Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 14
Jólablað 22. desember 201614 Fréttir
Færist skrefi nær móður
sinni með hverjum pósti
n Brynja hóf leitina að uppruna sínum í byrjun árs n Biðin erfið en ferlið lærdómsríkt
E
f einhver finnst og ef þau vilja
hitta mig, þá fer ég örugg
lega fyrr út en ég hafði ætlað
mér,“ segir Brynja Valdimars
dóttir, sem í ársbyrjun tók þá
ákvörðun að ráðast í það stóra ver
kefni að leita uppruna síns og móð
ur sinnar á Srí Lanka. DV ræddi við
Brynju fyrir ári þegar hún stóð á
krossgötum og var að vega og meta
hvort hún ætti að gefa grænt ljós á
formlega upprunaleit. Þá hafði hún
nýlega fengið fæðingarvottorð sitt
og önnur skjöl sem hún hafði eftir
áralanga forvitni, ákveðið að kalla
eftir upp á von og óvon um að þau
væru til. Brynja fæddist á Srí Lanka
en það var þann 14. desember 1985
sem móðir hennar hér á landi sótti
hana sex vikna gamla og veikburða
og bjó henni öruggara og betra líf
hér á landi.
DV lék forvitni á að vita hvað gerst
hefði í leit Brynju á þessu ári sem
liðið er frá því hún sagði sögu sína í
DV. Enn á ný stendur hún á tímamót
um í verkefninu og möguleikinn á að
finna móður hennar verður raun
verulegri með hverjum töluvpóst
inum sem henni berst nú frá ræðis
manninum á Srí Lanka.
Hjólin fóru að snúast
eftir viðtal
„Í kjölfar þess að greinin birtist í fyrra
þá fóru hjólin að snúast og það mjög
hratt. Margt fólk, sem ég þekkti ekk
ert fyrir ári, hafði samband og bauð
fram aðstoð sína. Fólk sem er tengt
Srí Lanka og fólk sem var að vinna í
þessum ættleiðingarmálum á sín
um tíma. Ég var hissa á að fá þetta
fólk með mér í lið,“ segir Brynja. Það
var síðan í ársbyrjun sem hún tók
ákvörðun um að hún myndi fara
til Srí Lanka á árinu 2017 og hóf að
safna í ferðasjóð.
Hún segir að aðstoð í uppruna
leit Íslenskrar ættleiðingar hafi verið
takmörkuð varðandi ættleiðingar frá
þessum tíma, sem voru með þeim
fyrstu. „Mér fannst ég komin í smá
blindgötu og það gerðist í nokkur
skipti í þessu ferli og á þessu ári. Það
var högg og vonbrigði en ég vildi
halda áfram og leita sannleikans. Ég
gafst ekki upp og alltaf kom nýtt fólk,
með nýjar upplýsingar sem leiddu
mig áfram hliðargötur, en alltaf
áfram veginn þó.“
Ekki tilbúin í sjónvarpið
Brynja gerði hlé á leitinni í sumar
en hreyfing komst á málin á ný eftir
að þættir Sigrúnar Óskar Kristjáns
dóttur, Leitin að upprunanum, voru
sýndir á Stöð 2. Brynja segir að leitað
hafi verið til hennar um að vera í þátt
unum eftir viðtalið við DV.
„En ég var ekki alveg tilbúin í það.
Það er ekki fyrir alla, varðandi svona
persónuleg mál. Þetta voru frábær
ir þættir og hafa kveikt alveg nýtt ferli
hjá mörgum sem eru í þessum hug
leiðingum. Mér finnst magnað að þær
hafi allar fundið sitt fólk, sem er fjarri
því sjálfsagt og ég samgleðst þeim
mjög. Þetta er frábær leið til að leita
upprunans, þótt hún henti kannski
ekki öllum.“
Þættirnir vöktu mikla athygli og
í kjölfarið var Brynju bent á að hafa
samband við ræðismanninn á Srí
Lanka vegna leitarinnar að móður
sinni. Hún hafði samband við utan
ríkisráðuneytið hér sem vísaði henni
á íslenska sendiráðið á Indlandi
sem kom henni í samband við
ræðismanninn. Allt gerðist þetta
fljótt en eftir að hún hafði sent erindi
til ræðismannsins tók við bið. Eftir að
hún athugaði með stöðu mála fékk
hún þær upplýsingar að ræðismað
urinn hefði móttekið póstinn og hún
fengi líklega póst eftir áramót. Hann
barst þó fyrr en hana hafði grunað.
