Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 16
Jólablað 22. desember 201616 Umræða Þ að hefur verið dálítið merki­ legt að fylgjast með mik­ illi hneykslun margra að undanförnu yfir kirkju­ heimsóknum barna. Það er að segja því hversu fáheyrt sumum virðist finnast að krakkar heimsæki kirkjur; tónninn er stundum eins og ólögráða unglingar séu tældir inn á vafasamar búllur, spilavíti eða sellu­ fundi öfgahreyfinga og aðra slíka staði sem þeim eru ekki ætlaðir. En í sannleika sagt þá væri dálítið undarlegt ef íslensk börn kæmu ekki í kirkjur. Til dæmis þegar tekið er til­ lit til þess að það eru mörg hundruð kirkjur hér á landi. Og það sem meira er þá eru þær í öllum byggðarlög­ um, sveitum, kaupstöðum; það eru kirkjur í hverju íbúðahverfi, þær eru yfir leitt miðlægar og áberandi; þær eru margar af fegurstu og merku­ stu byggingum landsins, bæði hið ytra og hið innra; bæði stóru kirkju­ musterin og þær litlu og gömlu til sveita – með mikla sál og sögu. Hverslags uppeldi væri það að leyfa barni ekki að koma inn í þannig hús? Trúarbrögð og trú Þegar menn tala um kirkjur og kristni sem einhverja sérvisku hér á landi, sem einhvern einn trúarhóp á við alla hina, smáa og stóra, þá gleyma menn kannski því að kristni og kirkjan hafa leikið lykilhlutverk í sögu okkar þjóðar í meira en þús­ und ár. Saga okkar er á sinn hátt kristin og menning okkar er það í ríkum mæli; okkar helstu höfundar að fornu og nýju hafa verið mótaðir af hugmyndaheimi kristninnar, ekki bara Hallgrímur Pétursson og öll hin sálmaskáldin, heldur líka höfundar okkar dýrustu bókmennta bæði til forna og á síðari tímum. Ég sagðist eitt sinn sjálfur líta á mig sem kristinn mann þótt ég væri að mestu trúlaus, og mörgum hefur þótt það heldur undarleg staðhæfing, en í heildina gildir að kristni Íslendinga snýst um miklu meira en trú. Margar mikilvægustu hugmyndir okkar um samfélagið og náungann eru líka mjög smitaðar af kristnum boðskap, og trú­ lega er það engin tilviljun að samfé­ lög hinna kristnu Vestur landa hafi orðið mannúðlegri og lýðræðislegri en mörg önnur. Vissulega er erfitt að staðhæfa hvað kom hvaðan, við vitum auðvitað ekkert hvernig þjóð­ ir Evrópu hefðu þróast við önnur ríkj­ andi trúarbrögð, og sömuleiðis er ekki heldur verið að horfa framhjá því að margt illt og grimmt hefur ver­ ið unnið í nafni nefndra trúarbragða; við erum ekkert að gleyma kross­ ferðunum eða rannsóknarréttinum, en hinu er ekki að neita að allt er þetta hluti af okkar sögu. Með öðrum orðum: það er ekkert fáheyrt við íslenskar kirkjur, ekkert öfgakennt eða framandi; þær eru hluti af okkar umhverfi, menningu og hugsun. Og það langt út fyrir trú og boðun nefndra stofnana. Kraftaverk og eilíft líf Ég sagði áðan að mér fyndist alveg mögulegt að vera kristinn án þess að trúa endilega á kraftaverk eins og upprisu holdsins og eilíft líf. Og ein­ hvern veginn held ég að það hafi verið útbreidd samsetning á Íslandi mest­ alla tíð; menn hér virðast yfirhöfuð ekki hafa tekið trúarbrögð sérstaklega alvarlega. Til dæmis þurfti ekki að heyja trúarbragðastríð til forna þegar skipt var um sið: það var einfaldlega ákveðið á alþingi. Trúarbrögð virð­ ast hafa miklu meiri þýðingu meðal sumra þeirra þjóða sem okkur eru skyldastar, það á til dæmis við í Fær­ eyjum og á vesturströnd Noregs, og hægt að lesa um það í skáldsögum frá þeim slóðum, eins og eftir höfundana William Heinesen og Alexander Ki­ elland. Sjálfur dvaldist ég tvö sum­ ur í Klakksvík norðarlega í Færeyjum og þar var meirihluti íbúa í heittrúar­ félögum – þar hitti ég fólk sem kross­ aði sig þegar ég sagðist vera nýkom­ inn frá Þórshöfn; þetta fólk notaði ekki það heiti, sagði bara „Havn­ in“ um höfuðstaðinn; Þór er auðvit­ að heiðinn vættur sem sanntrúaðir taka sér ekki í munn. Ég man að ein­ hver á þeim slóðum sagði við mig að meirihluti fólks væri trúaður og þar með í svonefndum sértrúarsöfnuð­ um. En minnihlutinn hins vegar að mestu trúlaus, og léti sér þess vegna nægja að vera í þjóðkirkjunni. Og það held ég að hafi lengst af verið