Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Page 42
Helgarblað 11.–14. nóvember 201626 Skrýtið Sakamál
Þ
ótt ekki sé ljóst hvað hrjáði
hjónaband Guadalupe
Ronquillo-Ovalle og Israels
Alvarez virðist ljóst að ræt-
ur þess kunna að hafa leg-
ið djúpt. Þann 19. september, 2013,
átti sér stað uppgjör sem kost-
aði fimm mannslíf. Guadalupe og
Israel bjuggu ásamt þremur sonum
sínum í Rice, smábæ 65 kílómetra
suðaustur af Dallas í Texas.
Hringt í Neyðarlínuna
Hvað sem því líður þá hefst þessi
saga 11. september, 2013, þegar
Guadalupe kom í öngum sínum
í grunnskóla sona sinna til að hr-
ingja í Neyðarlínuna. Sagði hún
farir sínar ekki sléttar; hún hafði
verið að ræða við systur sína í sím-
anum þegar eiginmaður hennar
reif af henni símann með þjósti,
fjarlægði rafhlöðuna úr honum og
lét síðan hendur skipta.
Þennan sama dag var Israel
handtekinn og ákærður fyrir heim-
ilisofbeldi. Hann andmælti ekki
ákærunni, játaði sig sekan um
lítilfjörlegt afbrot, greiddi 367 dali
í sekt og eyddi tveimur dögum í
grjótinu.
Uppgjörið
Sem fyrr segir átti sér stað blóðugt
uppgjör 19. september, rúmri viku
eftir handtöku Israels. Daginn
þann sendi Guadalupe eiginmann
sinn yfir móðuna miklu. Hún lét
ekki staðar numið og gerði slíkt hið
sama við syni þeirra þrjá, fjögurra,
átta og tíu ára. Að því loknu tók
hún þá ákvörðun að verða fjöl-
skyldu sinni samferða og skaut sig
í höfuðið.
Það varð hlutskipti föður Israels
að finna lík fjölskyldunnar, en
hann þurfti að nota stiga til að
komast upp á svalir á annarri hæð
enda hafði enginn svarað þegar
hann knúði dyra á heimili fjöl-
skyldunnar.
Elmer Tanner, lögreglustjóri
Navarro-sýslu sagði að ekkert á
vettvangi benti til þess að Israel
hefði brugðið vopni.
„Einangrað tilvik“
Hafði lögreglustjórinn á orði að lítt
væri hægt að álykta af fangelsun
Israels „annað en að um hefði ver-
ið að ræða einangrað tilvik tengt
heimilisofbeldi. Við getum aðeins
gert ráð fyrir að einhver vandræði
hafi verið til staðar á heimilinu.“
Skýrslur sýndu að í kjölfar
handtöku Israels rúmri viku fyrr
hafði Guadalupe hvorki farið fram
á skilnað né sett fram kröfu um
nálgunarbann eða aðrar viðlíka
ráðstafanir.
Leituðu ráða
Vinkona hjónanna, Maria Franco,
renndi stoðum undir orð lögreglu-
stjórans. Að hennar sögn komu
Guadalupe og Israel í heimsókn til
hennar 16. september og leituðu
hjá henni ráða til að bjarga hjóna-
bandinu. Hjónin höfðu á orði að
þau glímdu við „venjuleg vanda-
mál“.
Að hennar sögn var ekkert sem
benti til þeirrar vár sem síðar varð
ljóst að var yfirvofandi: „Ég heyrði
ekkert sem benti til hættu.“ n
Morð-SjálfSMorð
Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - ha@hannyrdabudin.is
Hannyrðab
udin.isNý hei
masíða
Ótrúlegtúrval!
n Hvað hrjáði hjónaband Guadalupe og Israels er ekki vitað „Eigin-
maður
hennar reif af
henni símann
með þjósti,
fjarlægði raf-
hlöðuna úr
honum og lét
síðan hendur
skipta.
Guadalupe
Ronquillo-
Ovalle
Beindi að
lokum
byssunni að
sjálfri sér.
Israel Alvarez
Heimilisofbeldi
kostaði hann tvo
daga í steininum.