Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Qupperneq 17
Helgarblað 23.–26. september 2016 Umræða 17
Að hokra að kvenfólki
Þessi ofbeldishugmynd er held
ég mjög að láta undan síga í nú-
tímahugmyndum um karlmennsku;
Gústi í Hruna væri nú á dögum af-
greiddur sem hver annar handrukk-
ari; væri trúlega kominn á Litla-
Hraun og fyrirlitinn af flestum.
En „ástir, slagsmál og vín“ sagði
Gústi; ætli kvensemin sé líka tengd
karlmennskunni órjúfanlegum
böndum? Nei, ég held að það hljóti
að vera breytilegt eins og annað, því
að hreinræktaðasta karlmennsku-
lýsing íslenskra fornsagna, Þorgeir
Hávarsson sem segir frá í Fóst-
bræðrasögu, og Laxness dýpkaði
í Gerplu; hann sem var svo mikið
karlmenni að hann lagði fæð á fóst-
bróður sinn fyrir að hafa bjargað
lífi sínu er hann hékk í njólanum í
Hornbjargi og sífellt er vitnað til. Og
Þorgeir Hávarsson semsé, hann var
svo mikið karlmenni að hann leit
ekki við kvenfólki heldur þótti það
lítilmannlegt að „hokra að konum“.
En hvað er þá karlmennska í nú-
tímaskilningi? Kannski má þar til
dæmis nefna hæfileikann til að láta
ekki koma sér úr jafnvægi, taka því
sem dynur yfir án þess að tapa skýrri
hugsun; um það eiga fornsögurnar
auðvitað hrein og ómenguð dæmi,
eins og þegar sagt er um Gunnar á
Hlíðarenda að honum hafi hvorki
brugðið við sár né bana. Það er sagt í
þeim stíl okkar gömlu ritsnillinga að
draga hvergi undan, en um þetta at-
riði myndi eflaust gilda í nútímanum
að menn sem kjósa að vera í sviðs-
ljósinu láti sér ekki bregða þótt um
þá sé talað; að menn ættu að geta
tekið vondri gagnrýni með glotti
á vör; má vera kalt reyndar. „Tein-
réttur, þótt sitthvað gengi á“, seg-
ir Gylfi Ægis í Minningu um mann.
„Eigi skal haltur ganga meðan báð-
ir fætur eru jafnlangir,“ sögðu gömlu
mennirnir. Og karlmennska má það
líka heita að kveinka sér ekki þótt
einhver finni upp á að spauga með
mann; hlæja bara með og láta sem
ekkert sé.
Brotnir efrigómar
Eins og ég nefndi hér að fram-
an þá er nokkuð áberandi í bókar-
textum, munnlegum frásögnum og
allskyns söngvum og dægurvís-
um frá liðinni öld, þessi mikla
hrifning á áflogum og slags-
málum sem hreinni skemmt-
un og lífsfyllingu. Ég er búinn
að nefna Gústa í Hruna og líka
hvað stelpunum þótti gaman
að áflogum strákanna á vertíð
í Eyjum samkvæmt gömlum
slagara, en dæmin eru mýmörg
fleiri. Lagið góða „Sveitaball“
sem Ómar Ragnarsson söng
við ómældar vinsældir endur-
speglar þetta líka:
„Sveitaball, já allir töffar
elska sveitaball
á bílum glanna þeir úr
borginni
og bokkunni,
þeir hampa hátt
sinn mikla mátt þeir sýna
meyjunum
og slást og slarka og sláni
margur síðar skreið
svo draujað dauðum heim,
svo dáldið sjatni í þeim
því annars yrði mamma
reið, og kallinn alveg knall …“
Og þar fram eftir götunum.
