Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Blaðsíða 2
Jólablað 22. desember 20162 Fréttir Útgáfa DV um jólin Í höndunum hefur þú jólablað DV. Útgáfu blaðsins fram yfir áramót verður þannig háttað að næsta tölublað kemur út föstu- daginn 30. desember. Í því verð- ur meðal annars árleg völvuspá DV, árið verður gert upp í máli og myndum og annað fjölbreyti- legt efni. Fyrsta tölublað ársins á nýju ári kemur út þriðjudaginn 3. janúar. Öflug fréttaþjónusta verður, venju samkvæmt, yfir hátíðarnar. DV óskar lesendum og öðrum velunnurum DV gleði- legra jóla. ÞITT BESTA VAL Í LITUM HANNAH NOTAR LIT 3-65 PALETTE DELUXE NÚ MEÐ LÚXUS OLEO-GOLD ELIXIR GERÐU LIT AÐ LÚXUS FYRIR ALLT AÐ 30% MEIRI GLJÁ* NR. 1 Í EVRÓPU NÝTT V ið erum á fullu núna og erum búin að afhenda mörg hundruð gjafir og erum einnig að fara að gefa á vinajól hjá Hjálp- ræðishernum þar sem verður fullt af börnum,“ segir Styrmir Barkarson, grunnskólakennari og námsmaður í Svíþjóð, sem hefur síðustu fjögur ár staðið fyrir söfnunum á jólagjöf- um handa börnum í efnalitlum fjöl- skyldum. Sá þörfina Styrmir stofnaði nýverið samtökin Lítil hjörtu utan um framtakið en ákveðið atvik á aðventunni 2012 varð kveikjan að því. Jólasveinarnir höfðu þá ítrekað gleymt lítilli stúlku sem þá var nemandi Styrmis við Holtaskóla í Reykjanesbæ og skildi hún ekkert í því af hverju skór- inn hennar var alltaf tómur. „Ég sá þörfina með eigin augum. Ég er búinn að vera kennari þetta lengi og sá þegar jólin koma að það voru alltaf sömu krakkarnir sem voru ekki í hlýjum fötum eða áttu ekki liti til að föndra. Það hlakka ekki allir krakk- ar jafn mikið til jólanna. Ég ákvað að gera eitthvað í þessu því ég hef alveg óbilandi trú á náunganum og krafti kærleikans og er viss um að ef maður er nógu kærleiksfullur þá smiti það út frá sér,“ segir Styrmir í samtali við DV. Kaupir gjafirnar Að sögn Styrmis keypti hann svo á annað þúsund gjafir árin tvö á eftir og fóru þær bæði í skó og undir jólatré. Þá gaf hann einnig eitt hundrað börn- um páskaegg um páskahátíðina. „Í undantekningartilfellum kem- ur fólk með gjafir en ég er að sam- stilla krafta úr ólíkum áttum. Ég fæ fjárframlög frá fólki og fyrirtækj- um og svo eru fyrirtæki, stórversl- anir og leikfangainnflytjendur sem leyfa mér að versla hjá þeim á mjög góðum kjörum. Þannig get ég gert mikið úr söfnunarfénu og svo er ég í samstarfi við hjálparstofnanir því ég ætla ekki að láta fólk sem er í vand- ræðum leggja þau á borð fyrir mig og þá enn annan aðila. Ég er í sam- starfi við velferðarsjóð Suðurnesja og á meðal skjólstæðinga þess eru á annað hundrað börn. Svo kaupi ég gjafir með þau í huga en velferðar- sjóðurinn sér um að dreifa þessu,“ segir Styrmir sem hefur búið í Lundi í Svíþjóð í eitt og hálft ár þar sem hann kennir íslenskum börnum móðurmálið. „Nú þegar búið er að stofna sam- tök í kringum þetta þá er þetta orðið að heilsársverkefni og hægt verður að safna í sjóð. Þó að ég sé sjálfur í Svíþjóð, en þó á leiðinni heim fyrir jól, slær hjarta mitt enn fyrir börnin heima svo ég er hvergi nærri hættur og nýt aðstoðar móður minnar sem hefur verið á þönum í aðventunni að sækja og afhenda gjafir meðan ég fæ fólk til að leggja sitt af mörkum.“ n „Það hlakka ekki allir krakkar jafn mikið til jólanna Safnar jólagjöfum fyrir fátæk börn Styrmir Barkarson stofnaði Lítil hjörtu og vill að öll börn fái gjafir í skóinn og undir jólatréð Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Safnar gjöfum Styrmir Barkarson er formaður samtakanna Lítil hjörtu. Gáfu líka páskaegg Svo mikið safnaðist fyrir jólasöfnun Styrmis í fyrra að samtökin keyptu páskaegg sem velferðarsjóður Suðurnesja sá um að deila út. Skildi eftir hníf og Scream-grímu Einstaklingurinn sem stakk konu í húsnæði Greiningar- og ráðgjaf- arstöðvar ríkisins á mánudaginn skildi eftir hnífinn og drauga- grímu sem lítur út eins og sú sem var notuð í Scream-hryllings- myndunum. Lögreglan rannsakar málið en engar vísbendingar hafa borist um hver maðurinn gæti verið. Engin öryggismyndavél var á staðnum. Konan hefur sagt lögreglunni að hún hafi hitt manninn í stiga- gangi hússins þegar hún kom til vinnu um níu leytið og að hann hafi lagt til hennar með hnífnum. Hlaut hún skurð á hendi en mað- urinn komst undan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.