Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Side 47
Helgarblað 11.–14. nóvember 2016 Menning 31 hefur snúið textanum yfir á trú­ verðugt íslenskt talmál. Leikritið fjallar í stuttu máli um ástina í hjónabandi tveggja einstak­ linga og samskipti þeirra við sam­ bandsslit. Líkt og þeir þekkja sem reynt hafa, þá er uppgjör hjóna­ bands ekki einfalt mál og endur­ speglar verkið það vel. Þau Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors fara með hlutverk hjónanna. Þau eru ólíkir leikarar en njóta sín bæði vel í sýningunni. Björn á auðvelt með að vekja hlátur áhorfenda með einlægri sjálfselsku eiginmannsins, á meðan Unnur miðlar sársauka hinnar sviknu eiginkonu með eftirminnilegum hætti. Bæði hafa þau augljóslega lagt mikla hugsun í handritið, afstaða þeirra er alltaf skýr, undirtexta verksins er vel skil­ að og leikur þeirra beggja í einu orði sagt frábær. Ólafur Egill Egilsson er fjölhæfur listamaður, bæði afbragðsleikari, handritasmiður og leikstjóri. Hann hefur einstaklega næmt auga fyrir óþægindum og skilar þeim af mikilli natni til áhorf­ enda. Allar sviðshreyfingar eru út­ hugsaðar, ástæða er fyrir sérhverju skrefi. Ólafur Egill er líka óhrædd­ ur að taka áhættu og skapa óvænta spennu, eins og þegar eiginkonan skellti sér allt í einu á bakið á miðju sviði og aðeins munaði hársbreidd að opin koníaks flaska ylti um koll. Fyrir þá sem þekkja verðskrá ÁTVR var þetta verulega taugatrekkj­ andi stund. Seinni hluta verksins hefði aðeins mátt stytta og vinna betur úr lokasenu verksins. Mynd­ bandið vann þar bókstaflega gegn leikurunum og virkaði eins og samkeppni um athygli áhorfenda. Myndbönd í leiksýningum eru að verða einhvers konar einkennis­ merki Borgarleikhússins. Í þessari sýningu virkuðu þau upp og ofan, þó betur því meira sem þau voru abstrakt, svona frekar eins og hluti af lýsingunni, sem var mjög fín. Leikmynd Ilmar Stefánsdóttur er falleg og þróast skemmtilega með verkinu. Húsgögnin voru þó ekki eins vel heppnuð. Hvíta dún­ úlpan var hins vegar djarft og skemmtilegt búningatromp, hlut­ verk eiginmannsins undir mið­ bik verksins hefði ekki verið samt án hennar. Þetta er mögnuð sýn­ ing þar sem hjónabandið er keyrt í gegnum miskunnarlaust þolpróf ástin tekur á sig ýmsar myndir. Tví­ mælalaust ein áhugaverðasta sýn­ ing leikársins. n Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ Súrdeigsbrauðin okkar eru alvöru u Heilkorna u 100% spelt u Sykurlaus u Gerlaus u Olíulaus „Ólafur Egill hefur einstak- lega næmt auga fyrir óþægindum og skilar þeim af mikilli natni til áhorfenda upp merkinguna og lögðu áherslu á hljóminn. Þarna komu fram hljóð­ ljóðin sem urðu mjög áberandi, ljóð sem unnu fyrst og fremst með ákveðin hljóð en voru í raun merk­ ingarlaus.“ Benedikt segir að þótt ákveðin fagurfræðileg einkenni hafi smám saman komið fram í listsköpun dadaistanna þá hafi það fyrst og fremst verið afstaðan og lífsviðhorf­ ið sem sameinaði þá. „Þetta er í raun hreyfing sem leggur til ákveðinn vettvang til að gera ákveðna tegund af tilraunum. Frekar en að hugsa um dadaismann sem stíl, eða list­ ræna stefnu með skýrar hugmyndir, myndi ég frekar hugsa um þetta sem vettvang og rými sem einstaklingar geta komið inn í og unnið með ákveðna hluti.“ Helgimyndabrjótar Upprunalegi dadahópurinn í Zürich var starfandi í um þrjú ár áður en meðlimir fluttu einn af öðr­ um úr landinu eftir að stríðinu lauk. Með þeim dreifðust hins vegar hug­ myndirnar um álfuna og urðu aðr­ ar stórborgir Evrópu þungamiðja hreyfingarinnar næstu árin. Áhrifa­ mestu hóparnir voru í Berlín og París en fjölbreyttar dadahreyf­ ingar og hópar spruttu upp mun víðar, bæði innan Evrópu og utan, meðal annars Tókýó og New York. Dadaistar gáfu út tímarit, skrifuðu ljóð, fluttu leikrit, máluðu mynd­ ir, gerðu kvikmyndir og fjölmargt fleira. Um miðjan þriðja áratuginn fór hins vegar drifkraftur