Hið sama gilti um ritaðar frá-
sagnir; ég las eitt sinn bók
eftir Stefán Jónsson fréttamann
og hinn ágæta rithöfund þar sem
skemmtana líf í sjávarþorpum er
rannsakað hringinn í kringum landið
og sér í lagi skoðað hvernig menn
haga slagsmálum á böllum; því fyrr
sem áflog hófust og því harðari sem
þau voru, því hærra þótti það menn-
ingarstig; mig minnir að Neskaup-
staður hafi haft vinninginn sam-
kvæmt þeirri úttekt og að þar hafi
þótt sérstakt virðingarmerki að vera
með brotinn efrigóm eftir kjaftshögg
(þetta var á þeim árum þegar falskar
tennur þóttu eiginlega taka hinum
upprunalegu fram, og þegar fátt þótti
fínna en að fá falskar í fermingargjöf,
og var kallað að „láta smíða uppí
sig“). Að menn gætu trauðla talað af
því efrigómurinn skrollaði í tveim-
ur pörtum var með öðrum orðum
sérstakt karlmennskutákn og óræk-
ur vitnisburður um hugdirfð í land-
legupústrum með tilheyrandi lík-
amsmeiðingum – sama fyrirbæri er
lýst í frábærum skáldsögum Steinars
Sigurjónssonar frá svipuðum tíma,
til að mynda bókinni „Hamingju-
skipti“ þar sem aðalpersónan, akur-
nesíski rotarinn sem mig minnir að
heiti Toni, gengur einmitt um með
þverbrotinn plastgóm uppí sér.
En kannski föttuðu menn ekki
djókinn?
Það er að sama skapi mjög trúlegt
að þessar seinni tíma hugmyndir
um barsmíðar sem skemmtun séu
að einhverju leyti í það minnsta inn-
blásnar af okkar miðaldabókmennt-
um, eins og reyndar flest í okkar
menningu ef að er gáð. En þá er hins
að gæta að hetjuskapur tengdur of-
beldi og djöfulskap í Íslendinga-
sögum er kannski miklu tvíræðari
en við blasir í fljótu bragði; kannski
voru höfundar þeirra að dást að
flestu öðru en hinni yfirborðs-
legu standardhugmynd um karl-
mennsku og vopnfimi. Við nefndum
áðan kappana Þorgeir og Þormóð úr
Fóstbræðrasögu, en í seinni tíð hafa
æ fleiri gert sér ljóst að þeir eru af
hálfu höfundar þeirrar bókar fyrst
og fremst grínfígúrur, á borð við Don
Kíkóta hinn sjónumhrygga á hor-
bykkjunni Rósínante, og fylgdar-
manninn kubbslega Sansjó á asnan-
um. Egill Skallagrímsson hefur verið
mörgum fyrirmynd um hreysti, eins
og ég hef meðal annars fjallað um á
þessum vettvangi í skrifum um frá-
bæra ævisögu Stefáns Jónssonar
fréttamanns um Pétur Hoffmann,
en líka Egill er þegar sagan um hann
er grandskoðuð í löngum köflum
nokkurskonar skrípakall, og það
sama hálftröllin faðir hans og afi.
Og svo má skoða sjálfan Gretti
sterka Ásmundarson, hetjuna ógur-
legu. Grettir hefur að vísu flest til
að bera sem prýða má eina hetju:
hann er allra manna sterkastur
og fríðastur, hann er orðheppinn,
skáldmæltur og af góðum ættum.
En sagan er reyndar ekki um það.
Heldur þvert á móti: Grettissaga er
nokkurskonar stúdía á þeirri áleitnu
þversögn að það er sitthvað gæfa
og gjörvileiki; forskotið sem þeir
hafa sem eru jafn vel af Guði gerð-
ir og kappinn í sögunni dugir gjarn-
an ekki, því að lífið verður eigi að
síður að ógæfu. Grettir snýr niður
óvini sína, menn og drauga, en innri
demóna getur hann aldrei sigrað;
hann ræður ekki við skapsmuni sína
og það hrekur hann í tilveru utan-
garðsmanns. Og í útlegðinni kvelst
hann af einmanaleika, myrkfælni,
auk þess sem hann saknar svo sárt
mömmu sinnar og að mega ekki
vera hjá henni. Það var nú hans karl-
mennska og hetjuskapur; „okkar
samlanda“ Grettis Ásmundarsonar
frá Bjargi í Miðfirði. n
Grettir Ásmundarson „Innri demóna
getur hann aldrei sigrað.“
Hólmganga Egils
Skallagrímssonar og
Berg-Önundar
Mynd Eftir JoHAnnEs flintoE.
„Þá er nokkuð
áberandi í bókar
textum, munnlegum
frásögnum og allskyns
söngvum og dægurvísum
frá liðinni öld, þessi mikla
hrifning á áflogum og
slagsmálum sem hreinni
skemmtun og lífsfyllingu.
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
Nú er tími
haust-
laukanna
Frábært úrval af
gæða blómlaukum og
hvítlauksútsæði frá
Nelson Garden.
HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook
Frír flutningur innanlands
ef pantað er fyrir 3.900 kr.