Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2016, Side 2
Jólablað 22. desember 20162 Fréttir
Útgáfa DV
um jólin
Í höndunum hefur þú jólablað
DV. Útgáfu blaðsins fram yfir
áramót verður þannig háttað að
næsta tölublað kemur út föstu-
daginn 30. desember. Í því verð-
ur meðal annars árleg völvuspá
DV, árið verður gert upp í máli
og myndum og annað fjölbreyti-
legt efni. Fyrsta tölublað ársins á
nýju ári kemur út þriðjudaginn
3. janúar.
Öflug fréttaþjónusta
verður, venju samkvæmt, yfir
hátíðarnar.
DV óskar lesendum og
öðrum velunnurum DV gleði-
legra jóla.
ÞITT BESTA VAL Í LITUM
HANNAH NOTAR
LIT 3-65
PALETTE DELUXE
NÚ MEÐ LÚXUS
OLEO-GOLD ELIXIR
GERÐU LIT
AÐ LÚXUS
FYRIR ALLT AÐ 30% MEIRI GLJÁ*
NR. 1 Í EVRÓPU
NÝTT
V
ið erum á fullu núna og
erum búin að afhenda
mörg hundruð gjafir og
erum einnig að fara að
gefa á vinajól hjá Hjálp-
ræðishernum þar sem verður fullt
af börnum,“ segir Styrmir Barkarson,
grunnskólakennari og námsmaður
í Svíþjóð, sem hefur síðustu fjögur
ár staðið fyrir söfnunum á jólagjöf-
um handa börnum í efnalitlum fjöl-
skyldum.
Sá þörfina
Styrmir stofnaði nýverið samtökin Lítil
hjörtu utan um framtakið en ákveðið
atvik á aðventunni 2012 varð kveikjan
að því. Jólasveinarnir höfðu þá ítrekað
gleymt lítilli stúlku sem þá var nemandi
Styrmis við Holtaskóla í Reykjanesbæ
og skildi hún ekkert í því af hverju skór-
inn hennar var alltaf tómur.
„Ég sá þörfina með eigin augum.
Ég er búinn að vera kennari þetta
lengi og sá þegar jólin koma að það
voru alltaf sömu krakkarnir sem voru
ekki í hlýjum fötum eða áttu ekki liti til
að föndra. Það hlakka ekki allir krakk-
ar jafn mikið til jólanna. Ég ákvað að
gera eitthvað í þessu því ég hef alveg
óbilandi trú á náunganum og krafti
kærleikans og er viss um að ef maður
er nógu kærleiksfullur þá smiti það út
frá sér,“ segir Styrmir í samtali við DV.
Kaupir gjafirnar
Að sögn Styrmis keypti hann svo á
annað þúsund gjafir árin tvö á eftir og
fóru þær bæði í skó og undir jólatré.
Þá gaf hann einnig eitt hundrað börn-
um páskaegg um páskahátíðina.
„Í undantekningartilfellum kem-
ur fólk með gjafir en ég er að sam-
stilla krafta úr ólíkum áttum. Ég fæ
fjárframlög frá fólki og fyrirtækj-
um og svo eru fyrirtæki, stórversl-
anir og leikfangainnflytjendur sem
leyfa mér að versla hjá þeim á mjög
góðum kjörum. Þannig get ég gert
mikið úr söfnunarfénu og svo er ég í
samstarfi við hjálparstofnanir því ég
ætla ekki að láta fólk sem er í vand-
ræðum leggja þau á borð fyrir mig
og þá enn annan aðila. Ég er í sam-
starfi við velferðarsjóð Suðurnesja
og á meðal skjólstæðinga þess eru á
annað hundrað börn. Svo kaupi ég
gjafir með þau í huga en velferðar-
sjóðurinn sér um að dreifa þessu,“
segir Styrmir sem hefur búið í Lundi
í Svíþjóð í eitt og hálft ár þar sem
hann kennir íslenskum börnum
móðurmálið.
„Nú þegar búið er að stofna sam-
tök í kringum þetta þá er þetta orðið
að heilsársverkefni og hægt verður
að safna í sjóð. Þó að ég sé sjálfur í
Svíþjóð, en þó á leiðinni heim fyrir
jól, slær hjarta mitt enn fyrir börnin
heima svo ég er hvergi nærri hættur
og nýt aðstoðar móður minnar sem
hefur verið á þönum í aðventunni að
sækja og afhenda gjafir meðan ég fæ
fólk til að leggja sitt af mörkum.“ n
„Það hlakka
ekki allir
krakkar jafn
mikið til jólanna
Safnar jólagjöfum
fyrir fátæk börn
Styrmir Barkarson stofnaði Lítil hjörtu og vill að öll börn fái gjafir í skóinn og undir jólatréð
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Safnar gjöfum Styrmir Barkarson
er formaður samtakanna Lítil hjörtu.
Gáfu líka páskaegg Svo mikið safnaðist fyrir jólasöfnun Styrmis í fyrra að samtökin
keyptu páskaegg sem velferðarsjóður Suðurnesja sá um að deila út.
Skildi eftir hníf
og Scream-grímu
Einstaklingurinn sem stakk konu
í húsnæði Greiningar- og ráðgjaf-
arstöðvar ríkisins á mánudaginn
skildi eftir hnífinn og drauga-
grímu sem lítur út eins og sú sem
var notuð í Scream-hryllings-
myndunum. Lögreglan rannsakar
málið en engar vísbendingar hafa
borist um hver maðurinn gæti
verið. Engin öryggismyndavél var
á staðnum.
Konan hefur sagt lögreglunni
að hún hafi hitt manninn í stiga-
gangi hússins þegar hún kom til
vinnu um níu leytið og að hann
hafi lagt til hennar með hnífnum.
Hlaut hún skurð á hendi en mað-
urinn komst undan.