hroka eins og þann að hugsa: „Hver man eftir því hverjir voru gagnrýnendur á Newsweek og New York Times þegar ég lék í Þyrnifuglunum? Enginn! Ekki er verið að gera heim- ildamynd um þá en það er verið að tala við mig.“ Stundum er sagt að listamenn muni allt til dánadægurs eftir vondu dómunum sem þeir fengu og hugsi meira um þá en þá góðu. Það virðist eiga við Rachel Ward. n Vondu dómarnir Rachel Ward er enn sár út í gagnrýnendur Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Við tækið Ást í meinum Rachel Ward og Richard Chamberlain. Rachel Ward Hefur ekki gleymt útreiðinni sem hún fékk hjá gagnrýnendum Newsweek og New York Times.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.