dada­ ismans, eins og margra annarra framúrstefnuhreyfinga, að minnka, en nýjar hreyfingar tóku við keflinu. „Það er í raun eftir seinna stríð sem áhuginn fer svo aftur að vakna og menn fara að sækja aftur í þess­ ar hefðir. Áhuginn á dadaismanum verður sérstaklega sterkur þegar kemur fram á sjöunda áratuginn, ekki síst í framsæknum listhreyfing­ um þess tíma. Þá fundu menn hluti í dadaismanum sem mátti nýta í þeirri uppreisn sem var að eiga sér stað gegn listhefðinni og uppgjörinu við seinni heimsstyrjöldina. Þarna má segja að dadaisminn hafi komist á kortið og orðið þessi þungavigtarhreyfing í evrópskri menningarsögu, sveipuð ákveðnum goðsagnakenndum blæ,“ segir Benedikt. Benedikt segir að rætt hafi verið um dadaismann í íslenskri menn­ ingarumræðu strax á upphafsárun­ um en engir Íslendingar hafi opin­ berlega samsamað sig hreyfingunni. Áhuginn hafi hins vegar kviknað í meira mæli eftir stríð og hafi fyrstu þýðingar á verkum dadaista birst í Birtingi. Síðan þá hafi ungir lista­ menn oft horft aftur til dadaist­ anna, til að mynda SÚM­hópurinn í myndlist og Medúsuhópurinn í skáldskap. „Alls staðar þar sem lögð er áhersla á að ástand sé komið í stöðnun og það þurfi að brjóta upp ríkjandi hefðir þá líta menn oft til dadaistanna – gildi dadaismans frá sjónarhorni seinni tíma liggur því kannski helst í helgimyndabrotinu, íkónóklasmanum.“ Íslenski dansflokkurinn frum­ flytur Dada dans í Borgarleikhús­ inu á laugardag. Á sunnudag mun Benedikt Hjartarson svo ræða um dada og tengsl ýmissa framúrstefnu­ hreyfinga og fyrri heimsstyrjaldar, í Hafnarhúsi, Listasafni Reykjavík­ ur. n Að dansa dada Íslenski dansflokkurinn frumflytur dada dans Dada dans er nýtt dansverk eftir Ingu Huld Hákonardóttur og Rósu Ómarsdóttur sem verður frumflutt um helgina, en sérstök dada-veisla er haldin í forsal leikhússins fyrir sýninguna. „Það er margt í nútímanum sem er svolítið svipað og þegar dadaisminn kom fram, miklar öfgar í pólitík, uppgangur hægriafla, og ýmislegt fleira. Því er við hæfi að minnast þess hvernig fólk tókst á við slíkar aðstæður fyrir hundrað árum,“ segir Inga Huld. Hún segir að þær hafi einnig fundið til skyldleika við aðferðafræði og afstöðu dadaistanna. „Það er ýmislegt í dadaismanum sem við tengjum við í okkar vinnu. Þeir notuðu margir tilviljanir og tilviljanakenndar aðferðir til að setja hluti saman og skapa verk sem eru frekar súrrealísk – enda spratt súrrealisminn upp úr dadaismanum. Okkur finnst líka mjög áhugavert hvernig listamenn unnu, myndlistarmenn, dansar- ar, tónlistar menn voru ekki að greina sig frá hver öðrum heldur blönduðu þessu öllu saman,“ segir Inga Rós og útskýrir að verkið hafi verið unnið í náinni samvinnu við Svein- björn „Hermigervil“ Thorarensen tónlistarmann og Þórdísi Erlu Zöega myndlistarkonu. Inga Huld segir að í hefðbundnum danssögubókum leiki dadaisminn lítið hlutverk, en þrátt fyrir það hafi dansinn verið mikilvægur, að minnsta kosti á upphafsárum hreyf- ingarinnar. „Það voru margar danslistakonur sem tóku þátt í Cabaret Voltaire, það er til dæmis talað um að Emma Hennings, mynd- og danslistakona, hafi verið ein af þeim sem hafi fengið hugmyndina af því að setja upp kabarett. Kabarett er náttúrlega allt í senn dans, performans, tónlist, hljóðljóð, allt í bland. Dansinn sem fór þarna fram virðist hafa haft áhrif í myndlistar- og gjörningalistaheiminn, en það virðist ekki hafa gengið jafn mikið í hina áttina. Þess vegna fannst okkur áhugavert að skoða hvað dada gæti verið í dansi,“ segir Inga Huld. Heimurinn er á heljarþröm, hvað er til ráða? DADA!„Gildi dada­ ismans frá sjón­ arhorni seinni tíma ligg­ ur því kannski helst í helgimyndabrotinu, íkónóklasmanum Klippimynd Dadaistar blönduðu saman ólíkum miðlum og klipptu saman fundnar myndir og texta. Mynd eftir Raoul Hausmann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.