Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Síða 22
Helgarblað 23.–26. september 20162 Með allt á hreinu- Kynningarblað „Þess vegna hringja kúnnarnir aftur og aftur“ Ræsting og ráðgjöf veitir þjónustu á háu gæðastigi R æstingar og ráðgjöf er fyrir­ tæki sem tjaldar ekki til einnar nætur. Eigandinn, Guðlaugur V. Guðlaugsson, hefur starfað við ræstingar frá árinu 1995 en fyrirtækið í núver­ andi mynd var stofnað árið 2010. Fullkominn tækjakostur, stöðugleiki í mannahaldi, mikil þekking og um­ fram allt langtímaviðhorf til verkefna og þjónustu gera Ræstingar og ráð­ gjöf að afar traustu fyrirtæki sem við­ skiptavinir leita til aftur og aftur. „Þó að við séum litlir þá erum við stórir í því sem við erum að gera,“ segir Guðlaugur, en hann vísar þar annars vegar til þess að starfsmenn fyrir­ tækisins eru aðeins 3–5 hverju sinni og heildarársverk um fimm. Hins vegar tekur fyrirtækið að sér mörg og margvísleg verkefni og sum mjög stórtæk. Ræstingar og ráðgjöf þjón­ ustar jöfnum höndum lítil og stór fyrirtæki, stofnanir, húsfélög, skóla og leikskóla. Einu hreinsivélar landsins fyrir rúllu- og rennistiga Ræsting og ráðgjöf hefur sterka stöðu á hreingerningamarkaðnum og margvíslega sérstöðu. Hún birt­ ist meðal annars í því að fyrirtækið er eini aðilinn hér á landi sem hefur yfir að ráða hreinsivélum fyrir rúllu­ og rennistiga. Þetta eru þýskar há­ gæðavélar: „Vélarnar eru vottaðar af flestum stærstu framleiðendum hreingerningavéla fyrir rúllustiga og rennistiga í heiminum,“ segir Guð­ laugur. Um er að ræða tvær vélar og Guðlaugur útskýrir muninn á þeim: „Juma Step 100 er ætluð fyrir rúllustiga og þrífur þá í kyrrstöðu, þrífur upp þrepið. Juma Step 600 er hins vegar ætluð fyrir bæði renni­ stiga og rúllustiga. Hún er mun hraðvirkari og hægt að bjóða upp á ódýrari hreinsun með henni á með­ an Juma Step 100 þrífur ítarlegar og með henni er boðið upp á það sem kallast full hreinsun. Annar kostur við Juma Step 600 er sá að hægt er að þrífa með henni á meðan stigarnir eru í gangi.“ Með Juma­vélunum þjónustar Ræsting og ráðgjöf Isavia í Leifstöð, Smáralind og Kringluna. Guðlaugur bendir á að nauðsynlegt sé að þrífa rúllu­ og rennistiga til að draga úr slysahættu en óhreinindi valda því smám saman að stigarnir verða hálir. Ónýtir gólfdúkar verða sem nýir Rúllu­ og rennistigavélarnar eru sannarlega ekki einu vélknúnu tækin sem fyrirtækið hefur yfir að ráða en framúrskarandi tækjakostur er einn af hornsteinunum í rekstrinum. Við gólfvinnu er beitt skúringavélum til að þrífa og öflugum bónleysivélum til að hreinsa upp gamalt bón. Gólfin eru síðan bónuð með höndum. „Við höfum farið þá leið að eyða meiri tíma og gera hlutina vel. Það er undirvinnan sem skiptir höf­ uðmáli. Rétt eins og enginn vill málara sem þekur ekki nógu vel þá þarf bónið að þekja gólf­ dúkinn vel til að fylla upp í hann og jafna hann upp. Við höfum til dæmis verið að endur­ nýja dúka sem höfðu verið úr­ skurðaðir ónýtir en við höfum náð að hreinsa þá upp og gera sem nýja. Við notum líka vissa tækni til að hreinsa upp gamla bónið án þess að skemma yfirborðið á dúkunum,“ segir Guðlaugur. Á myndum sem fylgja greininni má sjá raunveruleg dæmi um þessi verk – „ónýtan“ gólf­ dúk fyrir og eftir vinnu Guðlaugs og hans manna. Teppahreinsun og steinteppahreinsun „Við erum mjög stórir í teppahreins­ unum fyrir hótel, meðal annars. Ég flyt sjálfur inn efnin sem við notum. Meðal annars flyt ég inn vissar gerðir af duftsápum sem kristallast í tepp­ unum þannig að engar sápuleifar verða eftir og því enduróhreinkast teppin síður. Auk þess bjóðum við upp á óhreinkunar­ og blettavörn sem er úðað yfir teppin eftir að við höfum þrifið þau. Vörnin lokar teppunum þannig að eftir hreinsun líta þau út eins og þau komu úr verksmiðjunni upphaflega,“ segir Guðlaugur. Fyrirtæki hans sérhæfir sig líka í þrifum á steinteppum fyrir smáa sem stóra aðila og þjón­ ustar mörg af stærstu fyrirtækjum landsins í viðhaldi á steinteppum. Tækjakostur – þekking – mannskapur Guðlaugur hefur alltaf lagt höfuð­ áherslu á að leggja eins mikla vinnu og kostnað og þarf í hvert verkefni til að skila hágæða vinnu en síð­ ur lagt upp úr ágóða af hverju verk­ efni. Hann telur mikilvægara að efla orðsporið og tryggja viðskiptavinum alltaf toppþjónustu: „Þess vegna hringja kúnnarnir í mig aftur og aftur,“ segir Guðlaugur og bætir við að sum verkefni gefi af sér á meðan önnur geri það ekki – það er bara eins og gengur. „Í bón­ vinnu og teppahreinsun erum við í 80–90% tilvika að þjónusta sömu að­ ilana ár eftir ár,“ segir hann. Áður höfum við drepið á tækjakosti fyrirtækisins sem ávallt er framúrskarandi en Guð­ laugur hefur líka verið mjög gæfusamur með starfsfólk: „Ég er svo heppinn með strák­ ana sem vinna fyrir mig að þeir þrífa alltaf eins vel og þeir væru að þrífa fyrir sjálfa sig. Ég hef verið með sömu starfsmennina ár eftir ár og því hefur þekking og reynsla viðhaldist í fyrirtækinu. Viðskipta­ vinirnir vita því að þeir eru alltaf að fá til sín starfsmenn sem þekkja að­ stæður og kunna til verka. Þetta fyr­ irtæki er ekki rekið með skamm­ tímagróða í huga, ég borga góð laun og allt er hér rekið á háu gæðastigi.“ Nánari upplýsingar má fá á heimasíðunni clean.is, í síma 770- 4630 og með fyrirspurnum á netfang- ið gvg@clean.is. n „Við höfum farið þá leið að eyða meiri tíma og gera hlutina vel. Það er undirvinnan sem skiptir höfuðmáli. Juma Step 100 Fyrir rúllustiga. Juma Travel 600 Fyrir rúllustiga og rennistiga. Fyrir Eftir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.