Sjokk eftir óvæntan póst
„Síðan var ég að undirbúa tónleika
fyrir söngnemendur mína í byrjun
desember og kíkti á tölvupóstinn
minn. Þar sá ég póst frá Srí Lanka
með titilinn: Leitin að móður þinni.
Ég missti símann og hjartað byrj
aði að slá á yfirsnúningi. Án þess að
hugsa opnaði ég póstinn – þótt ég
væri alls ekki tilbúin að lesa það sem
í honum stóð. Þar kom fram að leit
væri hafin að móður minni sem búi
„hér“ – og síðan stóð heimilisfangið
hjá henni. Það var sjokk. Þarna fannst
mér ég vera komin mjög langt áfram.
Svona litlar upplýsingar, sem eru í
raun mjög miklar.“
Eftir sjokkið voru tilfinningar
Brynju blendnar. „Ég var ánægð en
gerði mér líka grein fyrir að ég myndi
fá þessar upplýsingar í pörtum, sem
er mjög erfitt. Eiginlega verra en að
fá þetta allt í einu, því þá þarf maður
ekki að bíða. Ég er því eiginlega bara
að bíða eftir næsta pósti, ég veit ekki
hvaða svör þar verður að finna en það
er eitthvert annað skref.“
Bið eftir svörum erfið
Aðspurð hvort heimilisfangið sem
leitarteymið á Srí Lanka hafði upp
á sé síðasta þekkta heimilisfang eða
núverandi heimilisfang móður henn
ar, segir Brynja að hún viti það í raun
ekki.
„Ég veit ekki hvort hún sé dáin
eða á lífi og það kemur örugglega í
ljós í næsta pósti. En hún hefur búið
á þessu heimilisfangi og það kemur
fram í fæðingarskjölunum mínum,
þótt það hafi ekki verið heimilisfang.
Þetta er bærinn, rétta nafnið á henni.
Þau eru svo rosalega klár þarna úti,
þau finna fólk sem er búið að skipta
um nafn og hvað eina. Þarna búa 20
milljónir manna og ekki helmingur
er skráður hjá Þjóðskrá. Ég skil ekki
hvernig þau fara að þessu. Þetta er
magnað og þau eru vön að gera þetta.
Þannig að ég legg bara allt mitt traust
á þeirra vinnu. Ég er gríðarlega þakk
lát fyrir þeirra vinnu, þau eru ekki að
fá neitt fyrir þetta. Þau eru bara að
hjálpa. En þetta heimilisfang er eitt
hvað sem móðir mín hefur búið á,
en hvort hún býr þar í dag verður að
koma í ljós. Ég verð bara að bíða og
það er það erfiðasta í þessu ferli.“
Næsti póstur og hver póstur eftir
það færir hana því hugsanlega nær
líffræðilegri móður sinni og svörum
við spurningunum sem brunnið hafa
á henni um árabil. Brynja segir að
henni hafi ekki dottið í hug fyrir ári
að hún myndi komast svona langt
af sjálfsdáðum og á eigin forsend
um. Hún ætlar sér út til Srí Lanka á
næsta ári, en ef allt gengur að óskum
þá reiknar hún með að fara fyrr út.
Allt veltur þó á næsta pósti og nýjum
upplýsingum.
Áhuginn varð að báli
Brynja kveðst hafa þroskast og lært
mikið á síðasta ári, ekki síst um
sjálfa sig.
„Þetta hefur kennt mér þolin
mæði, gríðarlega þolinmæði. Að
bíða eftir svona erfiðum fréttum.
