Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Blaðsíða 6
Helgarblað 11.–14. nóvember 20166 Fréttir
A
lgjört hrun hefur orðið á
fjölda þeirra nýrna sem ís-
lenskir nýrnasjúklingar
hafa fengið til ígræðslu á
árinu í gegnum norrænt
samstarf um líffæragjafir. Átta nýrna-
ígræðslur voru framkvæmdar í fyrra í
tengslum við verkefnið en aðeins ein
það sem af er þessu ári. Það var nú
í byrjun mánaðarins sem sjúklingur
fór út til Svíþjóðar.
Sjúklingar sem bíða eftir ígræðslu
eru uggandi og aðstandendur verk-
efnisins hér á landi eru áhyggjufullir
yfir þróuninni. Boðað hefur verið til
fundar með fulltrúum Sahlgrenska-
háskólasjúkrahússins í Gautaborg
síðar í þessum mánuði þar sem skýr-
inga á þessu verður leitað. Tólf Ís-
lendingar eru nú formlega á biðlista
eftir nýrnaígræðslu.
Úr átta niður í einn
„Við viljum fá skýringar,“ segir Runólfur
Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga og
umsjónarmaður líffæraígræðsluteym-
is Landspítalans, um fundinn.
Runólfur segir að nýrnaígræðslur
hafi gengið mjög vel undanfarin ár og
Íslendingar séu með mjög hátt hlut-
fall nýrnabilaðra sem hafa ígrætt nýra.
Það sé fyrst og fremst því að þakka að
við séum með mikið af lifandi gjöfum.
En ígræðslur fyrir þá sem ekki hafa völ
á lifandi gjafa fara fram erlendis. Um
er að ræða samstarf milli Norðurland-
anna undir merkjum ígræðslustofn-
unarinnar Scandiatransplant sem
starfrækir líffærabanka. Líffæri sem
Íslendingar gefa fara í bankann og
ígræðsla fer oftast fram á Sahlgrenska-
háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg í
Svíþjóð sem er samstarfssjúkrahús
verkefnisins. Þannig hefur það verið
frá árinu 2010, en í ár hefur myndast
einhver flöskuháls varðandi nýru.
„Það voru átta tilfelli í fyrra og
fimm til sex á ári að meðaltali árin þar
á undan síðan þetta færðist til Gauta-
borgar frá Kaupmannahöfn. En í ár
fór sá fyrsti út núna í þessum mánuði.
Það er mjög sláandi samanborið við
fjölda síðustu ára,“ segir Runólfur.
„Byggt á því þá fer að myndast órói
meðal þeirra sem bíða. Aðgengið hef-
ur verið gott en það breyttist núna.“
Hann segir þó að þetta eigi ekki
við um önnur líffæri, en eftirspurnin
eftir nýrum er langmest.
Höfum gefið mikið í samstarfið
„Þetta er sérstök staða, ekki síst í ljósi
þess að við höfum verið að gefa mik-
ið af líffærum síðastliðin tvö ár í þetta
samstarf.“
Runólfur bendir á að í sumum til-
vikum geti líffæri sem komi héðan
til dæmis hentað best sjúklingum í
Danmörku eða Finnlandi og fara til
Sahlgrenska, þar sem ígræðslurnar
eru gerðar í langflestum tilvikum.
„Það hefur verið mikill vilji til að
gefa líffæri meðal fólks hér sem hefur
verið í þeirri aðstöðu. Þess vegna
finnst fólki sláandi þegar ígræðslu-
tíðnin dettur svona niður,“ segir
Runólfur. Hann bendir á að fyrir liggi
samstarfssamningur vegna verkefnis-
ins en þar sé ekki kveðið nákvæmlega
á um fjölda líffæra sem Íslendingar
eigi að fá úthlutað á ári hverju.
„En það er búið að boða til
fundar með þeim. Samningsaðilinn
hér er Sjúkratryggingar Íslands og
það verður fundur með fulltrúum
Sahlgrenska í lok þessa mánaðar þar
sem farið verður yfir þetta mál.“
Vilja svör
Sem stendur hafa menn því engar
skýringar fengið á þessari niðursveiflu.
