Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 14
Jólablað 22. desember 201614 Fréttir Færist skrefi nær móður sinni með hverjum pósti n Brynja hóf leitina að uppruna sínum í byrjun árs n Biðin erfið en ferlið lærdómsríkt E f einhver finnst og ef þau vilja hitta mig, þá fer ég örugg­ lega fyrr út en ég hafði ætlað mér,“ segir Brynja Valdimars­ dóttir, sem í ársbyrjun tók þá ákvörðun að ráðast í það stóra ver­ kefni að leita uppruna síns og móð­ ur sinnar á Srí Lanka. DV ræddi við Brynju fyrir ári þegar hún stóð á krossgötum og var að vega og meta hvort hún ætti að gefa grænt ljós á formlega upprunaleit. Þá hafði hún nýlega fengið fæðingarvottorð sitt og önnur skjöl sem hún hafði eftir áralanga forvitni, ákveðið að kalla eftir upp á von og óvon um að þau væru til. Brynja fæddist á Srí Lanka en það var þann 14. desember 1985 sem móðir hennar hér á landi sótti hana sex vikna gamla og veikburða og bjó henni öruggara og betra líf hér á landi. DV lék forvitni á að vita hvað gerst hefði í leit Brynju á þessu ári sem liðið er frá því hún sagði sögu sína í DV. Enn á ný stendur hún á tímamót­ um í verkefninu og möguleikinn á að finna móður hennar verður raun­ verulegri með hverjum töluvpóst­ inum sem henni berst nú frá ræðis­ manninum á Srí Lanka. Hjólin fóru að snúast eftir viðtal „Í kjölfar þess að greinin birtist í fyrra þá fóru hjólin að snúast og það mjög hratt. Margt fólk, sem ég þekkti ekk­ ert fyrir ári, hafði samband og bauð fram aðstoð sína. Fólk sem er tengt Srí Lanka og fólk sem var að vinna í þessum ættleiðingarmálum á sín­ um tíma. Ég var hissa á að fá þetta fólk með mér í lið,“ segir Brynja. Það var síðan í ársbyrjun sem hún tók ákvörðun um að hún myndi fara til Srí Lanka á árinu 2017 og hóf að safna í ferðasjóð. Hún segir að aðstoð í uppruna­ leit Íslenskrar ættleiðingar hafi verið takmörkuð varðandi ættleiðingar frá þessum tíma, sem voru með þeim fyrstu. „Mér fannst ég komin í smá blindgötu og það gerðist í nokkur skipti í þessu ferli og á þessu ári. Það var högg og vonbrigði en ég vildi halda áfram og leita sannleikans. Ég gafst ekki upp og alltaf kom nýtt fólk, með nýjar upplýsingar sem leiddu mig áfram hliðargötur, en alltaf áfram veginn þó.“ Ekki tilbúin í sjónvarpið Brynja gerði hlé á leitinni í sumar en hreyfing komst á málin á ný eftir að þættir Sigrúnar Óskar Kristjáns­ dóttur, Leitin að upprunanum, voru sýndir á Stöð 2. Brynja segir að leitað hafi verið til hennar um að vera í þátt­ unum eftir viðtalið við DV. „En ég var ekki alveg tilbúin í það. Það er ekki fyrir alla, varðandi svona persónuleg mál. Þetta voru frábær­ ir þættir og hafa kveikt alveg nýtt ferli hjá mörgum sem eru í þessum hug­ leiðingum. Mér finnst magnað að þær hafi allar fundið sitt fólk, sem er fjarri því sjálfsagt og ég samgleðst þeim mjög. Þetta er frábær leið til að leita upprunans, þótt hún henti kannski ekki öllum.