Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Side 26
Helgarblað 11.–14. nóvember 20162 Bestu pítsur bæjarins - Kynningarblað F latbökurnar á XO njóta gríðar- legra vinsælda enda hrikalega góðar og hollar í ofanálag sem gerir upplifunina ein staka, bæði fyrir bragðlaukana og líkamann. Súrdeigsbotnarnir í flat- bökunum eru sérþróaðir úr heil- kornum enda er hvorki hvítt hveiti né hvítur sykur notaður í mat sem XO framreiðir. Flatbökusósan er einnig sérþróuð af XO. „Það er í tísku að borða hollan mat og Íslendingar eru framarlega hvað varðar heilsu og hollustu. Viðskipta- vinir XO vita að hverju þeir ganga og við munum aldrei draga úr gæðum, XO mun ávallt bjóða upp á fyrsta flokks mat úr hágæða hráefni. Án viðskiptavin- anna væri XO ekki til og þeir skipta okk- ur öllu máli,“ segir Gunnar Örn Jónsson, einn eigenda XO veitingastaðar. „Vinsælustu flatbökurnar á XO eru Kjúklingaflatbaka Italiano og Humar flatbaka en margir af okkar frábæru viðskiptavinum hafa haft á orði að þessar flatbökur séu þær bestu og jafnvel langbestu flatbökur sem þeir hafi smakkað og hafa þeir margir hverjir ferðast víða,“ segir Gunnar enn fremur. Kjúklingaflatbaka Italiano inni- heldur kjúkling, parmaskinku, mozzarella, kryddolíu, flatbökusósu og ost og er þetta hættulega góð blanda að mati blaðamanns. Humar flatbakan er líklega ein besta humarflatbaka landsins en á henni eru hvítlaukskryddaðir humarhalar, sveppir, klettasalat, hvít- laukskrem, flatbökusósa og ostur. Grænmetisflatbakan hef- ur einnig notið mikilla vinsælda en grænmetisætum hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Hollur skyndibiti í fusion-stíl XO er hollustuskyndibitastaður sem framreiðir mat í fusion-stíl þar sem asísk og evrópsk matreiðsla renna saman. Maturinn er eldað- ur frá grunni og XO kappkostar að gera bragðið einstakt. XO styðst ein- göngu við topphráefni og er hvorki hvítur sykur né hvítt hveiti notað við matreiðsluna. Hugmyndin að XO var í mótun í yfir 10 ár en það var ekki fyrr en snemma á síðasta ári sem hún fór að taka á sig mynd. Eigendur XO hafa mikla ástríðu fyrir hollum mat en þeir segja það miður skemmti- lega staðreynd að óhollur skyndi- biti sé mjög algengur í mataræði fólks. Þeir vildu því bjóða fólki upp á hollan og góðan valkost á sann- gjörnu verði. Einkunnarorð XO eru Fun, Fast, Fusion sem lýsir staðnum og hug- myndafræðinni að baki staðnum vel. XO er í senn skyndibitastað- ur og veitingastaður. Fólk á jafnt að geta stokkið inn til þess að taka með sér rétti af matseðli eða sest niður í rólegheitunum og notið veitinganna í skemmtilegu og frísklegu um- hverfi. „Við seljum yfir 60 prósent í „take away“ og því ljóst að tíminn er af skornum skammti á Íslandi í dag,“ segir Gunnar léttur í bragði. XO hefur áunnið sér gott orð- spor og á í dag mörg hundruð fastakúnna, jafnt einstaklinga sem fyrirtæki, en sá hópur stækkar ört. Erlendir ferðamenn hafa í síauknum mæli komið við á XO enda fær stað- urinn lofsamlega dóma frá sínum viðskiptavinum, m.a. á Tripadvisor og Facebook. „Húsnæðið er orðið of lítið fyrir okkur og við eigum í viðræðum við fasteignafélög varðandi stað- setningu fyrir annan XO veitinga- stað. Þar er ýmislegt að gerast,“ seg- ir Gunnar að lokum. XO er til húsa á Hringbraut 119, við JL húsið og Grandagarðinn. n Íslendingar vilja hollan skyndibita XO: Gómsætar og hollar flatbökur „There are very unique items to order on the menu. I highly recommend the lobster pizza, it was incredible! – Tripadvisor, október 2016.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.