„Í sumum tilfellum geta verið skýr-
ingar. Það er þannig með nýru að sum-
ir einstaklingar geta staðið höllum fæti
því þeir eru með mótefni í blóði sem
beinist gegn þeim líffærum sem völ
er á. Þá fá þeir ekki þennan valkost
og bíða lengur. Við viljum fara vel yfir
málið og fá skýringar á því hvað hef-
ur gert það að verkum að þetta hefur
dottið svona niður. Við erum búin að
senda þeim erindi út af því og það tek-
ur þá tíma að fara yfir þessi mál síð-
ustu mánuði til að geta gefið viðhlít-
andi svör og það er stefnt að því síðar
í mánuðinum. Það eru enn tæpir tveir
mánuðir eftir af árinu en okkur fannst
rétt að leita eftir því að fara yfir stöðu
mála eins og mikilvægt er í samstarfi
þjóða um svona mikilvægt mál. Verk-
efnið hefur gengið vel síðan við flutt-
um okkur til Gautaborgar árið 2010,
en svo kemur þetta skeið núna sem við
erum ekki alveg ánægð með. Við telj-
um að það þurfi að skoða hverju sætir.“
Tólf á biðlista
Eins og sakir standa eru tólf nýrna-
sjúklingar nú á formlegum biðlista
eftir nýrnaígræðslu á Íslandi en
nokkrir til viðbótar á undirbúnings-
stigi sem felur í sér viðamiklar undir-
búningsrannsóknir.
„Það er misskilningur margra að
halda að nú þegar þeir séu komnir
með nýrnabilun þurfi bara eitt sím-
tal til Svíþjóðar og þeir séu komnir
á lista. Það er ekki svo. Það er þung
meðferð og undirbúningsrannsóknir
sem tengjast ígræðslum.“ n
Vissir þú þetta um
líffæraígræðslu?
n Líffæri sem Íslendingar gefa fara í líffærabanka
Scandiatransplant en ígræðsla þeirra fer oftast fram
Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg.
n Árangur af líffæraígræðslum er orðinn afar góður.
n Stærsta vandamálið er enn skortur á líffærum til
ígræðslu.
n Nýru eru þau líffæri sem oftast eru grædd í Íslendinga, eins og aðra.
n Hlutfall lifandi gjafa sem gefa nýra er mjög hátt hér á landi og undanfarna tvo
áratugi hafa þeir verið um 70% af öllum nýragjöfum.
n Önnur líffæri en nýru koma nær eingöngu frá látnum líffæragjöfum.
n Frá einum látnum gjafa hafa komið líffæri sem hjálpað hafa sex einstaklingum. Einn
látinn einstaklingur getur mögulega gefið SJÖ einstaklingum nýtt og betra líf.
n Andlát vegna heiladauða er forsenda þess að unnt sé að nýta líffæri látinna einstak-
linga til ígræðslu.
n Læknar koma frá Sahlgrenska-háskólasjúkrahúsinu og framkvæma brottnám og
fara með líffærin til Gautaborgar.
n 80% einstaklinga segjast myndu samþykkja að líffæri þeirra yrðu notuð til ígræðslu
ef sú staða kæmi upp, samkvæmt könnunum.
n Fæstir hafa fyrir því að skrá þann vilja sinn og ræða hann við nána ættingja. Það
leiðir til þess að aðstandendur eru spurðir og þeim finnst erfitt að taka slíka ákvörðun.
n Allt að 40% aðstandenda látins ættingja hafna brottnámi líffæra til ígræðslu hér á
landi, sem er svipað hlutfall og þekkist annars staðar.
n Víða er kveðið á um ætlað samþykki sem merkir að gengið er út frá því að einstak-
lingur sem lætur lífið vilji að líffæri hans séu notuð til ígræðslu nema hann hafi áður
gefið skriflega yfirlýsingu um annað.
n Hér á landi er hins vegar gengið út frá ætlaðri neitun. Ítrekað hafa framlögð frum-
vörp að lögum um ætlað samþykki dagað uppi á Alþingi. Sífellt fleiri lönd hafa breytt
lögum sínum og gera nú ráð fyrir ætluðu samþykki.
n Þú getur skráð þig sem líffæragjafa á vefsíðu Landlæknis: www.donor.landlaeknir.is
Heimild: Félag nýrnasjÚkra, www.nyra.is
sigurður mikael jónsson
mikael@dv.is „ Í ár fór sá fyrsti
út núna í þessum
mánuði. Það er mjög
sláandi samanborið við
fjölda síðustu ára.
Einn
fEngið
nýrA þAð
sEm Af Er ári
n Íslendingum gengur illa að fá ígræðslu í gegnum norrænt samstarf
Vill svör Runólfur Pálsson, yfirlæknir
nýrnalækninga og umsjónarmaður
líffæraígræðsluteymis Landspítalans, segir
fækkunina sláandi og vill fá svör.
Óútskýrð
fækkun
Í fyrra gengust
átta Íslendingar
undir nýrna-
ígræðslu á
Sahlgrenska-há-
skólasjúkrahúsinu
í Gautaborg og
nutu þar góðs
af hinu norræna
samstarfi. Það
sem af er ári hefur
aðeins einn farið
til Svíþjóðar í þeim
erindagjörðum.
mynd 123rF.com
Hentar vel í matargerð, ofan á brauð, til að poppa popp,
í baksturinn, í þeytinginn, á húðina eða til inntöku.