Þetta hefur líka kennt mér hvað fólk
er hjálpsamt og vill hjálpa manni í
persónulegustu málum manns. Ég er
svo þakklát að hjartað í mér er að spr
inga. Ég fann ekki þennan áhuga á að
leita þegar ég var yngri, það var eitt
hvað sem kveikti það í mér. Eftir að ég
varð eldri þá vaknaði þetta og núna
fyrir ári varð þetta að báli. Þá varð
ég að vita upprunann. Það er sterkt í
mér, það er kannski ekki sterkt í öll
um. Það er eitthvað sem ég lærði líka
um sjálfa mig. Ég hef þroskast og er
hugrakkari en ég hélt ég væri.“
Alltaf búist við því versta
Í gegnum allt ferlið hefur Brynja lagt
mikla áherslu á að halda sér niðri
á jörðinni. Ekki láta væntingarnar
hlaupa með sig í gönur og hún hafði
undirbúið sig vel. Það er enda margt
sem getur farið úrskeiðis í svona við
kvæmum málum. Oft eru börnin sem
konur gáfu til ættleiðingar leyndar
mál og þær gætu neitað að gangast
við börnunum sem koma í leit að
þeim áratugum síðar.
„Mér finnst erfitt að hugsa um að
allt gangi upp, það liggur við að ég
fari að gráta. Ef allt gengur að óskum
þá gæti ég talið líklegt að ég færi út í
febrúar. Ég á von á frekari svörum í
janúar en veit ekki hversu löng bið er
eftir þeim. Ég veit að það er erfitt að
leita að fólki með takmarkaðar upp
lýsingar en þau eru að gera sitt allra
besta. Ef þau finna hana setja þau
upp fund þar, ef hún vill hitta mig,
og það fer allt eftir því hvað hún vill.
Ég get ekki ákveðið það út frá mínum
forsendum, það verður að taka mið
af hennar þörfum og vilja. Þetta er
viðkvæmt málefni, það eru svo mörg
leyndarmál á bak við mörg af þessum
tilfellum. Eins og Íslensk ættleiðing
sagði; maður getur verið að rústa
fjölskyldum. Ég vil ekki leggja það á
hana. Ef hún vill ekki, þá sætti ég mig
við það. Ég ætla ekki að ýta neitt á það
og ég verð að virða hennar óskir og
vilja.“
Brynja segir langsótt fyrir hana að
hugsa um að líffræðileg móðir henn
ar vilji hitta hana og að allt gangi að
óskum. „Ég hef verið of jarðbundin
í þessu eiginlega, býst alltaf við því
versta. En þetta hefur gengið rosalega
vel. Ég er ótrúlega ánægð með að hafa
tekið þann tíma sem ég þurfti, ekki
fara einhverja hraðferð. Þegar ég verð
eldri vil ég geta munað og ég hef skrif
að niður dagbók um hvert einasta at
riði sem hefur gerst. Ég vil líka að
sonur minn hafi aðgang að því og geti
lesið yfir þetta og vitað um sinn upp
runa. Ég lagði mig alla fram um það.“
Enn stendur Brynja því á ákveðn
um tímamótum og bíður eftir næsta
púsli í púsluspilið sem hefur verið að
taka á sig mynd síðasta árið.
„Algjörlega. Það eru mörg púsl
sem hafa bæst við síðan þá. Þetta
púsluspil er að taka á sig mynd, og
hún verður alltaf skýrari.“ n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Eina myndin Þetta er móðir Brynju með
hana nýfædda í fanginu á síðustu samveru-
stund þeirra á Srí Lanka fyrir 31 ári. Myndina
fékk Brynja í 25 ára afmælisgjöf frá föður
sínum og var hún þar til fyrir ári eina heimild
hennar um móður sína. Mynd Úr EinkASAfni
Brynja Valdimarsdóttir Segist hafa þroskast mikið á einu ári, jafnframt því sem hún hafi lært mikið um sjálfa sig. Mynd MArEllA StEinSdóttir
Með syni sínum ,Brynja ásamt syni sínum, Erni Loga, sem er þriggja ára. Hún hefur haldið ítar-
lega dagbók um leitina að upprunanum svo hann geti lesið um hana í framtíðinni. Mynd Úr EinkASAfni
„Ég veit
ekki hvort
hún sé dáin eða á
lífi og það kemur
örugglega í ljós í
næsta pósti