ís­ lenska aðferðin: að vera í þjóðkirkj­ unni en finna ekki mikinn trúarhita í brjósti sér. Ég er alinn upp af ákaflega góðu fólki, foreldrum mínum, og okk­ ur systkinunum voru innrættar ýms­ ar grundvallarlífsreglur, eins og að að vera góð við dýr og minni máttar og aldrei hrekkja þá sem standa höllum fæti. En það var ekki talað við okkur um trúna og okkur voru ekki kennd­ ar bænir; faðirvorið heyrði ég ekki fyrr en ég kom í sex ára bekk í Ísaksskóla, og þótti það reyndar hið áhugaverð­ asta kvæði. Samt vorum við systkinin hvött til að sækja sunnudagaskóla, prestar skírðu okkur og við vorum fermd og það hefði aldrei hvarflað að neinum í mínum frændgarði að gera útför sinna nánustu annars staðar en úr kirkju og láta svo jarða í vígða mold í kirkjugarði. Biblían Halldór Laxness talar um það í einni af endurminningabókum sínum að „biflían sé bók sem Íslendíngar nenni ekki að lesa“ en hvað sem því líður þá fór ég ekki að kynnast „bók­ inni einu“ að gagni fyrr en ég sótti kúrs í Háskólanum um fornaldar­ bókmenntir, og þar hafði Kristján Árnason á pensúminu merk rit úr Biblíunni, bæði Nýja testamentinu og hinu ókristilega Gamla testa­ menti. Og ekki er hægt annað en að hrífast mjög af fögrum orðum Mattheusarguðspjalls, eins og þess­ um sem reyndar eru höfð eftir Kristi sjálfum: „Lítið til fugla himinsins, þeir sá ekki né uppskera og þeir safna ekki heldur í hlöður, og yðar himneski faðir fæðir þá; eruð þér ekki miklu fremri en þeir? En hver af yður getur með áhyggjum aukið einni alin við hæð sína? Og hví eruð þér áhyggju- full um klæðnað? Gefið gaum að lilj- um vallarins, hversu þær vaxa; þær vinna ekki og þær spinna ekki heldur, en ég segi yður, að jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra.“ Það er varla til stærri og lýrískari allegóría en byrjun fyrstu Mósebók­ ar; Opinberunarbókin getur orðið mönnum eilíf ráðgáta, og ekki er annað hægt en að verða heillaður af svona línum úr Ljóðaljóðunum: „Fögur ertu, vina mín, eins og Tirza, yndisleg eins og Jerúsalem, ægi- leg sem herflokkar. Snú frá mér aug- um þínum, því að þau hræða mig. Hár þitt er eins og geitahjörð, sem rennur niður Gíleað-fjall. Tennur þín- ar eru eins og hópur af ám, sem koma af sundi, sem allar eru tvílembdar og engin lamblaus meðal þeirra.“ Jobsbók og Prédikarinn Kennari vor í Háskólanum, Krist­ ján Árnason fornfræðingur, skáld og þýðandi, lagði áherslu á að við stúderuðum Jobsbók, um manninn sem bregst aldrei í sínum trúarhita þótt allt sé frá honum tekið og allar heimsins píslir á hann lagðar. Sjálfur hreifst ég mest af Prédikaranum með alla sína yndislegu fánýtisheimspeki: „Aumasti hégómi, segir prédik- arinn; aumasti hégómi; allt er hé- gómi! Hvaða ávinning hefir maður- inn af öllu striti sínu, er hann streitist við undir sólinni? Ein kynslóð fer og önnur kemur, en jörðin stendur að eilífu. Og sólin rennur upp og sólin gengur undir og hraðar sér til sama- staðar síns, þar sem hún rennur upp. Vindurinn gengur til suðurs og snýr sér til norðurs, hann snýr sér og snýr sér, og fer aftur að hringsnúast á nýj- an leik. Allar ár renna í sjóinn, en sjór- inn verður aldrei fullur; þangað sem árna renna, þangað halda þær ávallt áfram að renna. Allt er sístritandi, enginn maður fær því með orðum lýst; augað verður aldrei satt af að sjá og eyrað verður aldrei mett af að heyra. Það sem hefir verið, það mun verða, og það sem gjörst hefir, það mun gjör- ast, og ekkert er nýtt undir sólinni.“ Ég held að við værum að van­ rækja okkar unga fólk ef því væru ekki kynntar kirkjur, og allir hafa gott af því að lesa snilldarperlur Biblí­ unnar. Gleðileg jól gott fólk! n Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja „Það er ekkert fáheyrt við íslenskar kirkjur, ekkert öfgakennt eða framandi. Í kirkju Trúlega er það engin tilviljun að samfélög hinna kristnu Vesturlanda hafi orðið mannúðlegri og lýðræðislegri en mörg önnur. Íslensk kristni og kirkjur og heim-sóknir í þær VE R T Bíókvöld? Þetta verður veisla

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.