Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Side 34
Helgarblað 11.–14. október 20166 Bækur
Vanþroskasaga
Gerður Kristný sendi á dögunum frá sér þriðju skáldsögu sína fyrir full-orðins lesendahóp, Hest-vík. Sú fyrsta hét Bátur
með segli og allt og fjallaði um unga
konu sem reynir fyrir sér í blaða-
mennsku. Önnur hét Regnbogi í póst-
inum. Hestvík er einskonar þroska-
saga, eða í raun mætti frekar segja
að hún sé hálfgerð vanþroskasaga.
Sögusviðið er sumarbústaðaland í
Grafningnum á Þingvöllum í dimm-
um ágústmánuði. Elín fer með Dóra,
unglingsson sinn, í bústað sem for-
eldrar hennar áttu og gegndi stóru
hlutverki í æsku hennar sjálfrar. Til-
gangurinn er að tengjast syninum
og veita honum álíka upplifun og
hennar eigin, þegar hún dvaldi sem
barn með foreldrum sínum í Hest-
vík. Undirliggjandi er nostalgísk þrá
gagnvart æskunni og einfaldleikan-
um, en að auki sú þrá að geta unnið
úr þeim andlegu sárum sem maður
hlaut í æsku.
Sonurinn er barn síns tíma, eins
og gengur og gerist með fólk, og er
því ekki jafn móttækilegur fyrir for-
tíðarþrá móðurinnar og best væri á
kosið. Í stað þess að lesa
bækur og leika sér úti, er
leikvöllur nútímaung-
lingsins á rafrænu
formi, inni í tölvuleik.
Á tímapunkti verður
svo harla óljóst hvor
er foreldrið og hvor er
barnið, þar sem stað-
urinn virðist hafa tölu-
verð áhrif á þroskastig
Elínar. Það má jafnvel
segja að hún gangi í
barndóm um miðbik og seinni part
sögunnar, sérstaklega þegar hún
rekst á fyrrverandi bekkjar félaga
sinn, hrekkjusvínið Hauk. Eins og
með margt annað, þá er mikilvægt
að taka eitt skref afturábak til þess
að geta tekið tvö áfram, en það er
tvísýnt hvort söguhetjan í Hestvík
nái svo langt þar sem margt virðist
halda aftur af henni, bæði í lífinu og
á sinninu.
Elín og Haukur eru einskonar and-
stæður í sögunni.
Börn þeirra beggja
má einnig líta á sem
andstæður foreldra
sinna þar sem ein-
faldi sveimhuginn,
Bergdís, er dóttir
hrekkjusvínsins
Hauks og grunur leik-
ur á að Dóri, sonur
Elínar, sé ekki allur þar
sem hann er séður.
Barnamenning
er áberandi í stíl
sögunnar, sem og
atburðum. Með því að
stilla saman myrkrinu
á Íslandi í ágúst,
barnamenningunni og fullorðins-
heiminum nær Gerður, á klassískan
hátt, að skapa dularfulla stemningu
sem minnir á svarthvít meistara-
verk hvíta tjaldsins. Ef gagnrýnanda
skjátlast ekki er meira að segja nokkur
Kubrick-bragur á sögunni þar sem
allmargt kallast á við eitt meistara-
verka leikstjórans, The Shining. Má
þar fátt eitt nefna svo sem upphafs-
senuna: bílferð um sveitaveg, hótel-
ið, tvíburana og gamla manninn sem
kemur til bjargar á síðustu stundu.
Léttleikinn er þó sjaldan langt undan
í Hestvík, enda er Gerður sniðug-
ur og hnyttinn höfundur sem kann
að krydda texta sína með „komik
rilíf“, eins og maður segir á vondri ís-
lensku. Þess ber þó að geta að Hest-
vík er ekki dæmigerð spennusaga,
því þótt hún sé spennandi á köflum,
þá fellur hún aldrei í þær formúlu-
kenndu frásagnargildrur sem svo
margir krimmar og hrollvekjur
virðast hnepptir í nú til dags.
