Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 22
Helgarblað 23.–26. september 20162 Með allt á hreinu- Kynningarblað
„Þess vegna hringja
kúnnarnir aftur og aftur“
Ræsting og ráðgjöf veitir þjónustu á háu gæðastigi
R
æstingar og ráðgjöf er fyrir
tæki sem tjaldar ekki til
einnar nætur. Eigandinn,
Guðlaugur V. Guðlaugsson,
hefur starfað við ræstingar
frá árinu 1995 en fyrirtækið í núver
andi mynd var stofnað árið 2010.
Fullkominn tækjakostur, stöðugleiki
í mannahaldi, mikil þekking og um
fram allt langtímaviðhorf til verkefna
og þjónustu gera Ræstingar og ráð
gjöf að afar traustu fyrirtæki sem við
skiptavinir leita til aftur og aftur. „Þó
að við séum litlir þá erum við stórir
í því sem við erum að gera,“ segir
Guðlaugur, en hann vísar þar annars
vegar til þess að starfsmenn fyrir
tækisins eru aðeins 3–5 hverju sinni
og heildarársverk um fimm. Hins
vegar tekur fyrirtækið að sér mörg
og margvísleg verkefni og sum mjög
stórtæk. Ræstingar og ráðgjöf þjón
ustar jöfnum höndum lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir, húsfélög, skóla
og leikskóla.
Einu hreinsivélar landsins
fyrir rúllu- og rennistiga
Ræsting og ráðgjöf hefur sterka
stöðu á hreingerningamarkaðnum
og margvíslega sérstöðu. Hún birt
ist meðal annars í því að fyrirtækið
er eini aðilinn hér á landi sem hefur
yfir að ráða hreinsivélum fyrir rúllu
og rennistiga. Þetta eru þýskar há
gæðavélar: „Vélarnar eru vottaðar
af flestum stærstu framleiðendum
hreingerningavéla fyrir rúllustiga og
rennistiga í heiminum,“ segir Guð
laugur. Um er að ræða tvær vélar og
Guðlaugur útskýrir muninn á þeim:
„Juma Step 100 er ætluð fyrir
rúllustiga og þrífur þá í kyrrstöðu,
þrífur upp þrepið. Juma Step 600 er
hins vegar ætluð fyrir bæði renni
stiga og rúllustiga. Hún er mun
hraðvirkari og hægt að bjóða upp á
ódýrari hreinsun með henni á með
an Juma Step 100 þrífur ítarlegar og
með henni er boðið upp á það sem
kallast full hreinsun. Annar kostur
við Juma Step 600 er sá að hægt er að
þrífa með henni á meðan stigarnir
eru í gangi.“
Með Jumavélunum þjónustar
Ræsting og ráðgjöf Isavia í Leifstöð,
Smáralind og Kringluna. Guðlaugur
bendir á að nauðsynlegt sé að þrífa
rúllu og rennistiga til að draga úr
slysahættu en óhreinindi valda því
smám saman að stigarnir verða hálir.
Ónýtir gólfdúkar verða sem nýir
Rúllu og rennistigavélarnar eru
sannarlega ekki einu vélknúnu tækin
sem fyrirtækið hefur yfir að ráða en
framúrskarandi tækjakostur er einn
af hornsteinunum í rekstrinum. Við
gólfvinnu er beitt skúringavélum til
að þrífa og öflugum bónleysivélum
til að hreinsa upp gamalt bón. Gólfin
eru síðan bónuð með höndum.
„Við höfum farið þá leið að eyða
meiri tíma og gera hlutina vel. Það
er undirvinnan sem skiptir höf
uðmáli. Rétt eins og enginn vill
málara sem þekur ekki nógu
vel þá þarf bónið að þekja gólf
dúkinn vel til að fylla upp í
hann og jafna hann upp. Við
höfum til dæmis verið að endur
nýja dúka sem höfðu verið úr
skurðaðir ónýtir en við höfum
náð að hreinsa þá upp og gera
sem nýja. Við notum líka vissa
tækni til að hreinsa upp gamla
bónið án þess að skemma
yfirborðið
á dúkunum,“ segir Guðlaugur. Á
myndum sem fylgja greininni má
sjá raunveruleg dæmi um þessi verk
– „ónýtan“ gólf
dúk fyrir og
eftir vinnu
Guðlaugs
og hans
manna.
Teppahreinsun og
steinteppahreinsun
„Við erum mjög stórir í teppahreins
unum fyrir hótel, meðal annars. Ég
flyt sjálfur inn efnin sem við notum.
Meðal annars flyt ég inn vissar gerðir
af duftsápum sem kristallast í tepp
unum þannig að engar sápuleifar
verða eftir og því enduróhreinkast
teppin síður. Auk þess bjóðum við
upp á óhreinkunar og blettavörn
sem er úðað yfir teppin eftir að
við höfum þrifið þau. Vörnin
lokar teppunum þannig að
eftir hreinsun líta þau út eins
og þau komu úr verksmiðjunni
upphaflega,“ segir Guðlaugur.
Fyrirtæki hans sérhæfir sig líka
í þrifum á steinteppum fyrir
smáa sem stóra aðila og þjón
ustar mörg af stærstu fyrirtækjum
landsins í viðhaldi á steinteppum.
Tækjakostur – þekking –
mannskapur
Guðlaugur hefur alltaf lagt höfuð
áherslu á að leggja eins mikla vinnu
og kostnað og þarf í hvert verkefni
til að skila hágæða vinnu en síð
ur lagt upp úr ágóða af hverju verk
efni. Hann telur mikilvægara að efla
orðsporið og tryggja viðskiptavinum
alltaf toppþjónustu:
„Þess vegna hringja kúnnarnir í
mig aftur og aftur,“ segir Guðlaugur
og bætir við að sum verkefni gefi af
sér á meðan önnur geri það ekki –
það er bara eins og gengur. „Í bón
vinnu og teppahreinsun erum við í
80–90% tilvika að þjónusta sömu að
ilana ár eftir ár,“ segir hann.
Áður höfum við drepið á
tækjakosti fyrirtækisins sem
ávallt er framúrskarandi en Guð
laugur hefur líka verið mjög
gæfusamur með starfsfólk:
„Ég er svo heppinn með strák
ana sem vinna fyrir mig að þeir
þrífa alltaf eins vel og þeir væru
að þrífa fyrir sjálfa sig. Ég hef verið
með sömu starfsmennina ár eftir
ár og því hefur þekking og reynsla
viðhaldist í fyrirtækinu. Viðskipta
vinirnir vita því að þeir eru alltaf að
fá til sín starfsmenn sem þekkja að
stæður og kunna til verka. Þetta fyr
irtæki er ekki rekið með skamm
tímagróða í huga, ég borga góð laun
og allt er hér rekið á háu gæðastigi.“
Nánari upplýsingar má fá á
heimasíðunni clean.is, í síma 770-
4630 og með fyrirspurnum á netfang-
ið gvg@clean.is. n
„Við höfum farið þá
leið að eyða meiri
tíma og gera hlutina vel.
Það er undirvinnan sem
skiptir höfuðmáli.
Juma Step 100 Fyrir rúllustiga.
Juma Travel 600
Fyrir rúllustiga og
rennistiga.
Fyrir Eftir