Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 17
Helgarblað 23.–26. september 2016 Umræða 17 Að hokra að kvenfólki Þessi ofbeldishugmynd er held ég mjög að láta undan síga í nú- tímahugmyndum um karlmennsku; Gústi í Hruna væri nú á dögum af- greiddur sem hver annar handrukk- ari; væri trúlega kominn á Litla- Hraun og fyrirlitinn af flestum. En „ástir, slagsmál og vín“ sagði Gústi; ætli kvensemin sé líka tengd karlmennskunni órjúfanlegum böndum? Nei, ég held að það hljóti að vera breytilegt eins og annað, því að hreinræktaðasta karlmennsku- lýsing íslenskra fornsagna, Þorgeir Hávarsson sem segir frá í Fóst- bræðrasögu, og Laxness dýpkaði í Gerplu; hann sem var svo mikið karlmenni að hann lagði fæð á fóst- bróður sinn fyrir að hafa bjargað lífi sínu er hann hékk í njólanum í Hornbjargi og sífellt er vitnað til. Og Þorgeir Hávarsson semsé, hann var svo mikið karlmenni að hann leit ekki við kvenfólki heldur þótti það lítilmannlegt að „hokra að konum“. En hvað er þá karlmennska í nú- tímaskilningi? Kannski má þar til dæmis nefna hæfileikann til að láta ekki koma sér úr jafnvægi, taka því sem dynur yfir án þess að tapa skýrri hugsun; um það eiga fornsögurnar auðvitað hrein og ómenguð dæmi, eins og þegar sagt er um Gunnar á Hlíðarenda að honum hafi hvorki brugðið við sár né bana. Það er sagt í þeim stíl okkar gömlu ritsnillinga að draga hvergi undan, en um þetta at- riði myndi eflaust gilda í nútímanum að menn sem kjósa að vera í sviðs- ljósinu láti sér ekki bregða þótt um þá sé talað; að menn ættu að geta tekið vondri gagnrýni með glotti á vör; má vera kalt reyndar. „Tein- réttur, þótt sitthvað gengi á“, seg- ir Gylfi Ægis í Minningu um mann. „Eigi skal haltur ganga meðan báð- ir fætur eru jafnlangir,“ sögðu gömlu mennirnir. Og karlmennska má það líka heita að kveinka sér ekki þótt einhver finni upp á að spauga með mann; hlæja bara með og láta sem ekkert sé. Brotnir efrigómar Eins og ég nefndi hér að fram- an þá er nokkuð áberandi í bókar- textum, munnlegum frásögnum og allskyns söngvum og dægurvís- um frá liðinni öld, þessi mikla hrifning á áflogum og slags- málum sem hreinni skemmt- un og lífsfyllingu. Ég er búinn að nefna Gústa í Hruna og líka hvað stelpunum þótti gaman að áflogum strákanna á vertíð í Eyjum samkvæmt gömlum slagara, en dæmin eru mýmörg fleiri. Lagið góða „Sveitaball“ sem Ómar Ragnarsson söng við ómældar vinsældir endur- speglar þetta líka: „Sveitaball, já allir töffar elska sveitaball á bílum glanna þeir úr borginni og bokkunni, þeir hampa hátt sinn mikla mátt þeir sýna meyjunum og slást og slarka og sláni margur síðar skreið svo draujað dauðum heim, svo dáldið sjatni í þeim því annars yrði mamma reið, og kallinn alveg knall …“ Og þar fram eftir götunum. Hið sama gilti um ritaðar frá- sagnir; ég las eitt sinn bók eftir Stefán Jónsson fréttamann og hinn ágæta rithöfund þar sem skemmtana líf í sjávarþorpum er rannsakað hringinn í kringum landið og sér í lagi skoðað hvernig menn haga slagsmálum á böllum; því fyrr sem áflog hófust og því harðari sem þau voru, því hærra þótti það menn- ingarstig; mig minnir að Neskaup- staður hafi haft vinninginn sam- kvæmt þeirri úttekt og að þar hafi þótt sérstakt virðingarmerki að vera með brotinn efrigóm eftir kjaftshögg (þetta var á þeim árum þegar falskar tennur þóttu eiginlega taka hinum upprunalegu fram, og þegar fátt þótti fínna en að fá falskar í fermingargjöf, og var kallað að „láta smíða uppí sig“). Að menn gætu trauðla talað af því efrigómurinn skrollaði í tveim- ur pörtum var með öðrum orðum sérstakt karlmennskutákn og óræk- ur vitnisburður um hugdirfð í land- legupústrum með tilheyrandi lík- amsmeiðingum – sama fyrirbæri er lýst í frábærum skáldsögum Steinars Sigurjónssonar frá svipuðum tíma, til að mynda bókinni „Hamingju- skipti“ þar sem aðalpersónan, akur- nesíski rotarinn sem mig minnir að heiti Toni, gengur einmitt um með þverbrotinn plastgóm uppí sér. En kannski föttuðu menn ekki djókinn? Það er að sama skapi mjög trúlegt að þessar seinni tíma hugmyndir um barsmíðar sem skemmtun séu að einhverju leyti í það minnsta inn- blásnar af okkar miðaldabókmennt- um, eins og reyndar flest í okkar menningu ef að er gáð. En þá er hins að gæta að hetjuskapur tengdur of- beldi og djöfulskap í Íslendinga- sögum er kannski miklu tvíræðari en við blasir í fljótu bragði; kannski voru höfundar þeirra að dást að flestu öðru en hinni yfirborðs- legu standardhugmynd um karl- mennsku og vopnfimi. Við nefndum áðan kappana Þorgeir og Þormóð úr Fóstbræðrasögu, en í seinni tíð hafa æ fleiri gert sér ljóst að þeir eru af hálfu höfundar þeirrar bókar fyrst og fremst grínfígúrur, á borð við Don Kíkóta hinn sjónumhrygga á hor- bykkjunni Rósínante, og fylgdar- manninn kubbslega Sansjó á asnan- um. Egill Skallagrímsson hefur verið mörgum fyrirmynd um hreysti, eins og ég hef meðal annars fjallað um á þessum vettvangi í skrifum um frá- bæra ævisögu Stefáns Jónssonar fréttamanns um Pétur Hoffmann, en líka Egill er þegar sagan um hann er grandskoðuð í löngum köflum nokkurskonar skrípakall, og það sama hálftröllin faðir hans og afi. Og svo má skoða sjálfan Gretti sterka Ásmundarson, hetjuna ógur- legu. Grettir hefur að vísu flest til að bera sem prýða má eina hetju: hann er allra manna sterkastur og fríðastur, hann er orðheppinn, skáldmæltur og af góðum ættum. En sagan er reyndar ekki um það. Heldur þvert á móti: Grettissaga er nokkurskonar stúdía á þeirri áleitnu þversögn að það er sitthvað gæfa og gjörvileiki; forskotið sem þeir hafa sem eru jafn vel af Guði gerð- ir og kappinn í sögunni dugir gjarn- an ekki, því að lífið verður eigi að síður að ógæfu. Grettir snýr niður óvini sína, menn og drauga, en innri demóna getur hann aldrei sigrað; hann ræður ekki við skapsmuni sína og það hrekur hann í tilveru utan- garðsmanns. Og í útlegðinni kvelst hann af einmanaleika, myrkfælni, auk þess sem hann saknar svo sárt mömmu sinnar og að mega ekki vera hjá henni. Það var nú hans karl- mennska og hetjuskapur; „okkar samlanda“ Grettis Ásmundarsonar frá Bjargi í Miðfirði. n Grettir Ásmundarson „Innri demóna getur hann aldrei sigrað.“ Hólmganga Egils Skallagrímssonar og Berg-Önundar Mynd Eftir JoHAnnEs flintoE. „Þá er nokkuð áberandi í bókar­ textum, munnlegum frásögnum og allskyns söngvum og dægurvísum frá liðinni öld, þessi mikla hrifning á áflogum og slagsmálum sem hreinni skemmtun og lífsfyllingu. S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Opnunartími Mán - fim 9:00 -18:00 Föstudaga 9:00 - 17:00 Laugardaga 10:00 -14:00 Sími: 557 6677 Netfang: shelgason@shelgason.is www.shelgason.is Nú er tími haust- laukanna Frábært úrval af gæða blómlaukum og hvítlauksútsæði frá Nelson Garden. HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook Frír flutningur innanlands ef pantað er fyrir 3.900 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.