Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 23
Helgarblað 23.–26. september 2016 Kynningarblað - Með allt á hreinu 3 Traust hreingerninga- þjónusta frá árinu 1967 Þvegillinn, Glósölum 1, Kópavogi Þ vegillinn býður upp á afar vandaða og trausta hrein- gerningarþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Viðskiptavina- hópur fyrirtækisins er mjög fjöl- breyttur, allt frá einstaklingum í litl- um íbúðum, sem þurfa aðstoð við tiltekt, upp í viðamikil fyrirtæki á borð við álver, sjúkrahús og aðrar stofnanir. Gunnlaugur Gunnarsson stofn- aði Þvegilinn árið 1967 og fyrirtækið hefur starfað á sömu kennitölu allt frá byrjun og er ennþá í eigu sömu fjölskyldunnar. Eigendur þess í dag eru Einar Már Gunnlaugsson húsa- smíðameistari og Magnea Júlía Geirsdóttir. Sonur þeirra hjóna, Gunnlaugur Þór Einarsson, hefur starfað hjá fyrirtækinu í rúmlega 15 ár en einnig hafa margir innan fjölskyldunnar byrjað sinn starfs- feril þar. Reynslumikið starfsfólk sem er vel tækjum búið Starfsfólk Þvegilsins býr yfir mikilli verkþekkingu sem hefur skilað sér í fjölbreyttum verkefnum í gegn- um tíðina. Eigendur fyrirtækisins leggja áherslu á að eiga vönduð og afkastamikil tæki og einnig að nota góð efni til að leysa hvert verkefni á sem bestan hátt. Meðal dæmi- gerðra verka eru flutningaþrif, hreingerningar á íbúðar- og skrif- stofuhúsnæði, húsgagnahreinsun, vélþrif, bónleysing og teppa- hreinsun. Fyrirtækið á bæði litlar og stórar teppavélar og við þrif á steinteppum er notast við afar öfl- uga háþrýstivél. Sem fyrr segir er viðskiptavinaflóran fjölbreytt. Jólahreingerningar og flutningaþrif „Við tökum sem sagt bæði lítil verk- efni eins jólahreingerningar og líka flutningaþrif. Fyrir einstaklinga í litlum íbúðum upp í mjög stór ver- kefni þar sem þarf að nota vinnu- lyftur og spjót til að nálgast verkin, en við erum mikið að þrífa skrif- stofuhúsnæði eftir breytingar og einnig nýbyggingar,“ segir Einar Már Gunnlaugsson. En hvað vinna margir hjá fyrir- tækinu? „Þetta er árstíðabundið, á sumr- in erum við með 15 til 20 manns í þrifum en á veturna 8 til 10. Við höfum verið heppin með það að sama starfsfólkið hefur verið að koma til okkar sumar eftir sumar þannig að við erum með reynslu- mikið starfsfólk allan ársins hring. Starfsmannavelta hjá okkur er mjög lítil þrátt fyrir árstíðabundna álagið.“ Þvegillinn tekur ekki að sér dag- legar ræstingar í fyrirtækjum held- ur sér um það sem er kallað aðal- hreingerningar. Þó taka þau að sér þrif á stigagöngum í fyrirtækjum og eru það þá vikuleg þrif frekar en dagleg þrif. Einnig hafa þau farið í sérverkefni í nágrenni við höfuð- borgarsvæðið. Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu fyrirtækisins www.th- vegillinn.is Eða með því að hafa samband í síma 544-4446. Fjölþætt hreinsunarþjónusta fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki Hreinsitækni ehf. losar stíflur út niðurföllum, hreinsar bílastæði og fóðrar fráveiturör Y fir veturinn er búið að bera sand og salt á bíla- stæði til að hálkuverja þau og mikið af efninu skolast niður í niðurföll í miklum rigningum svo þau geta stíflast og myndast þá tjarnir á bílastæðun- um. Ef niðurföll eru ekki hreinsuð reglulega getur komið fyrir að leggir frá niðurföllum stíflist líka,“ segir Lárus Kristinn Jónsson, fram- kvæmdastjóri Hreinsitækni ehf. Hreinsitækni býður upp á fjöl- þætta þjónustu til einstaklinga, hús- félaga og fyrirtækja. Hvað bílastæði varðar hefur fyrirtækið til margra ára boðið upp á niðurfallahreinsun, hreinsun á sandgildrum, lagna- hreinsun, að skera rætur úr lögnum og myndun á ástandi lagna. Fyrir- tækið hefur líka til umráða minni holræsabíl til að hreinsa niðurföll í bílastæðahúsum. Lárus segir að Hreinsitækni hafi til margra ára boðið upp á heild- stæðar lausnir fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki varðandi frá- veitulagnir og hreinsun á bílastæð- um. Fyrirtækið býður upp á þrif á bílastæðum og bílastæðageymslum. Misjafnt er hvort geymslurn- ar eru bara sópaðar með gangstéttarsópum eða þvegnar líka með götuþvottabíl. Á stórum bíla- stæðum er bæði notaður gatna- sópur og gangstéttarsópur. Mest er hugsað um þessi þrif á vorin og sumrin, en færst hefur í vöxt að hugað sé að þessum þáttum allt árið, meðal annars út frá um- hverfisþáttum og loftgæðum. Fóðrun fráveitulagna – heildar- lausn Nýr þáttur í starfsemi Hreinsitækni er fóðrun fráveitulagna. Fóðrun ehf. er dótturfélag Hreinsitækni ehf. og sérhæfir sig í fóðrun fráveitulagna, sem er heppileg lausn þegar lagn- ir eru orðnar gamlar og farnar að leka eða rætur komnar í lagnirnar. Í staðinn fyrir að þurfa að grafa upp gömlu lögnina er hún fóðruð. Fóðr- unin felst í því að sokkur er dreginn inn í gömlu lögnina og hann síðan blásinn út og hertur út í þá gömlu. Hreinsitækni sér þarna um alla verkþættina í stað þess að viðkom- andi húsfélag eða fyrirtæki þurfi að hringja í marga þjónustuaðila. Má þar nefna myndun á lögn, hreinsun lagnarinnar og mælingu áður en hún er fóðruð. „Við fóðrum hins vegar bara frá stofnlögn og upp að húsi en aðrir eru í því að fóðra lagnir inni í húsi. Þetta er allt unnið frá stofnlögn í götu og fóðrað upp og tekur tiltölu- lega stuttan tíma og er hagkvæmari lausn en að grafa mikið. Lögnin er líka mynduð og hreinsuð frá stofn- lögn. Hér um að ræða varanlega viðgerð til langs tíma,“ segir Lárus. Fyrirtækið hefur boðið upp á framangreinda þjónustu allt frá ár- inu 1976 og hefur því mikla reynslu á þessum sviðum. Hreinsitækni ehf. er staðsett að Stórhöfða 37 Reykja- vík en er einnig með útibú á Akur- eyri sem býður upp á sömu þjón- ustu í kringum það svæði. Yfirgripsmiklar upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins er að finna á vefsíðu fyrirtækisins, hrt.is. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.