Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 22
Jólablað 22. desember 201622 Fólk Viðtal T ómas Andrés Tómasson, eða Tommi á Búllunni, situr við skrifborðið sitt á fimmtu hæð stóra turnsins í Kringlunni og talar í farsímann þegar blaða- mann DV ber að garði. Þessi óum- deildi hamborgarakóngur landsins er í svörtum jakkafötum og skyrtu enda nýbúinn að flytja jólahugvekju fyr- ir 150 manns á skrifstofu ríkisskatt- stjóra. Borðið sem hann situr við keypti hann af Hard Rock Café, ásamt öðrum innan stokksmunum veitinga- staðarins, þegar honum var lokað fyr- ir ellefu árum. Skrifstofan minnir um margt á Hamborgarabúllur Tómas- ar en hún er skreytt veggspjöldum, stuttermabolum og myndum sem tengjast ævistarfi Tomma á einn eða annan hátt. „Þetta er svona alls konar drasl sem ég hef geymt. Þegar þeir lokuðu Hard Rock árið 2005 stóð mér til boða að kaupa allt þar inni. Ég gat ekki hugsað mér að einhverjir aðrir keyptu þetta og tók því pakkann eins og hann lagði sig fyrir utan það sem var í eigu Hard Rock í London. Þegar upp er staðið skapar það sem hér er inni ákveðna stemningu og ég get sagt: „Þetta er ég“.“ Upp á punt Hamborgaraveldið sem rekið er undir nafni Tómasar telur nú sjö staði hér á landi og tíu í Evrópu og er að miklu leyti stjórnað frá skrif- stofum hans og sonarins, Ingva Týs. Feðgarnir eiga og reka tvær Ham- borgarabúllur hér á landi, tvær í London og hafa gert sérleyfissamn- inga við eigendur hinna veitinga- staðanna. Útrásin er í fullum gangi og á næsta ári á að opna fjórar búll- ur til viðbótar; í Ósló, London og Kaupmannahöfn. Tommi segir að- spurður að hann taki ekki lengur jafn virkan þátt í daglegum rekstri veitingastaðanna og hann gerði áður heldur sé hann „meira upp á punt“. Margt hafi breyst síðan fyrsta búllan var opnuð fyrir tólf árum og Tommi stóð við grillið frá morgni til kvölds. „Sonur minn hefur tekið við stjórninni á heildarmyndinni og ég nýt þess að vera á hliðarlínunni. Ég er svolítið eins og Charlie í Charlie's Angels. Ég er ósýnilegur en kem alltaf öðru hverju inn í myndina,“ segir Tommi og hlær. „Þegar við opnuðum fyrst niðri á Geirsgötu fyrir tólf árum stóð ég vaktina þar dag og nótt í eitt og hálft ár. Síðan seldi ég félögum mínum sem voru búnir að vinna með mér þann stað og fór til Ameríku og var þar í mánuð eða tvo og sá fyrir mér að opna stað þar. Svo varð ég fyrir því að verða ástfanginn og kom til baka og við opnuðum stað sumar- ið 2006 uppi á Bíldshöfða. Þar stóð ég yfir pönnunni alveg til 2012 þegar við opnuðum í London. Eftir það fór svo mikið í gang og ég var alltaf með annan fótinn erlendis að það var ekki hægt að koma því við að vera að steikja reglulega og á sama tíma að sýsla erlendis. Þetta eru svo ólík verkefni að maður verður tættur.“ Nýjasta búllan var opnuð í Róm síðasta sumar en staðirnir heita Tommi's Burger Joint utan land- steinanna. Ef áform feðganna og viðskiptafélaga þeirra ganga eftir verða staðirnir eins og áður segir orðnir sautján í lok næsta árs. Horfa þeir nú einnig til Sviss og Spánar þó að ekkert sé ákveðið í þeim efnum. „Okkur langar svo líka til Asíu og Ameríku. Það eru þrír staðir sem eru girnilegir í Ameríku eða New Hamborgarakóngurinn lærði af ósigrunum Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Tommi á Búllunni fylgist nú með rekstri og útrás hamborgaraveldis síns frá hliðarlínunni. Í viðtali við Harald Guðmundsson ræðir hann stærstu sigrana en einnig þegar hann misst allt og fallið var hátt. Veitingamaðurinn viðurkennir að hann hefur ekki náð fullum tökum á velgengninni og útilokar ekki að hjá honum takið við nýr og öðruvísi kafli. „Ég held ég sé því skárri núna heldur en eftir velgengnina í Tommaham- borgurum. Ég hef ekki náð tökum á þessu en ég er skárri og meira niðri á jörðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.