“ Þættirnir vöktu mikla athygli og í kjölfarið var Brynju bent á að hafa samband við ræðismanninn á Srí Lanka vegna leitarinnar að móður sinni. Hún hafði samband við utan­ ríkisráðuneytið hér sem vísaði henni á íslenska sendiráðið á Indlandi sem kom henni í samband við ræðismanninn. Allt gerðist þetta fljótt en eftir að hún hafði sent erindi til ræðismannsins tók við bið. Eftir að hún athugaði með stöðu mála fékk hún þær upplýsingar að ræðismað­ urinn hefði móttekið póstinn og hún fengi líklega póst eftir áramót. Hann barst þó fyrr en hana hafði grunað. Sjokk eftir óvæntan póst „Síðan var ég að undirbúa tónleika fyrir söngnemendur mína í byrjun desember og kíkti á tölvupóstinn minn. Þar sá ég póst frá Srí Lanka með titilinn: Leitin að móður þinni. Ég missti símann og hjartað byrj­ aði að slá á yfirsnúningi. Án þess að hugsa opnaði ég póstinn – þótt ég væri alls ekki tilbúin að lesa það sem í honum stóð. Þar kom fram að leit væri hafin að móður minni sem búi „hér“ – og síðan stóð heimilisfangið hjá henni. Það var sjokk. Þarna fannst mér ég vera komin mjög langt áfram. Svona litlar upplýsingar, sem eru í raun mjög miklar.“ Eftir sjokkið voru tilfinningar Brynju blendnar. „Ég var ánægð en gerði mér líka grein fyrir að ég myndi fá þessar upplýsingar í pörtum, sem er mjög erfitt. Eiginlega verra en að fá þetta allt í einu, því þá þarf maður ekki að bíða. Ég er því eiginlega bara að bíða eftir næsta pósti, ég veit ekki hvaða svör þar verður að finna en það er eitthvert annað skref.“ Bið eftir svörum erfið Aðspurð hvort heimilisfangið sem leitarteymið á Srí Lanka hafði upp á sé síðasta þekkta heimilisfang eða núverandi heimilisfang móður henn­ ar, segir Brynja að hún viti það í raun ekki. „Ég veit ekki hvort hún sé dáin eða á lífi og það kemur örugglega í ljós í næsta pósti. En hún hefur búið á þessu heimilisfangi og það kemur fram í fæðingarskjölunum mínum, þótt það hafi ekki verið heimilisfang. Þetta er bærinn, rétta nafnið á henni. Þau eru svo rosalega klár þarna úti, þau finna fólk sem er búið að skipta um nafn og hvað eina. Þarna búa 20 milljónir manna og ekki helmingur er skráður hjá Þjóðskrá. Ég skil ekki hvernig þau fara að þessu. Þetta er magnað og þau eru vön að gera þetta. Þannig að ég legg bara allt mitt traust á þeirra vinnu. Ég er gríðarlega þakk­ lát fyrir þeirra vinnu, þau eru ekki að fá neitt fyrir þetta. Þau eru bara að hjálpa. En þetta heimilisfang er eitt­ hvað sem móðir mín hefur búið á, en hvort hún býr þar í dag verður að koma í ljós. Ég verð bara að bíða og það er það erfiðasta í þessu ferli.“ Næsti póstur og hver póstur eftir það færir hana því hugsanlega nær líffræðilegri móður sinni og svörum við spurningunum sem brunnið hafa á henni um árabil. Brynja segir að henni hafi ekki dottið í hug fyrir ári að hún myndi komast svona langt af sjálfsdáðum og á eigin forsend­ um. Hún ætlar sér út til Srí Lanka á næsta ári, en ef allt gengur að óskum þá reiknar hún með að fara fyrr út. Allt veltur þó á næsta pósti og nýjum upplýsingum. Áhuginn varð að báli Brynja kveðst hafa þroskast og lært mikið á síðasta ári, ekki síst um sjálfa sig. „Þetta hefur kennt mér þolin­ mæði, gríðarlega þolinmæði. Að bíða eftir svona erfiðum fréttum. Þetta hefur líka kennt mér hvað fólk er hjálpsamt og vill hjálpa manni í persónulegustu málum manns. Ég er svo þakklát að hjartað í mér er að spr­ inga. Ég fann ekki þennan áhuga á að leita þegar ég var yngri, það var eitt­ hvað sem kveikti það í mér. Eftir að ég varð eldri þá vaknaði þetta og núna fyrir ári varð þetta að báli. Þá varð ég að vita upprunann. Það er sterkt í mér, það er kannski ekki sterkt í öll­ um. Það er eitthvað sem ég lærði líka um sjálfa mig. Ég hef þroskast og er hugrakkari en ég hélt ég væri.