Hestvík er óvenjuleg saga af
venjulegu fólki sem stríðir við nokk-
uð algeng vandamál. Eina vanda-
málið við bókina er að persónurn-
ar eru helst til of miklar steríótýpur,
eins og títt er hjá kollega Gerðar,
Stephen King, að það verður þraut-
in þyngri að tengjast þeim. Elín:
veika móðirin í afneitun. Haukur:
aumkunarverða hrekkjusvínið sem
reynir árangurslaust að bæta ráð
sitt og Kata, taugaveiklaða konan
hans. Dóri: skilnaðarbarnið/mögu-
lega siðblindi sonurinn. Loks er það
Bergdís: dularfulli sveimhuginn sem
virðist svífa yfir allri sögunni, í nútíð
sem og fortíð (gagnrýnanda langar
helst ekki að minnast á Manic Pixie
Dream Girl, en á erfitt með að forð-
ast það). Eins og títt er með vel skap-
aðar aukapersónur, þá stela þær dá-
lítið athyglinni frá aðalpersónunum.
Þar eru uppátækjasömu tvíburarnir í
forgrunni.
Sagan er virkilega vel samin og
samsett með ítrustu varkárni. Vel
staðsettar vísanir í menningu barna
ýfa þannig upp nostalgíuna í okkur
öllum, þó með drungalegum undir-
tón sem erfitt verður að hrista af sér. n
Jóhanna María Einarsdóttir
johanna@dv.is
Bækur
Hestvík
Höfundur: Gerður Kristný
Útgefandi: Mál og menning
163 bls.
„Hestvík er óvenju-
leg saga af venju-
legu fólki sem stríðir við
nokkuð algeng vandamál.
Harry Potter og bölvun barnsins er leikrit eftir Jack Thorne, byggt á sögu eftir J.K. Rowling, John Tiffany og Jack
Thorne. Leikritið er sýnt í London
fyrir fullu húsi og hefur fengið skín-
andi góða dóma. Það er vitanlega
ekki sambærilegt að lesa leikrit og
sjá það á sviði. Þó er ljóst við lestur-
inn að leikritið býður upp á flugelda-
sýningu varðandi tæknibrellur, sem
á örugglega sinn þátt í hrifningu leik-
húsgesta á verkinu. Leikritið sjálft er
líka mjög gott og ætti engan veginn
að valda aðdáendum Harry Potter
vonbrigðum.
Það er ekki ætíð auðvelt að vera
barn frægs foreldris og yngri sonur
Harry Potters, Albus, á ekki auðvelt
með það og áberandi togstreita
er á milli feðganna. Í Hogwart-
skóla vingast Albus við
Scorpius, son Draco sem
var keppinautur föður
hans, og saman ákveða
þeir að breyta fortíðinni. Æsileg at-
burðarás upphefst.
Verkið er spennandi, viðburðaríkt,
haganlega samið og ágætlega hug-
myndaríkt. Höfundurinn Jack Thorne
er trúr anda bókanna og
persónur úr þeim birt-
ast hér ein af annarri,
þar á meðal hinn
elskaði Dumbledore,
og stutt endurkoma
hans hlýtur að framkalla
hlýja strauma frá að-
dáendum bókanna.
Verkið er á köfl-
um mjög
tilfinn-
ingaríkt og
þar á sér
stað uppgjör, eins og
á milli Harry Potter
og Dumbledore,
og fjallað er af
mikilli alvöru um
samband foreldra
og barna og erfið-
leikana sem fylgja
því að vera ungur.
Við lestur leik-
ritsins getur mað-
ur reyndar ekki
varist þeirri hugsun
hversu gaman hefði
verið að fá þykka
skáldsögu um
þetta sama efni
frá Rowling
sjálfri. Það
næstbesta
er þetta vel
heppnaða
leikrit. n
Harry Potter snýr aftur
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bækur
Harry Potter og
bölvun barnsins
Höfundur: Jack Thorne
Þýðandi: Ingunn Snædal
Útgefandi: Bjartur
345 bls.
„Verkið er
spennandi,
viðburðaríkt og
haganlega samið.