“ Alltaf búist við því versta Í gegnum allt ferlið hefur Brynja lagt mikla áherslu á að halda sér niðri á jörðinni. Ekki láta væntingarnar hlaupa með sig í gönur og hún hafði undirbúið sig vel. Það er enda margt sem getur farið úrskeiðis í svona við­ kvæmum málum. Oft eru börnin sem konur gáfu til ættleiðingar leyndar­ mál og þær gætu neitað að gangast við börnunum sem koma í leit að þeim áratugum síðar. „Mér finnst erfitt að hugsa um að allt gangi upp, það liggur við að ég fari að gráta. Ef allt gengur að óskum þá gæti ég talið líklegt að ég færi út í febrúar. Ég á von á frekari svörum í janúar en veit ekki hversu löng bið er eftir þeim. Ég veit að það er erfitt að leita að fólki með takmarkaðar upp­ lýsingar en þau eru að gera sitt allra besta. Ef þau finna hana setja þau upp fund þar, ef hún vill hitta mig, og það fer allt eftir því hvað hún vill. Ég get ekki ákveðið það út frá mínum forsendum, það verður að taka mið af hennar þörfum og vilja. Þetta er viðkvæmt málefni, það eru svo mörg leyndarmál á bak við mörg af þessum tilfellum. Eins og Íslensk ættleiðing sagði; maður getur verið að rústa fjölskyldum. Ég vil ekki leggja það á hana. Ef hún vill ekki, þá sætti ég mig við það. Ég ætla ekki að ýta neitt á það og ég verð að virða hennar óskir og vilja.“ Brynja segir langsótt fyrir hana að hugsa um að líffræðileg móðir henn­ ar vilji hitta hana og að allt gangi að óskum. „Ég hef verið of jarðbundin í þessu eiginlega, býst alltaf við því versta. En þetta hefur gengið rosalega vel. Ég er ótrúlega ánægð með að hafa tekið þann tíma sem ég þurfti, ekki fara einhverja hraðferð. Þegar ég verð eldri vil ég geta munað og ég hef skrif­ að niður dagbók um hvert einasta at­ riði sem hefur gerst. Ég vil líka að sonur minn hafi aðgang að því og geti lesið yfir þetta og vitað um sinn upp­ runa. Ég lagði mig alla fram um það.“ Enn stendur Brynja því á ákveðn­ um tímamótum og bíður eftir næsta púsli í púsluspilið sem hefur verið að taka á sig mynd síðasta árið. „Algjörlega. Það eru mörg púsl sem hafa bæst við síðan þá. Þetta púsluspil er að taka á sig mynd, og hún verður alltaf skýrari.“ n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Eina myndin Þetta er móðir Brynju með hana nýfædda í fanginu á síðustu samveru- stund þeirra á Srí Lanka fyrir 31 ári. Myndina fékk Brynja í 25 ára afmælisgjöf frá föður sínum og var hún þar til fyrir ári eina heimild hennar um móður sína. Mynd Úr EinkASAfni Brynja Valdimarsdóttir Segist hafa þroskast mikið á einu ári, jafnframt því sem hún hafi lært mikið um sjálfa sig. Mynd MArEllA StEinSdóttir Með syni sínum ,Brynja ásamt syni sínum, Erni Loga, sem er þriggja ára. Hún hefur haldið ítar- lega dagbók um leitina að upprunanum svo hann geti lesið um hana í framtíðinni. Mynd Úr EinkASAfni „Ég veit ekki hvort hún sé dáin eða á lífi og það kemur örugglega í ljós í næsta pósti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.